Málsnúmer 2609016
Vakta málsnúmerByggðarráð Rangárþings ytra - 4. fundur - 23.09.2026
Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir undirbúning fjárhagsáætlunar 2027-2030 og forsendur fjárhagsáætlunarinnar. Lagt fram fundarplan fyrir áætlaða vinnufundi byggðarráðs.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 5. fundur - 14.10.2026
Ályktun frá Landsþingi Sambands Íslenskra sveitarfélaga
Fyrir liggur ályktun frá Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga um að sveitarfélögin sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Þingið lýsir yfir vilja sínum til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027. Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi og ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í sameiginlegu átaki og takmarki með sambærilegum hætti hækkanir á gjaldskrám og álögum sem hafa bein áhrif á heimilin. Með því leggja allir sitt af mörkum við að skapa sátt í samfélaginu.
Lagt til að sveitarstjórn samþykki framlagða ályktun.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að sveitarstjórn samþykki framlagða ályktun.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð Rangárþings ytra - 5. fundur - 28.10.2026
Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir undirbúning og forsendur fjárhagsáætlunar 2027-2030 ásamt útkomuspá fyrir árið 2026.
Ákveðið að leggja til við sveitarstjórn að útsvarshlutfall fyrir árið 2027 hjá sveitarfélaginu Rangárþingi ytra verði 14,97%.
Samþykkt samhljóða.
Ákveðið að leggja til við sveitarstjórn að útsvarshlutfall fyrir árið 2027 hjá sveitarfélaginu Rangárþingi ytra verði 14,97%.
Samþykkt samhljóða.