48. fundur 08. apríl 2026 kl. 08:15 - 10:30 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir aðalmaður
  • Eggert Valur Guðmundsson formaður
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðalmaður
  • Ísleifur Jónasson aðalmaður
Starfsmenn
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
  • Jón G. Valgeirsson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri

1.Afleysing skólastjóra

2511178

Á fundinn mætir Kristín Sigfúsdóttir, skólastjóri Grunnskólans á Hellu. Hún upplýsir að hún muni koma aftur til starfa frá og með 1. ágúst n.k.

2.Rekstraryfirlit Odda bs. 2026

2602071

Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir rekstur byggðasamlagsins janúar-febrúar 2026.

3.Skólastjórar Odda bs. Stöðuyfirlit 2026

2601004

Á fundinn mæta Kristín Ósk Ómarsdóttir leikskólastjóri á Laugalandi og Ingigerður Stefánsdóttir leikskólastjóri Heklukots og fara yfir stöðu mála í sínum skólum.

Stjórn þakkar skólastjórunum fyrir upplýsingarnar.

4.Tillaga að stjórnunarteymi Grunnskólans á Hellu

2603087

Á fundinn mætir Sigurjón Bjarnason, starfandi skólastjóri Grunnskólans á Hellu, og leggur fram tillögu að viðbótum við stjórnunarteymi skólans. Tillaga felur í sér að ráðið verði í stöðu deildarstjóra í 100% starf og verkefnisstjóra í 50% starf fyrir skólaárið 2026-2027.

Stjórn Odda bs. felur framkvæmdastjóra að kostnaðargreina þessar tillögur og áhrif þeirra á fjárhagsáætlun og leggja fyrir næsta fund.

5.Verkefnastjóri fræðslumála

2601072

Lögð fram starfslýsing verkefnastjóra fræðslumála fyrir Odda bs.

Stjórn Odda bs. samþykkir að fresta málinu til næsta fundar.

6.Verklagsreglur grunnskóla Odda bs

2601021

Lögð fram tillaga að verklagsreglum um viðbrögð þegar bregðast þarf við/stöðva óásættanlega og/eða skaðlega hegðun nemenda í grunnskólum Odda bs.

Stjórn samþykkir verklagsreglurnar.

7.Fræðsludagur 2026

2603082

Lögð fram tillaga um að haldinn verði sameiginlegur fræðsludagur fyrir starfsfólk Odda bs og annað starfsfólk sveitarfélaganna föstudaginn 4. september n.k. kl. 11:00. Lagt til að gera ráð fyrir hálfum starfsdegi í þetta verkefni.

Stjórn samþykkir tillöguna samhljóða.

8.Vorfundur Odda bs. 2026

2603084

Lagt til að vorfundur Odda bs. verði haldinn mánudaginn 8. júní nk. kl. 16:00 í Laugum fundarsal í Miðjunni á Hellu.

Samþykkt samhljóða.

9.Mötuneyti

2603026

Trúnaðarmál
Fært í trúnaðarmálabók
Næsti fundur stjórnar Odda bs. er ákveðinn miðvikudaginn 22. apríl n.k. kl. 8:15.

Fundi slitið - kl. 10:30.