26. fundur 24. júní 2024 kl. 08:15 - 09:35 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir aðalmaður
  • Eggert Valur Guðmundsson formaður
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðalmaður
  • Ísleifur Jónasson aðalmaður
Starfsmenn
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
  • Jón G. Valgeirsson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri

1.Rekstraryfirlit Odda bs. 2024

2402043

Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir rekstur byggðasamlagsins janúar-maí 2024.

2.Skólastjórar Odda bs. Stöðuyfirlit.

2401049

Á fundinn mæta Kristín Sigfúsdóttir skólastjóri grunnskólans á Hellu og Jónas Bergmann Magnússon skólastjóri grunnskólans á Laugalandi og gera grein fyrir stöðu mála í sínum skólum. Fram kom hjá skólastjórunum að búið er að ganga frá mannaráðningum í skólunum að mestu leyti fyrir næsta skólaár. Gert er ráð fyrir að samtals verði fjöldi nemenda í grunnskólum Odda bs. um 270 sem er um 7-8% fjölgun á milli skólaára.

Stjórn þakkar skólastjórunum fyrir upplýsingarnar.

3.Ósk um aukið stöðugildi

2405026

Lögð fram beiðni frá Grunnskólanum á Hellu um 70% aukið stöðugildi stuðningsfulltrúa skólárið 2024-2025 vegna aukins stuðnings vegna nemenda.

Stjórn Odda bs. samþykkir beiðnina til áramóta 2024 og vísar málinu til viðauka við fjárhagsáætlun 2024.

4.Upplýsingar til sveitarfélaga frá fræðsluyfirvöldum í Grindavík

2311043

Lögð fram beiðni frá Grindavíkurbæ varðandi uppgör vegna grunnskólabarna úr Grindavík skólaárið 2023-2024.

Stjórn Odda bs. samþykkir beiðni Grindavíkurbæjar að falla frá greiðsluþátttöku vegna tveggja barna sem voru í skólum Odda.

Samþykkt samhljóða.

5.Endurmenntunarsjóður grunnskóla - úthlutun 2024

2405006

Lagt fram til kynningar.

6.Þróun leikskólastarfs

2403081

Fundargerð starfshóps frá 30. maí s.l.

Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

7.Niðurstöður innra mats. Leikskólinn Laugalandi

2405044

Lagt fram til kynningar.

8.Samantekt úr foreldrakönnun Heklukots

2405049

Lagt fram til kynningar.

9.Árskýrsla skólaþjónustunnar 2023

Stjórn ákveður að næsti stjórnarfundur Odda bs. verði mánudaginn 19. ágúst nk. kl. 8:15.

Fundi slitið - kl. 09:35.