4. fundur 10. september 2026 kl. 08:15 - 10:15 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson formaður
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir aðalmaður
  • Guðmar Aubertsson aðalmaður
  • Ísleifur Jónasson aðalmaður
Starfsmenn
  • Eiríkur Vilhelm Sigurðarson
  • Guðmundur Einarsson
  • Klara Viðarsdóttir
Fundargerð ritaði: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson Sveitarstjóri
Reynir Jónsson verkefnastjóri fræðslumála boðinn velkominn á sinn fyrsta fund stjórnar Odda bs.

1.Rekstraryfirlit Odda bs. 2026

Málsnúmer 2602071Vakta málsnúmer

Klara Viðarsdóttir kom inná fund og fór yfir rekstraryfirlit.

Lagt fram til kynningar.

2.Skólastjórar Odda bs. Stöðuyfirlit 2026

Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer

Kristín Ósk Ómarsdóttir leikskólastjóri Leikskólans á Laugalandi og Ingigerður Stefánsdóttir leikskólastjóri Heklukots fóru yfir stöðuna.

3.Útfærsla á gjaldtöku skráningardaga í leikskólum

Málsnúmer 2608062Vakta málsnúmer

Samkvæmt gjaldskrá eru skráningardagar í jólafríi 21. des til 31. des og í dimbilviku. Þá er leikskólinn lokaður en hægt er að sækja um vistun til leikskólastjóra. Sérstakt gjald er fyrir þessa daga.

Áður hafði verið ákveðið að Leikskólinn á Laugalandi væri lokaður alla skráningardaga en öllum boðið að skrá börn sín á Heklukot þessa daga. Stjórn samþykkir að í ár verði Leikskólinn á Laugalandi opinn fyrir skráningar þrjá daga fyrir jól.

Samþykkt samhljóða.

4.Áætlun um skólaakstur og akstursleiðir skólaársins

Málsnúmer 2609002Vakta málsnúmer

Lögð er fram til staðfestingar áætlun um skólaakstur fyrir komandi skólaár.

Stjórn Odda bs. staðfestir framlagða áætlun og minnir á að samkvæmt samþykktum byggðasamlagsins er skólaakstur skipulagður út frá skilgreindum skólasvæðum Laugalandsskóla og Grunnskólans á Hellu. Á þeim grundvelli er akstursáætlunin lögð fram.

Stjórnin leggur áherslu á að val foreldra á öðrum skóla innan byggðasamlagsins en heimaskóla veitir ekki rétt til skólaaksturs yfir skólasvæðamörk enda megi slíkt val ekki hafa í för með sér aukinn kostnað fyrir byggðasamlagið.

Framkvæmdastjóra og skólastjórum er falið að kynna áætlunina skólaráðum og tryggja að nánara fyrirkomulag og tímasetningar aksturs séu kynntar notendum.

5.Erindi til stjórnar Odda bs

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarmálabók.

6.Erindi til stjórnar Odda bs.

Málsnúmer 2608028Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarmálabók

7.Framtíðarhlutverk nýs salar í skólanum á Hellu

Málsnúmer 2608009Vakta málsnúmer

Lagðar fram reglur um afnot af sameiginlegu rými í skólabyggingu á Hellu og þær staðfestar.

Samþykkt samhljóða.

8.Breyting á skóladagatali Leikskólans Laugalandi

Málsnúmer 2604005Vakta málsnúmer

Stjórn Odda bs. staðfestir breytinguna og felur leikskólastjóra að kynna hana vel.

Samþykkt samhljóða.

9.Endurskoðun skólastefnu Odda bs

Málsnúmer 2606013Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri fræðslumála fór yfir drög að kostnaðar- og verkefnisáætlun.

Verkefnastjóra falið að halda áfram undirbúning endurskoðunar skólastefnu Odda bs. og leggja drög að samning við Þorstein Hjartarson ráðgjafa fyrir næsta fund stjórnar Odda bs.

Samþykkt samhljóða.

Fundi slitið - kl. 10:15.