Málsnúmer 2610052
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 13. fundur - 20.10.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Bents Larsens Fróðasonar, fh. Rafkvik ehf., um byggingarheimild til byggingar þriggja smáhýsa til útleigu, hvert um sig 20,3 m² að stærð, samtals 60,9 m², samkvæmt aðaluppdráttum dags. 8.10.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað. Athugasemdir sem fram komu við yfirferð aðaluppdrátta verða sendar hönnuði til úrbóta.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 14. fundur - 28.10.2026
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Bents Larsens Fróðasonar, fh. Rafkvik ehf., um byggingarheimild til byggingar þriggja smáhýsa til útleigu, hvert um sig 20,3 m² að stærð, samtals 60,9 m², samkvæmt aðaluppdráttum dags. 8.10.2026.
Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 20.10.2026.

Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Leggja þarf fram viðeigandi vottanir og fylgigögn vegna innflutts, fullbúins húss sem staðfesta að mannvirkið uppfylli kröfur byggingarreglugerðar nr. 112/2012, meðal annars hvað varðar burðarþol, brunavarnir, einangrun, glugga og gler, þ.m.t. vindálagsþol glugga, og aðra viðeigandi byggingarhluta.