Málsnúmer 2608048
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 17.09.2026
Eigendur lóða nr. 201 og 203 í Höfuðbóli óska eftir að gerð verði breyting á gildandi deiliskipulagi vegna aðkomu að lóð 203 (Landeignarnúmer 231999) skv. meðfylgjandi tillögu frá Pálu Minný Ríkharðsdóttur dags. 19.8.2026.. Fyrir liggur þinglýst kvöð með samþykki landeiganda að H201 (Landeignarnúmer 231997) Aroni Heimissyni 081094-2099.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að málsmeðferð verði eins og um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin metur það svo að óþarfi sé að grenndarkynna breytinguna þar sem hún hefur óveruleg áhrif á aðra en umsækjendur og sveitarfélagið.