Klara Viðarsdótttir, fjármálastjóri, sat fundinn undir lið 1.
1.Ársreikningur Odda bs 2025
Málsnúmer 2604006Vakta málsnúmer
Lagður fram og kynntur Ársreikningur 2025 fyrir byggðasamlagið Odda bs.
Rekstrartekjur byggðasamlagsins námu 1.855,7 millj. kr. á árinu 2025 og hækkuðu um 165,2 millj. kr. milli ára eða um 8,9%. Námu laun byggðasamlagsins 1.071,9 millj. kr. (2024; 941,8 millj. kr.), og launatengd gjöld námu 266,1 millj. kr. (2024; 226,9 millj. kr.). Launakostnaður jókst á milli ára um 12,2% sem skýrist aðallega af kjarasamningsbundnum hækkunum.
Rekstrarkostnaði byggðarsamlagsins er skipt milli aðildarsveitarfélaganna miðað við nemendafjölda.
Ársreikningurinn var samþykktur samhljóða og undirritaður.

2.Tillaga að stjórnunarteymi Grunnskólans á Hellu
Málsnúmer 2603087Vakta málsnúmer
Lagðar eru fram upplýsingar um kostnað vegna tillögu Grunnskólans á Hellu um að ráðið verði í stöðu deildarstjóra í 100% starf og verkefnisstjóra í 50% starf fyrir skólaárið 2026-2027 til að styrkja stjórnunarteymi skólans.
Stjórn Odda bs. samþykkir að ráðinn verði deildarstjóri í 100% starf og verkefnastjóri í 50% starf. Kostnaðarauka verði vísað til vinnu við viðauka við fjárhagsáætlun næsta haust.

3.Verkefnastjóri fræðslumála
Málsnúmer 2601072Vakta málsnúmer
Lögð fram starfslýsing verkefnastjóra fræðslumála fyrir Odda bs.
Stjórn Odda bs. samþykkir starfslýsinguna og að staða verkefnisstjóra fræðslumála verði auglýst. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.

Fundi slitið - kl. 09:10.