Málsnúmer 2609046
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 11. fundur - 30.09.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Óskars Júlíusar Bjarnarsonar um byggingarheimild vegna stækkunar sumarhúss á lóðinni Ketilsstaðir lóð 22, sem eftir stækkun verður alls 76,6 m² að stærð, samkvæmt aðaluppdráttum Sveins Hallgrímssonar, dags. 11.9.2022.
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Afstöðumynd er ófullnægjandi. Staðsetja skal húsið á afstöðumynd með fullnægjandi hætti.
Gera skal grein fyrir björgunaropi frá svefnherbergi.
Gera skal grein fyrir staðsetningu handslökkvitækis á grunnmynd.