Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri, sat fundinn undir liðum 1 og 2.
1.Gjaldskrá Odda bs. 2026
2510266
Lögð fram og rædd tillaga að gjaldskrá fyrir Odda bs fyrir árið 2026. Lagðar eru til lítisháttar breytingar til einföldunar varðandi stigskiptingu gjaldskrárinnar.
Gert er ráð fyrir að leikskólagjöld, fæðisgjöld, gjöld vegna skóladagheimila og önnur gjöld hækki í samræmi við verðlagsþróun.
Gjaldskráin tekur gildi 1. janúar 2026.
Gjaldskráin samþykkt samhljóða.
Gert er ráð fyrir að leikskólagjöld, fæðisgjöld, gjöld vegna skóladagheimila og önnur gjöld hækki í samræmi við verðlagsþróun.
Gjaldskráin tekur gildi 1. janúar 2026.
Gjaldskráin samþykkt samhljóða.
2.Fjárhagsáætlun Odda bs. 2026
2509006
Lögð er fram og rædd tillaga að fjárhagsáætlun 2026 fyrir Odda bs. Stjórnin hefur átt vinnufund m.a. með öllum skólastjórum byggðasamlagsins og farið yfir þeirra áherslur.
Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður sveitarfélaganna vegna Odda bs verði kr. 1.945.856.000 sem er 9,2% hækkun frá áætlun síðasta árs en 4,1% án innri leigu en hún hækkar verulega vegna nýbyggingar Grunnskólans á Hellu. Framlögin skiptast þannig að hlutur Rangárþings ytra verður kr. 1.724.187.607 og hlutur Ásahrepps kr. 221.668.393. Áætlunin miðar við fjölda grunn- og leikskólabarna þann 1. október 2025 sem er 277 grunnskólabörn og leikskólabörn sem telja 149 barngildi. Tillaga er um að samþykkja fjárhagsáætlun 2026 fyrir Odda bs.
Samþykkt samhljóða.

3.Skólastjórar Odda bs. Stöðuyfirlit 2025.
2501053
Á fundinn mæta Kristinn Ingi Guðnason aðstoðarskólastjóri Grunnskólans á Hellu og Ragna Magnúsdóttir aðstoðarskólastjóri Laugalandsskóla og gera grein fyrir stöðu mála í sínum skólum.
Stjórn þakkar skólastjórunum fyrir upplýsingarnar.
Stjórn þakkar skólastjórunum fyrir upplýsingarnar.
4.Símareglur í Laugalandsskóla
2510168
Lögð fram fyrirspurn frá Freyju Dögg Vignisdóttur varðandi farsímareglur í Laugalandsskóla. Lagðar fram upplýsingar frá skólastjóra um innleiðingu á reglunum.
Stjórn þakkar fyrir ábendinguna. Í samtali við aðstoðarskólastjóra í Laugalandsskóla og Grunnskólanum á Hellu kemur fram að reglurnar eru mjög áþekkar. Stjórn felur skólastjórum að samræma reglurnar eins og kostur er.

5.Beiðni um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
2510173
Trúnðarmál
Fært í trúnðarmálabók.
6.Leikskólinn Laugalandi - Beiðni um úthlutun útikennslusvæðis
2510061
Lagt fram erindi frá Leikskólanum Laugalandi, ósk um að Leikskólinn fái úthlutað afgirtu landi Mýrarkots sem afmælisgjöf í tilefni 30 ára afmæli Leikskólans.
Stjórn Odda bs. þakkar fyrir erindi Leikskólans á Laugalandi og finnst hugmyndin góð. Stjórn Húsakynna hefur samþykkt að framkvæmdin fari inn á fjárhagsáætlun 2026.

7.Umsjón bókasafnsins í Þykkvabæ
2510009
Lagt fram erindi frá íbúum í Þykkvabæ þar sam farið er fram á að bókasafningu í Þykkvabæ sem staðsett er í íþróttahúsinu verði haldið opnu einu sinni í viku í klukkutíma í senn á tímabilinu október til maí.
Stjórn Odda felur sveitarstjóra að skoða leiðir til að halda bókasafninu opnu í samræmi við framangreindar óskir.
Samþykkt samhljóða.
Stjórn Odda felur sveitarstjóra að skoða leiðir til að halda bókasafninu opnu í samræmi við framangreindar óskir.
Samþykkt samhljóða.
8.Ósk um samstarf vegna landsfyrirlagnar stöðu- og framvinduprófa í lesskilningi og stærðfræði
2510311
Lagt fram til kynningar.
9.Úthlutun úr Námsgagnasjóði 2025
2510182
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:30.