Málsnúmer 2609036

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 10. fundur - 23.09.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið tilkynningu Friðriks Ólafssonar, fh. Sigríðar Helgu Heiðmundsdóttur, um tilkynningarskylda mannvirkjagerð sem undanþegin er byggingarheimild eða byggingarleyfi. Fyrirhugað er að breyta innra skipulagi og lögnum í 229,2 m² gistihúsi, mhl. 02, samkvæmt meðfylgjandi aðaluppdráttum, dags. 17.9.2026.
Byggingarfulltrúi synjar erindinu þar sem mannvirkið fellur í notkunarflokk 4. Fyrirhugaðar breytingar á innra skipulagi og lögnum teljast því til mannvirkjagerðar í umfangsflokki 2 og eru háðar byggingarleyfi. Umsækjanda er bent á að leggja inn umsókn um byggingarleyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda.