12. fundur 10. desember 2024 kl. 16:00 - 16:45 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Berglind Kristinsdóttir formaður
  • Brynhildur Sighvatsdóttir aðalmaður
  • Hanna Valdís Guðjónsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Arndís Þórðardóttir aðalmaður
  • Viðar M. Þorsteinsson varamaður
Starfsmenn
  • Ösp Viðarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Berglind Kristinsdóttir formaður

1.Reiðhjólabændur - viðburður 21. júní 2025

2411047

Nefndin fagnar þessum öfluga hópi og veitir vilyrði fyrir viðburðinum fyrir sitt leyti.

2.Heimasíða sveitarfélagsins

2302008

Farið yfir drög að nýrri hönnun heimasíðu sveitarfélagsins. Nefndin tekur vel í fyrirhugaðar breytingar.

3.Slagorð sveitarfélagsins

2411059

Nefndin tók fyrir ábendingu sem var send inn í hugmyndagátt sveitarfélagsins. Ábendingin snerist um að breyta ætti slagorði sveitarfélagsins vegna þess að það væri það sama og slagorð stjórnmálaflokks, en slagorðið er „Fyrir okkur öll“. Við nánari athugun er slagorðið ekki eingöngu tengt viðkomandi stjórnmálaflokki heldur hafa margir nýtt sér það, enda hefur það breiða skírskotun. Hugmyndasamkeppni var haldin árið 2021 um slagorð sveitarfélagsins og var slagorðið valið úr innsendum tillögum.
Nefndin telur ekki ástæðu til að breyta slagorðinu að svo stöddu.

Fundi slitið - kl. 16:45.