1.Rekstraryfirlit Odda bs. 2026
2602071
Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir rekstur byggðasamlagsins janúar-mars 2026.
2.Skólastjórar Odda bs. Stöðuyfirlit 2026
2601004
Á fundinn mæta Sigurjón Bjarnason starfandi skólastjóri Grunnskólans á Hellu, Kristinn Ingi Guðnason aðstoðarskólastjóri og Jónas Bergmann Magnússon skólastjóri Laugalandsskóla og gera grein fyrir stöðu mála í sínum skólum.
Stjórn þakkar skólastjórunum fyrir upplýsingarnar.

3.Skóladagatöl 2026-2027
2604005
Lögð fram drög að skóladagatölum 2026-2027 fyrir skóla Odda bs.
Grunnskólastjórar fóru yfir skóladagatöl grunnskólana, skólastjóri Heklukots fór yfir skóladagatal Heklukots, skóladagatal leikskólans á Laugalandi lagt fram.
Stjórn Odda samþykkir skóladagatöl skóla Odda bs. fyrir skólaárið 2026-2027. Skóladagatölum er vísað til kynningar á vorfundi Odda bs. Stjórn Odda vísar útfærslu á gjaldtöku skráningardaga í leikskólum til næsta hausts.

4.Beiðni um ársleyfi
2604071
Lögð fram beiðni deildarstjóra stoðþjónustu í Laugalandsskóla um ársleyfi skólaárið 2026-2027.
Stjórn Odda bs. samþykkir beiðnina.
Stjórn Odda bs. samþykkir beiðnina.
5.Styrkbeiðni vegna útskriftarferðar
2604019
Lögð fram beiðni frá foreldrum 10. bekkjar Grunnskólans á Hellu um styrk til 10. bekkjar vegna útskriftarferðar
Stjórn Odda bs. harmar að orðið hafi misskilningur um útfærslu á fjáröflun 10. bekkjar vegna skólaútvarpsins. Stjórn telur sér ekki fært að verða við beiðninni þar sem slík ákvörðun gæti haft áhrif á jafnræði milli skóla auk þess sem verið væri að stíga inn í innra starf skólans. Jafnframt er bent á að umrætt fyrirkomulag hefur verið við líði um langt árabil og það sé ákvörðun milli skóla, nemenda og foreldra hvort ástæða sé til að endurskoða þetta fyrirkomulag.

6.Tilnefning til íslensku menntaverðlaunana
2604051
Lagt fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til skólanefndar sveitarfélagsins vegna tilnefndingar til Íslensku menntaverðlaunanna.
Stjórn Odda bs. vísar erindinu til skólastjórnenda Odda bs. og Félags- og skólaþjónustunnar.

Fundi slitið - kl. 10:00.