18. fundur 04. nóvember 2025 kl. 16:30 - 18:30 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Berglind Kristinsdóttir formaður
  • Hanna Valdís Guðjónsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Arndís Þórðardóttir aðalmaður
  • Viðar M. Þorsteinsson aðalmaður
  • Brynhildur Sighvatsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Ösp Viðarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Berglind Kristinsdóttir formaður

1.Menningarstyrkur RY

2407006

Haustúthlutun 2025 kynnt
Menningarsjóður Rangárþings ytra
Seinni úthlutun 2025

Menningarsjóður er nú á sínu þriðja starfsári og á þessum stutta tíma hefur hann orðið mikilvægur stökkpallur fyrir menningarlíf í sveitarfélaginu. Umsóknum hefur fjölgað jafnt og þétt, gæði umsókna fara sífellt batnandi og öll verkefnin sem óska eftir styrk eru áhugaverð og verðug stuðnings.
Það er þó vissulega þannig að ekki er hægt að styðja við öll verkefni og því hefur markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd fengið það strembna en skemmtilega verkefni að velja styrkhafa hverju sinni.
Sjóðurinn hækkaði töluvert milli ára og fyrir það ber að þakka. Í ár voru 1.250 þúsund eyrnamerkt menningarsjóðnum, eða 625 þúsund í hvorri úthlutun.
Verkefnin sem hafa fengið styrk til þessa eru afar fjölbreytt. Má þar nefna leikhúsverk, tónleika, söngleik og ljósmyndaverkefni. Við val verkefna er farið í gegnum stigagjöf þar sem hvert verkefni er metið út frá ýmsum þáttum.
Umsóknirnar að þessu sinni voru einstaklega sterkar og spennandi, hver annarri áhugaverðari og allar samfélagslega mikilvægar á sinn hátt.
Markaðs-, menningar-, og jafnréttismálanefnd leggur því til að hækka úthlutunarupphæð seinni úthlutunar úr 625.000 í 1.250.000 og verði því mætt með því að hluti styrkjanna bókist á deild 0574 (Ýmsar hátíðir) og lykil 9991 (Aðrir styrkir og framlög). Þar er áætluð, ónýtt upphæð sem nefndin leggur til að verði nýtt í þessari úthlutun.
Í þessari umferð bárust alls 7 gildar umsóknir að upphæð samtals 4.110.000. Verkefnin sem nefndin hefur valið sem styrkþega eru eftirfarandi:

-Hringur, kór eldri borgara
Sækja um styrk til að búa til heimildarmyndband um starfsemi kórsins.
Upphæð styrks: 300.000

-Vox Rangárþing
Sækja um styrk fyrir vortónleikum Vox Rangárþing
Upphæð styrks: 400.000

-Leikfélag Rangæinga
Sækja um styrk fyrir uppsetningu leikverksins „Klerkar í klípu“
Upphæð styrks: 400.000

-Sara Mjöll Magnúsdóttir
Sækir um styrk til að halda útgáfutónleika plötu sinnar „A Place to Bloom“ í heimabyggð
Upphæð styrks: 150.000

Nefndin þakkar öllum umsækjendum og óskar þeim öllum alls hins besta með sín verkefni og minnir á úthlutun næsta árs fyrir þau sem ekki hlutu styrk að þessu sinni.

2.Fjölmenningarstefna og aðgerðaáætlun

2510096

Fjölmenningarstefna og aðgerðaáætlun sem fjölmenningarráð hefur samþykkt og sendir nú markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd til staðfestingar.
Nefndin samþykkir stefnuna og vísar henni til sveitarstjórnar til staðfestingar.

3.Kynningarátak 2026

2510228

Umræður og hugmyndavinna vegna fyrirhugaðs kynningarátaks sveitarfélagsins 2026.
Markaðs- og kynningarfulltrúi lagði fram til kynningar drónamyndskeið sem hafa verið tekin markvisst fyrir sveitarfélagið undanfarið. Nefndin felur markaðs- og kynningarfulltrúa að vinna drög að kynningaráætlun sem verður unnin áfram á næstu mánuðum.

4.Töðugjöld - íbúakönnun

2510257

Umræða um fyrirhugaða íbúakönnun um framtíð Töðugjalda. Ákvörðun tekin um spurningar og tímaramma.
Nefndin hefur sett saman íbúakönnun sem verður send út rafrænt og niðurstöður teknar til umræðu á íbúafundi 1. desember næstkomandi. Nefndin hvetur íbúa til að taka þátt og mæta á íbúafundinn.

5.Jólatré 2025 - árbakkinn

2510258

Skipulag viðburðarins „Jólaljósin kveikt á árbakkanum“.
Nefndin leggur áherslu á að skipuleggja viðburðinn vel og biðlar til foreldra að mæta með sínum börnum og brýna fyrir þeim að vera kurteis við jólasveinana og aðra gesti viðburðarins.
Áætlað er að fá aðila til að sjá um tónlist og stjórna viðburðinum.
Nefndin leggur til að viðburðurinn verði föstudaginn 28. nóvember kl. 16:30 og vonast nefndin til að með þessari breytingu komist fleiri foreldrar með börnum sínum á viðburðinn.

6.Kaffisamsæti eldri borgara 2026

2510259

Skipulag kaffisamsætis eldri borgara sem haldið verður í janúar 2026.
Nefndin leggur til að halda viðburðinn í Þykkvabæ laugardaginn 10. janúar kl. 14.
Kallað verður eftir tilnefningum um samborgara Rangárþings ytra og viðurkenningin afhent á viðburðinum.

7.Jólaskreytingar

2411012

Jólaskreytingar 2025.
Nefndin fagnar þeirri ákvörðun að skreyta eigi tvö jólatré á árbakkanum í stað eins.
Leyfi hefur fengist frá neyðarlínunni til að skreyta fjarskiptamastrið á hólnum á Hellu og vill nefndin að unnið verði að því að koma upp ljósaseríum þar.

Nefndin ætlar að efna til jólaskreytingakeppni eins og undanfarin ár. Keppt verður í þremur flokkum.
-Best skreytta húsið
-Best skreytta tréð
-Best skreytta fyrirtækið

Hvetjum fyrirtæki sérstaklega til að skreyta hressilega fyrir jólin.

8.Lýðræðisþátttaka innflytjenda Immigrant democratic engagement

2510278

Verkefnið snýst um kynningarátak til að hvetja innflytjendur til að taka þátt í kosningum.
Nefndin leggur til að fjallað verði um málið í fjölmenningarráði og að meðlimir þess komi að mótun verkefnisins ásamt íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa.
Áætlað er að vinna verkefnið í samstarfi við Rangárþing eystra og Ásahrepp.

Fundi slitið - kl. 18:30.