Málsnúmer 2609011

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 17.09.2026

Landeigandi óskar eftir að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi dags. 11.6.2025. Helstu breytingar á deiliskipulagsinu eru eftirfarandi:

1. Byggingareitur B4 stækkar og færist fjær lóðarmörkum um 20m.

2. Byggingareitur B2 stækkar til suðurs um 40m.

3. Breyting á lið 6 í byggingarskilmálum.

Að auki verður heimilt að byggja samtals 200m²

gestahús á einni hæð. Hæð gestahúsa má vera allt að 6m í mæni, mælt frá gólfplötu.

Gera skal ráð fyrir minnst tveimur bílastæðum við gestahús.

Tillaga frá Larsen dags. 7.9.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytinga á deiliskipulagi og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að málsmeðferð verði eins og um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin metur það svo að óþarfi sé að grenndarkynna breytinguna þar sem hún hefur óveruleg áhrif á aðra en umsækjanda og sveitarfélagið.