Málsnúmer 2609004

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 17.09.2026

Afmörkun og hnitsetning útmarka landeignar og einnig Kvista L165240 sem er lóð innan landeignar Stekkhóla í eigu sömu landeigenda. Þá er einni nýrri spildu hér skipt frá landi Stekkhóla. Spildan fengi heitið Stekkhólar 2, stærðina 82.965,4 m² og Lxxxxxx. Eftir landskiptin mun Mhl02 0101 Hesthús færast af Stekkhólum yfir á nýja lóð Stekkhólar 2. Merkjalýsing frá Kristjönu Ólöfu Valgeirsdóttur dags. 23.7.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.