46. fundur 04. febrúar 2026 kl. 08:15 - 10:15 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir aðalmaður
  • Eggert Valur Guðmundsson formaður
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðalmaður
  • Ísleifur Jónasson aðalmaður
Starfsmenn
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
  • Jón G. Valgeirsson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Formaður lagði til að við dagskrána myndi bætast við tvö mál, liður 7,beiðni um skólavist utan lögheimilissveitarfélags og liður 8, skólaakstur.

Það var samþykkt samhljóða

1.Skólastjórar Odda bs. Stöðuyfirlit 2026

2601004

Á fundinn mæta Kristín Ósk Ómarsdóttir leikskólastjóri á Laugalandi og Ingigerður Stefánsdóttir leikskólastjóri Heklukots og fara yfir stöðu mála í sínum skólum.

Stjórn þakkar skólastjórunum fyrir upplýsingarnar.

2.Grunnskólinn Hellu. Endurskoðun starfsáætlunar

2601005

Lögð fram drög að endurskoðaðri starfsáætlun Grunnskólans á Hellu og tölvupóstur til foreldra þar sem áætlunin var kynnt.

Stjórn Odda bs. leggur til að að starfsáætlunin verði samþykkt.

Samþykkt samhljóða.

3.Ósk um breytingu á starfi - staða stjórnanda

2601066

Lögð fram beiðni Kristins Inga Austmar Guðnasonar, aðstoðarskólastjóra Grunnskólans á Hellu um leyfi frá störfum aðstoðarskólastjóra skólaárið 2026-2027 vegna náms.

Stjórn Odda bs. leggur til að samþykkja erindið og að auglýst verði eftir aðstoðarskólastjóra skólaárið 2026-2027.

Samþykkt samhljóða.

4.Skólamál Meðferðarheimilisins Lækjarbakka

2504060

Lagður fram samningur frá BOFS við Odda bs um skólaþjónustu Grunnskólans á Hellu fyrir skjólstæðinga Meðferðarheimilisins Lækjarbakka í Gunnarsholti.

Stjórn Odda leggur til að samþykkja samninginn og fela framkvæmdastjóra að undirrita hann.

Samþykkt samhljóða.

5.Verkefnastjóri fræðslumála

2601072

Lögð fram til kynningar drög að starfslýsingu verkefnastjóra fræðslumála fyrir Odda bs.

Stjórn samþykkir að fela formanni og framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.

6.Beiðni um skólavist í Hvolsskóla

2601073

Trúnaðarmál
Fært í trúnaðarmálabók.

7.Skólavist utan lögheimilissveitarfélags

2601360

Trúnaðarmál
Fært í trúnaðarmálabók.

8.Skólaakstur

2602003

Trúnaðarmál
Fært í trúnaðarmálabók.

Fundi slitið - kl. 10:15.