Málsnúmer 2610123

Vakta málsnúmer

Oddi bs - 6. fundur - 02.11.2026

Stjórn Odda bs þakkar erindi frá foreldrafélagi Grunnskólans á Hellu þar sem óskað er eftir öryggismyndavélum á allt útisvæði skólans. Einnig er þess krafist að skólalóðin verði kláruð.

Framkvæmdarstjóra falið að fara í kostnaðarmat vegna uppsetningar öryggismyndavéla fyrir bæði Hellu og Laugaland og að það verði tekið til umfjöllunar á næsta fundi Odda bs.

Hafnar eru framkvæmdir við skólalóðina á milli grunnskólabyggingu og íþróttahús og lýkur þeim í nóvember. Heildarframkvæmdum á skólalóð lýkur ekki fyrr en framkvæmdum við leikskólabyggingu er lokið að mestu.

Samþykkt samhljóða.