Málsnúmer 2608060
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 17.09.2026
Landeigandi óskar eftir heimild til að leggja fram tillögu að breytingum á gildandi deiliskipulagi fyrir Bjálmholt, sem samþykkt var í sveitarstjórn í janúar 2026. Gert verði ráð fyrir aukningu byggingarmagns úr 1500 m² í 2000 m² á hvorum byggingareit, mænishæð verði leiðrétt í samræmi við aðstæður í nærumhverfi og afmörkun byggigareita breytt innbyrðis. Skipulagsgögn frá HAX arkitektúr dags. 25.8.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytinga á deiliskipulagi og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að málsmeðferð verði eins og um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin metur það svo að óþarfi sé að grenndarkynna breytinguna þar sem hún hefur óveruleg áhrif á aðra en umsækjanda og sveitarfélagið.