1.Rekstraryfirlit Odda bs. 2026
Málsnúmer 2602071Vakta málsnúmer
2.Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar
Málsnúmer 2610002Vakta málsnúmer
Lagður fram viðauki 1 við fjárhagsáætlun Odda bs. fyrir árið 2026.
Samtals nemur aukin fjárþörf vegna viðaukans 22.692.000 kr. og er henni mætt með auknum framlögum aðildarsveitarfélaganna, 19.926.539 kr. frá Rangárþingi ytra og 2.765.461 kr. frá Ásahreppi.
Stjórn Odda bs. samþykkir viðaukann og vísar honum til staðfestingar hjá aðildarsveitarfélögunum.
Samþykkt samhljóða.

3.Endurskoðun skólastefnu Odda bs
Málsnúmer 2606013Vakta málsnúmer
Í framhaldi af umfjöllun stjórnar 10. ágúst og 10. september sl. eru lögð fram verkefnisáætlun um endurskoðun skólastefnu Odda bs., tillaga að skipan stýrihóps, skipunar- og erindisbréf og drög að þjónustusamningi við Þorstein Hjartarson ráðgjafa.
Gert er ráð fyrir að vinnan fari fram skólaárið 2026-2027 og að ný skólastefna verði lögð fyrir stjórn til afgreiðslu í júní 2027. Stefnan nái til skólaáranna 2027/2028-2032/2033. Við mótun hennar verði lagt mat á fyrri skólastefnu og stöðu skólastarfs og haft víðtækt samráð við nemendur, foreldra, starfsfólk og aðra hagaðila. Stefnunni fylgi framkvæmdaáætlun og fyrirkomulag reglulegs árangursmats.
Stjórn samþykkir verkefnisáætlunina og skipunar- og erindisbréf stýrihópsins. Eftirtaldir aðalfulltrúar og varafulltrúar eru skipaðir í stýrihóp:
Rangárþing ytra: Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, formaður, og Ingvar Pétur Guðbjörnsson til vara.
Ásahreppur: Kristín Hreinsdóttir og Guðmundur Einarsson til vara.
Grunnskólinn á Hellu: Ína Karen Markúsdóttir og Muhammad Azfar Karim til vara.
Leikskólinn Heklukot: Emelía Sturludóttir og Hrafnhildur Andrésdóttir til vara.
Leikskólinn Laugalandi: Kristín Ósk Ómarsdóttir og Guðbjörg Matthíasdóttir til vara.
Laugalandsskóli: Ragna Magnúsdóttir og Hrafnhildur Valgarðsdóttir til vara.
Reynir Jónsson, verkefnisstjóri fræðslumála, annast verkefnisstjórn og Þorsteinn Hjartarson veitir faglega ráðgjöf. Stjórn samþykkir þjónustusamning við Þorstein og felur framkvæmdastjóra að ganga frá honum, með samræmingu gildistíma við verkefnisáætlun. Stýrihópurinn fylgi verkefninu eftir og leggi niðurstöður vinnunnar reglulega fyrir stjórn.

4.Skólastjórar Odda bs. Stöðuyfirlit 2026
Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer
Ragna Magnúsdóttir f.h. Laugalandsskóla og Kristín Sigfúsdóttir f.h. Grunnskólans á Hellu komu til fundarins og fóru yfir stöðuna í grunnskólum Odda bs.
5.Útfærsla á gjaldtöku skráningardaga í leikskólum
Málsnúmer 2608062Vakta málsnúmer
Stjórn Odda bs. samþykkir að breyta ákvörðun sinni frá 10. september 2026 um skráningardaga í leikskólum.
Allir starfsdagar á tímabilinu 21.-31. desember verði skráningardagar og þurfi foreldrar að sækja um vistun til leikskólastjóra. Sérstakt gjald samkvæmt gjaldskrá verði eingöngu innheimt fyrir vistun á skráningardögum milli jóla og nýárs. Aðrir skráningardagar verði án sérstaks viðbótargjalds.
Leikskólinn á Laugalandi verði opinn fyrir skráða vistun á öllum skráningardögum fyrir jól. Á öðrum skráningardögum verði leikskólinn lokaður en foreldrum standi til boða að skrá börn sín í vistun á Heklukoti.
Ítrekað er mikilvægi þess að skrá einungis börn sem sannarlega munu mæta.

6.Skoðunarskýrsla - Byggðasamlagið Oddi, Leikskólinn Laugalandi
Málsnúmer 2609025Vakta málsnúmer
Lögð fram skoðunarskýrsla Heilbrigðiseftirlits Suðurlands frá 14. september 2026.
Brugðist hefur verið við þeim athugasemdum sem komu fram við skoðun á Leikskólanum á Laugalandi þann 9. september 2026 með tölvupósti 21. september 2026.
Úrbótaáætlun gerir ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið 25. október að undanskildum hljóð- og loftpanel sem áætlaður er að verði frágenginn í janúar 2027.
Lagt fram til kynningar.

7.Starfsmannamál.
Málsnúmer 2605045Vakta málsnúmer
Fært í trúnaðarmálabók.
Vinnfundur Odda bs. vegna fjárhagsáætlunar verður 19. október.
Næsti fundur Odda bs. er mánudaginn 2. nóvember.

Fundi slitið - kl. 10:10.
Lagt fram til kynningar.