30. fundur 07. október 2024 kl. 16:00 - 17:45 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir aðalmaður
  • Eggert Valur Guðmundsson formaður
  • Björk Grétarsdóttir varamaður
  • Ísleifur Jónasson aðalmaður
Starfsmenn
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
  • Jón G. Valgeirsson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Á haustfund Odda mæta einnig:
Sigrún Björk Benedikstdóttir embættismaður
Ingigerður Stefánsdóttir embættismaður
Kristín Sigfúsdóttir embættismaður
Jónas Bergmann Magnússon embættismaður
Hrafnhildur Andrésdóttir áheyrnarfulltrúi
Sólrún Helga Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
Fríða Björg Þorbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi
Kristín Ósk Ómarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Bjarki Eiríksson áheyrnarfulltrúi

1.Mannauðsmál skólanna

2410005

Í upphafi skólaárs er gert ráð fyrir að skólastjórar geri fræðslunefnd grein fyrir stöðunni í starfsmannamálum hvað varðar starfsþróun og endurmenntun og leggja fram áætlun fyrir yfirstandandi skólaár.

Skólastjórar leik- og grunnskóla fóru yfir starfsmannamál og áætlanir um endur- og símenntun og lögðu fram gögn til kynningar sem fylgja með fundargerðinni. Einnig fóru þeir yfir fjölda nemenda við hvern skóla. Alls eru 273 börn í grunnskólum haustið 2024 en voru 246 haustið 2024 og 119 börn í leikskólunum haustið 2024 en voru 118 haustið 2023.

2.Aðstaða og búnaður skólanna

2410006

Árlega er gert ráð fyrir að skólastjórar þörf fyrir endurnýjun kennslutækja, þörf fyrir annan búnað og húsnæði í samræmi við þróun nemendafjölda og kennsluhátta og upplýsi fræðslunefnd um stöðu mála.

Skólastjórar leik- og grunnskóla greindu frá stöðu mála varðandi búnað og aðstöðu og fóru yfir atriði sem snúa að þróun skólastarfsins. Þá lögðu þeir fram gögn um þessi atriði til kynningar sem fylgja með fundargerðinni. Nánar verður unnið með þessi atriði nú þegar vinna við fjárhagsáætlun Odda bs fyrir næsta ár er hafin.

3.Þróun leikskólastarfs

2403081

Lögð fram skýrsla starfshóps um þróun leikskólastarfs þar sem lagar eru fram tíu tillögur til úrbóta við þróun og styrkingu leikskólastarfs. Tillögurnar voru eftirfarandi:

1. Foreldrum yngstu barnanna verði boðnar hærri heimgreiðslur og að þær verði hækkaðar að lágmarki um helming og eins verði gerð tilraun til hlutagreiðslna.
2. Markvisst verði unnið að því að starfsfólk geti fengið fulla vinnutímastyttingu.
3. Starfstími leikskólanna verði til kl. 14.00 á föstudögum. Eftir það verði aðeins gæsla í
boði fyrir foreldra sem búa við sérstakar aðstæður, gegn skráningu. Hið sama gildi um
hátíðar, þ.e. milli jóla og nýárs og í dymbilviku.
4. Dvalartími yngstu barnanna (12-18 mánaða) verði að jafnaði miðaður við sex klst að hámarki.
Gert er ráð fyrir því að hægt verði að sækja um lengri dvalartíma gegn rökstuðningi.
5. Báðir leikskólarnir geri tilraunir til að koma til móts við starfsfólk um sveigjanlegan
vinnutíma.
6. Boðið verði upp á sveigjanlegan dvalartíma fyrir börnin.
7. Jafnræðis sé gætt varðandi bifreiðastyrki (og miðist við þá sem eru í 50% vinnu eða meira).
8. Skoðaðir verði möguleikar á að veita starfsfólki leikskólanna aukna menntunarstyrki enda
nýtast þeir beint í leikskólastarfinu.
9. Í tengslum við mótun starfsmannastefnu verði sérstaklega skoðaðir möguleikar á að gera
starfsfólki, með annað móðurmál en íslensku, kleift að sækja íslenskunámskeið á vinnutíma.
10.Starfsfólki verði gert kleift að fara til sérfræðinga (lækna, sálfræðinga eða annarra
heilbrigðisstétta) á vinnutíma eftir tilvísun án þess að laun skerðist.

Í þessum tillögum er gengið úr frá því að dvalartími barnanna sé skilgreindur annars vegar sem tími markviss uppeldisstarfs (9.00-14.00) og gæslu (8.00-9.00 og eftir kl. 14.00).

Stjórn Odda samþykkir að tillögur númer 1, 3, 4 og 6 fari í nánari vinnslu. Tillögur 8-10 verði vísað til endurskoðun á starfsmannastefnu en aðrar tillögur komi til skoðunar hjá leikskólastjórum. Samhliða tillögum sem fara í vinnslu þarf að uppfæra og breyta gjaldskrá leikskólana þannig að hún styðji betur við markmið breytingana.

4.Málefni barna og ungmenna

2409055

Rætt um málefni barna og ungmenna og þá umræðu sem hefur verið vegna atburða sem hafa komið upp í þjóðfélaginu.

Stjórn Odda leggur til að gera þurfi aðgerðaráætlun til vinna að þessum málum og vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar.

Fundi slitið - kl. 17:45.