15. fundur 06. maí 2025 kl. 16:00 - 18:44 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Berglind Kristinsdóttir formaður
  • Sigríður Arndís Þórðardóttir aðalmaður
  • Viðar M. Þorsteinsson aðalmaður
  • Brynhildur Sighvatsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Ösp Viðarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Berglind Kristinsdóttir formaður

1.Njáludagar

2502048

Nefndin tekur vel í erindið og þakkar Guðna og hópnum fyrir gott framtak og áhugaverðar áætlanir.
Nefndin leggur til að sveitarfélagið taki þátt í verkefninu með þeim hætti sem rætt hefur verið, með vinnuframlagi markaðs- og kynningarfulltrúa við undirbúning og kynningu viðburðarins.
Nefndin hvetur einnig til þess að viðburðurinn fari einnig fram í Rangárþingi ytra, svo sem í Odda og/eða á Keldum.

2.Menningarstyrkur RY

2407006

Nefndin fór yfir innsendar umsóknir sem voru 9 talsins. Nefndin þakkar umsækjendum fyrir spennandi umsóknir.
Búið er að ákveða úthlutun styrkja og hafa umsækjendur fengið svarbréf.

Upplýsingar um niðurstöður úthlutunar má nálgast með því að smella á skjalið í viðhengi hér fyrir neðan.

3.17. júní - aðalmál

2501018

Í tilefni þess að 25 ár eru liðin frá Suðurlandsskjálftanum, þann 17. júní árið 2000 þegar fjölmargir Hellubúar voru staddir í íþróttahúsinu á Hellu þar sem 17. júní skemmtun var haldin þar í fyrsta sinn, leggur nefndin áherslu á að halda hátíðina inni í íþróttahúsinu á Hellu.

4.Töðugjöld - aðalmál

2501016

Farið yfir skipulag Töðugjalda og staðan tekin. Stefnir í góð Töðugjöld.

5.Ferðamálastefna

2504053

Rætt hvort skoða eigi að Rangárþing ytra marki sér ferðamálastefnu. Nefndin leggur til að skoðað verði hvort fýsilegt sé að ráðast í gerð ferðamálastefnu, með hvaða hætti og hvort slík stefna ætti jafnvel að vera samstarf fleiri sveitarfélaga.

6.Skjálftasögur - 25 ár frá Suðurlandsskjálftum 2000

2504080

Nefndin fagnar þessari góðu hugmynd og hvetur fólk til að taka þátt og miðla sinni upplifun á þessum atburði.

Fundi slitið - kl. 18:44.