Málsnúmer 2608057

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 17.09.2026

Eigendur Skýjaborga óska eftir að fá að skipta úr landi sínu, fjórum lóðum. Lóð sem fengi heitið Skýjaborgir 1, stærð 21.941,2 m² og Lxxxxxx, Skýjaborgir 2, stærð 21.630,7 m² og Lxxxxxx, Skýjaborgir 3, stærð 21.518,5 m² og Lxxxxxx og Skýjaborgir 4, stærð 21.439,5 m² og Lxxxxxx. Skýjaborgir L220350 yrði 78.722,5 m². Ekki er gert ráð fyrir breytingu á landnotkun. Merkjalýsing er frá Kristjönu Ólöfu Valgeirsdóttur dags. 11.8.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.