Málsnúmer 2609047

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 11. fundur - 30.09.2026

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna áforma Ævars Svans Sigurðsson fyrir hönd Skuggasíðu ehf., kt. 640622-0320 um starfsleyfi til reksturs gististaðar, rýmisnúmer 020101 við Ægissíðu 7, fyrir 2 gesti í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 26..0.2026. Ítrekuð beiðni 27.09.2026
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.