1.Menningarstyrkur 2026
Málsnúmer 2602054Vakta málsnúmer
Farið yfir umsóknir um menningarstyrk Rangárþings ytra - vorúthlutun 2026.
2.Töðugjöld 2026
Málsnúmer 2602019Vakta málsnúmer
Nefndin fór yfir skipulag Töðugjalda. Markaðs- og kynningarfulltrúi vinnur að skipulaginu og mun koma nýjum starfsmanni inn í verkefnið á næstu vikum.
3.17. júní 2026
Málsnúmer 2603088Vakta málsnúmer
Nefndin fór yfir skipulag 17. júní á Hellu. Skipulag gengur vel og verður tilbúið á næstu vikum.
4.Fjölmenningarhátíð 2026
Málsnúmer 2505076Vakta málsnúmer
Nefndin hvetur alla til að mæta á fjölmenningarhátíð 9. maí næstkomandi í íþróttahúsinu á Hellu og leggur til að sveitarfélagið kynni viðburðinn vel.
5.Lýðræðisþátttaka innflytjenda - Immigrant democratic engagement
Málsnúmer 2510278Vakta málsnúmer
Nefndin hvetur íbúa af erlendum uppruna til að mæta á kynningarfund í Hvolnum á Hvolsvelli 6. maí næstkomandi og á framboðsfund framboðanna í Rangárþingi ytra 7. maí næstkomandi. Einnig hvetur nefndin íbúa af erlendum uppruna til að nýta kosningarétt sinn í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí.
Fundi slitið.
Niðurstöður verða kynntar um miðjan maí næstkomandi.