20. fundur 03. mars 2026 kl. 16:00 - 17:30 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Berglind Kristinsdóttir formaður
  • Hanna Valdís Guðjónsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Arndís Þórðardóttir aðalmaður
  • Daníel Freyr Steinarsson aðalmaður
  • Viðar M. Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Ösp Viðarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Berglind Kristinsdóttir formaður

1.Töðugjöld 2026

2602019

Farið yfir drög að skipulagi Töðugjalda 2026.
Markaðs- og kynningarfulltrúi fer yfir drög að skipulagi Töðugjalda.
Dagskrá er í vinnslu.
Nefndin leggur til að fjölskyldudagskrá laugardagsins verði haldin í íþróttahúsinu á Hellu og svæðinu þar í kring og að kvöldvakan verði haldin á Gaddstaðaflötum.
Markaðs- og kynningarfulltrúa falið að ræða við landeigendur og umsjónaraðila Gaddstaðaflata um möguleika á slíku.

2.Borðkort RY - uppfærsla 2026

2602053

Farið yfir uppfærslu þjónustukorta Rangárþings ytra.
Kortin voru síðast uppfærð 2022. Haft var samband við aðilana sem voru skráðir á kortið og það uppfært samkvæmt upplýsingum frá þeim. Einnig var auglýst eftir uppfærslum og ábendingum á heimasíðu sveitarfélagsins, Facebook-síðu þess, Facebook-síðu ferðaþjónustuaðila á svæðinu og íbúasíðum.
Stefnt er að uppfærðri útgáfu með vorinu.

3.Menningarstyrkur 2026

2602054

Farið yfir áætlun vegna úthlutunar úr menningarsjóði Rangárþings ytra 2026.
Úthlutanir úr menningarsjóði verða tvær árið 2026; ein að vori og ein að hausti.
Opið verður fyrir umsóknir í fyrri úthlutun frá 1. mars til 1. apríl og í seinni úthlutun frá 1. september til 1. október samkvæmt reglum sjóðsins.
Til úthlutunar í ár eru kr. 2.000.000 og verður helmingi úthlutað í fyrri úthlutun og helmingi í seinni úthlutun.
Nefndin hvetur fólk til að kynna sér reglurnar vel og vanda umsóknir. Minnt er á að hægt er að fá gjaldfrjálsa ráðgjöf hjá sveitarfélaginu við vinnslu umsókna. Hægt er að senda fyrirspurnir á ry@ry.is eða hringja í síma 4887000 á opnunartíma skrifstofu.

4.Barnamenningarhátíð 2026

2601016

Farið yfir hugmyndir um barnamenningarhátíð.
Fyrr á árinu kom hugmynd frá SASS um að sveitarfélög á Suðurlandi töluðu sig saman um að halda barnamenningarhátíð eða barnamenningardaga á vordögum 2026. Áherslan er á samstarf, samnýtingu hugmynda og að skapa sýnileika fyrir barnamenningu á Suðurlandi í heild, án þess að leggja óhóflegt álag á einstök sveitarfélög.
Ætlunin er að taka þátt með viðburðum á sumardaginn fyrsta og að í framhaldinu verði skoðað hvort hægt sé að bæta í á næsta ári með meiri dagskrá.

5.Fjölmenningarhátíð 2026

2505076

Fjölmenningarhátíð Rangárþings ytra og Rangárþings eystra verður haldin 9. maí næstkomandi.
Fjölmenningarhátíðin verður haldin í íþróttahúsinu á Hellu og hvetur nefndin fólk til að fjölmenna. Á hátíðinni býðst fólki að kynna menningu sinnar upprunaþjóðar og er viðburðurinn frábært tækifæri til að hittast, spjalla, njóta og fræðast.

6.Víkingurinn 2026

2602063

Lögð fram beiðni forsvarsmanna Víkingsins 2026.
Víkingurinn er keppni sterkustu manna landsins og fer fram dagana 24.?26. júlí 2026. Keppnin fer fram í 4 sveitarfélögum og henni er sjónvarpað á RÚV.
Forsvarsmenn keppninnar óska eftir gistiaðstöðu, einni máltíð og styrk upp á kr. 250.000.
Nefndin tekur vel í beiðnina og samþykkir fyrir sitt leyti að taka á móti þeim en óskar jafnframt eftir því, ef af verður, að myndskeið úr sveitarfélaginu fylgi útsendu efni. Nefndin getur aðstoðað við að finna hentuga staði til upptöku eða jafnvel útvegað myndefni að hluta til.

Fundi slitið - kl. 17:30.