41. fundur 01. október 2025 kl. 08:15 - 09:30 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir aðalmaður
  • Eggert Valur Guðmundsson formaður
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðalmaður
  • Ísleifur Jónasson aðalmaður
Starfsmenn
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
  • Jón G. Valgeirsson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri, sat fundinn undir liðum 1-2.

1.Rekstraryfirlit Odda bs. 2025

2503077

Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir rekstur byggðasamlagsins janúar-ágúst 2025.

2.Fjárhagsáætlun Odda bs. 2026

2509006

Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri, fór yfir undirbúning fjárhagsáætlunar Odda bs. fyrir árið 2026.

3.Skólastjórar Odda bs. Stöðuyfirlit 2025.

2501053

Á fundinn mæta Guðbjörg Matthíasdóttir aðstoðarleikskólastjóri á Laugalandi og Ingigerður Stefánsdóttir leikskólastjóri Heklukots og fara yfir stöðu mála í sínum skólum.

Stjórn þakkar skólastjórunum fyrir upplýsingarnar.

4.Skólamál Meðferðarheimilisins Lækjarbakka

2504060

Lögð fram drög að samningi frá BOFS við Odda bs (Grunnskólann á Hellu) um 1,5 stöðugildi kennara og aðstöðu í Helluskóla fyrir skjólstæðinga Meðferðarheimilisins Lækjarbakka í Gunnarsholti.

Stjórn Odda felur framkvæmdastjóra og formanni stjórnar í samstarfi við Grunnskólann á Hellu að ræða við BOFS um samningsforsendur.

Samþykkt samhljóða.

Fundi slitið - kl. 09:30.