1.Fjölmenningarráð - tillögur og val 2025
Málsnúmer 2502026Vakta málsnúmer
Farið yfir tilnefningar og framboð til setu í fjölmenningarráði Rangárþings ytra.
Nefndin fór yfir framboð og tilnefningar sem borist hafa. Nefndinni líst vel á alla aðila og felur Jóhanni G. Jóhannssyni að hafa samband við viðkomandi og vinna málið áfram.
2.Jarðarfarir - fánamál
Málsnúmer 2502027Vakta málsnúmer
Farið yfir erindi um fánamál vegna jarðarfara og bókun íbúaráðs um málið tekin til umfjöllunar.
Nefndin er sammála bókun íbúaráðs um málið og leggur til að verklagið sem þar kemur fram verði tekið upp.
Bókunin er svohljóðandi:
Íbúaráð leggur til að flöggun íslenska fánans á stöngum sveitarfélagsins vegna jarðarfara verði á ábyrgð aðstandenda vegna jafnræðissjónarmiða. Lagt er til að fáni verði aðgengilegur í íþróttamiðstöðinni á Hellu þar sem aðstandendur geta nálgast hann vegna útfara í sveitarfélaginu.
Ráðið leggur áherslu á að þessi breyting verði kynnt vel á miðlum sveitarfélagsins. Einnig þarf að kynna þetta vel fyrir prestum, útfarastjórum og öðrum aðilum sem koma að jarðarförum.
Hingað til hefur þetta verið í umsjón starfsmanna þjónustumiðstöðvar en erfitt hefur verið að gæta jafnræðis þar sem sveitarfélagið er ekki alltaf látið vita af útförum á svæðinu.

3.Njáludagar
Málsnúmer 2502048Vakta málsnúmer
Hugmyndir um Njáludaga í Rangárþingi kynntar.
Nefndinni líst vel á áformin og hlakkar til að fylgjast með framvindunni. Nefndin bendir á að verkefnið gæti verið styrkhæft undir Menningarsjóði Rangárþings ytra og hvetur hópinn til að senda inn umsókn þegar opnað verður fyrir umsóknir í apríl næstkomandi.
4.App-smáforrit - Rangárþing ytra
Málsnúmer 2502007Vakta málsnúmer
Gögn varðandi íbúaapp kynntar.
Nefndin þakkar fyrir samantekt málsins. Ekki er ráðrúm í fjárhagsáætlun fyrir íbúaappi á þessu ári en nefndin vill halda málinu lifandi og meta stöðuna eftir því sem fram vindur.
Ábendingar um notkun slíks smáforrits beinist til markaðs- og kynningarfulltrúa á osp@ry.is
Ábendingar um notkun slíks smáforrits beinist til markaðs- og kynningarfulltrúa á osp@ry.is
5.Menningarstyrkur RY
Málsnúmer 2407006Vakta málsnúmer
Seinni umræða um breytingar á reglum Menningarsjóðs Rangárþings ytra.
Nefndin samþykkir breytingar á reglum og leggur þær fyrir sveitarstjórn til samþykktar.
6.Hús frítímans
Málsnúmer 2502072Vakta málsnúmer
Hugmynd um „Hús frítímans“ kynnt. Hugmyndin byggir á reynslu frá á Sauðárkróki þar sem „Hús frítímans“ er miðstöð frístundastarfs í Skagafirði sem býður upp á fjölbreytta starfsemi fyrir alla aldurshópa.
Nefndin fór yfir kynninguna og beinir því til sveitarstjórnar að skoða fram komin gögn og taka afstöðu til næstu skrefa. Nefndinni líst mjög vel á hugmyndina og telur að slíkt húsnæði yrði til mikilla hagsbóta fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Nefndin leggur til að skoðað verði að nýta húsnæði sem losna þegar leikskóli og tónlistarskóli flytja í nýbyggingar skólanna.
Nefndin leggur til að skoðað verði að nýta húsnæði sem losna þegar leikskóli og tónlistarskóli flytja í nýbyggingar skólanna.
Fundi slitið - kl. 17:20.