Málsnúmer 2609015

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 10. fundur - 23.09.2026

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna starfsleyfis fyrir vinnubúðir Ístaks vegna stækkunar Sigöldustöðvar í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 10.09.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.