Málsnúmer 2610113
Vakta málsnúmerByggðarráð Rangárþings ytra - 5. fundur - 28.10.2026
Sveitarstjórn hefur ákveðið að heimila byggingu 10 íbúða húss á lóðinni Melöldu 6 á Hellu. Breyting á deiliskipulagi hefur verið auglýst og bárust nokkrar umsagnir og athugasemd varðandi aukningu á umferð og fleira. Athugasemd í afgreiðslu HMS gerði það að verkum að gera þarf breytingar á aðalskipulagi til að heildaráformin nái fram að ganga. Um fullt ferli verður að ræða. Í millitíðinni er ákveðið að leggja fram tillögu að lítils háttar breytingu á gildandi deiliskipulagi þar sem einungis verður tekin fyrir breyting á samsettri lóð Lyngöldu 5 og Melöldu 6, hér eftir sem Melalda 6. Sú breyting sem um ræðir er að heimilt verður að byggja allt að 10 íbúða fjölbýlishús á lóðinni í stað tveggja einbýlishúsa áður. Umrædd breyting er í samræmi við ákvæði aðalskipulagsins hvað varðar landnotkun, byggðamynstur og þéttleika.
Talið er að 2-5 íbúðir í hinni almennu viðmiðunartöflu feli því ekki í sér fortakslaust hámark á fjölda íbúða í einstöku fjölbýlishúsi, enda er taflan samkvæmt orðalagi aðalskipulagsins sett fram til viðmiðunar við gerð og endurskoðun deiliskipulags.
Byggðaráð telur jafnframt ekki ástæðu til frekari grenndarkynningar þar sem búið er að auglýsa umrædd áform með auglýsingu deiliskipulagstillögu á fyrri stigum og samþykkir því að skipulagsfulltrúa verði falið að birta auglýsingu um gildistöku þessarar breytingar í B-deild.
Samþykkt samhljóða.