Málsnúmer 2609022

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 17.09.2026

Landeigandi óskar eftir heimild til að leggja fram deiliskipulag fyrir lóð sína, Svínhaga Ás 8, þar sem gert er ráð fyrir að fara í byggingu á íbúðarhúsi. Innan byggingarreits verði heimilt að byggja 2 allt að 200m2 2ja hæða íbúðarhús, 2 allt að 150m2 2ja hæða frístunda-/gestahús auk annarra bygginga, m.a. til landbúnaðarnota. Hámarks heildar byggingarmagn er 2100m2. Gert er ráð fyrir að fjarlægja núverandi 26m2 gestahús.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.