1.Fundargerðir stjórnar og starfsáætlun 2025 - Markaðsstofa Suðurlands
2503013
Fundargerð stjórnar Markaðsstofu Suðurlands lögð fram til kynningar.
Nefndin þakkar Markaðsstofunni fyrir góða skýrslu.
2.Samborgari Rangárþings ytra 2025
2511113
Farið yfir tilnefningar til samborgara Rangárþings ytra 2025.
Nefndin þakkar fyrir allar tilnefningarnar sem bárust.
Tekin hefur verið ákvörðun um úthlutun viðurkenninga og voru allir meðlimir sammála.
Niðurstöður verða kynntar í kaffisamsæti eldri borgara 10. janúar næstkomandi sem fram fer í íþróttahúsinu í Þykkvabæ.
Niðurstöður og aðrar tilnefningar verða í kjölfarið kynntar á heimasíðu sveitarfélagsins, ry.is.

3.Kaup á færanlegu sviði
2511111
Farið yfir fyrirspurn Bjarka Eiríkssonar varðandi beiðni um kaup á sviði til viðburðahalda.
Nefndin þakkar Bjarka fyrir áhugaverða hugmynd. Að svo stöddu telur nefndin að slík fjárfesting sé ekki forsvaranleg og hafnar beiðninni fyrir sitt leyti.
4.Töðugjöld - íbúakönnun
2510257
Farið yfir niðurstöður íbúakönnunar um framtíð Töðugjalda og umræður sem fóru fram um Töðugjöld á íbúafundi 1. desember 2025.
Nefndin þakkar fyrir góða þátttöku í könnuninni og allar góðu hugmyndirnar og ábendingarnar sem bárust.
Nú hefst vinna við undirbúning næstu Töðugjalda og rýning á niðurstöðum könnunarinnar.
Nú hefst vinna við undirbúning næstu Töðugjalda og rýning á niðurstöðum könnunarinnar.
5.Jólaskreytingar
2411012
Nefndin lýsir yfir ánægju með jólaskreytingar í sveitarfélaginu en telur ástæðu til að gera athugasemd við tímann sem það tók að framkvæma samþykktar og fjármagnaðar tillögur nefndarinnar um að skreyta annað tré á árbakkanum og mastrið á hólnum. Tillögurnar voru samþykktar 2024 en komust ekki til framkvæmda fyrr en síðla árs 2025 og mastrið ekki skreytt fyrr en rétt fyrir jólin 2025 vegna þess að innkaup á seríum drógust.
Fundi slitið.