Málsnúmer 2609018

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 17.09.2026

Eigandi Haga 2, L165087, óskar eftir að fá að skipta þremur lóðum úr jörð sinni. Fyrsta lóðin yrði 10101,9 m² að stærð, fengi heitið Hagi 2A og Lxxxxxx, önnur lóðin yrði 10127,6 m² að stærð, fengi heitið Hagi 2D og Lxxxxxx og þrijða lóðin yrði 10102,0 m² að stærð, fengi heitið Hagi 2E og Lxxxxxx. Hagi 2 L165087 verður um 64,1 ha eftir skiptin. Landnotkun verður í samræmi við upprunaland, landbúnaður. Aðkoma að lóðunum er um sama veg og að lóðinni Hagi 2C sem áður hefur verið stofnuð. Merkjalýsing er frá Kristjönu Ólöfu Valgeirsdóttur dags. 18.8.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Vegna stærða lóðanna þarf að skilgreina landnotkun eftir nýtingu lóðanna með vísan til kafla 2.3.1. í greinargerð aðalskipulags Rangárþings ytra 2016-2028.