1.Rekstraryfirlit Odda bs. 2026
Málsnúmer 2602071Vakta málsnúmer
Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir rekstur byggðarsamlagsins janúar - apríl.
2.Verkefnastjóri fræðslumála
Málsnúmer 2601072Vakta málsnúmer
Sigríður Ólafsdóttir hjá Mögnum ráðningar sat fundinn undir þessum lið í fjarfundi. Farið yfir umsóknir um starf verkefnastjóra fræðslumála og Sigríði falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
3.Námsvist utan Rvk 2026-2027
Málsnúmer 2605035Vakta málsnúmer
Fært í trúnaðarmálabók.
4.Leikskólinn Laugalandi. Beiðni um aukastarfshlutfall.
Málsnúmer 2605036Vakta málsnúmer
Stjórn verður við beiðni leikskólastjóra Leikskólans á Laugalandi um aukið 50% stöðugildi á seinni hluta ársins vegna aukinna stuðningsþarfa. Stjórn vísar auknum kostnaði til endurskoðunar fjárhagsáætlunar í haust.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
5.Laugalandskóli. Beiðni um kæli- og frystiaðstöðu
Málsnúmer 2605051Vakta málsnúmer
Stjórn tekur undir þörf fyrir bætta aðstöðu og vísar málinu til stjórnar Húsakynna bs til úrvinnslu.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.Endurskoðun skólastefnu Odda bs
Málsnúmer 2606013Vakta málsnúmer
Stjórn samþykkir að fara í endurskoðun skólastefnu Odda bs. Framkvæmdastjóra Odda bs falið að vinna málið áfram og koma með tillögu á næsta stjórnarfund.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
7.Fundaáætlun Odda bs
Málsnúmer 2606014Vakta málsnúmer
Lagt er til að fastir fundartímar Odda bs verði að jafnaði fyrsta mánudag í mánuði kl. 8:15. Næsti fundur verður haldinn 10. ágúst n.k.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið - kl. 15:20.