Næsti fundur áætlaður mánudaginn 16. nóvember kl. 08:15.
1.Rekstraryfirlit Odda bs. 2026
Málsnúmer 2602071Vakta málsnúmer
Klara Viðarsdóttir fór yfir rekstraryfirlit janúar - september 2026.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
2.Gjaldskrá Odda bs. 2027
Málsnúmer 2610122Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Odda bs. vegna ársins 2027 þar sem lagt er til að hún hækki um 2.5% frá árinu 2026.
Einnig er lagt til að reglur um vistunartíma verði gerðar skýrari og þær lagðar fyrir næsta reglulega fund stjórnar Odda bs.
Samþykkt samhljóða.
Einnig er lagt til að reglur um vistunartíma verði gerðar skýrari og þær lagðar fyrir næsta reglulega fund stjórnar Odda bs.
Samþykkt samhljóða.
3.Fjárhagsáætlun Odda bs. 2027
Málsnúmer 2610119Vakta málsnúmer
Stjórn Odda bs. fjallaði um fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.
Stjórn Odda bs. kallar eftir rökstuðningi á mannaflaþörf í grunnskólum Odda.
Haldinn verður aukafundur mánudaginn 16. nóvember kl. 08:15 þar sem drög að fjárhagsáætlun verða lögð fram.

4.Skólastjórar Odda bs. Stöðuyfirlit 2026
Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer
Jónas Bergmann Magnússon f.h. Laugalandsskóla og Kristín Sigfúsdóttir f.h. Grunnskólans á Hellu komu til fundarins og fóru yfir stöðuna í grunnskólum Odda bs.
5.Erindi um uppsetningu öryggismyndavéla á útisvæði grunnskólans
Málsnúmer 2610123Vakta málsnúmer
Stjórn Odda bs þakkar erindi frá foreldrafélagi Grunnskólans á Hellu þar sem óskað er eftir öryggismyndavélum á allt útisvæði skólans. Einnig er þess krafist að skólalóðin verði kláruð.
Framkvæmdarstjóra falið að fara í kostnaðarmat vegna uppsetningar öryggismyndavéla fyrir bæði Hellu og Laugaland og að það verði tekið til umfjöllunar á næsta fundi Odda bs.
Hafnar eru framkvæmdir við skólalóðina á milli grunnskólabyggingu og íþróttahús og lýkur þeim í nóvember. Heildarframkvæmdum á skólalóð lýkur ekki fyrr en framkvæmdum við leikskólabyggingu er lokið að mestu.

6.Samstarfssamningur við Samtökin ''78 - Endurnýjun
Málsnúmer 2610121Vakta málsnúmer
Komið er að endurnýjun samstarfssamning við samtökin '78. Stjórn Odda bs fór yfir samninginn og felur verkefnastjóra fræðslumála að sækja sameiginlegan kynningarfund með fulltrúum Rangárþings eystra.
Stjórn Odda bs. samþykkir að endurnýja samninginn verði hann á svipuðum forsendum.
Samþykkt samhljóða.
Stjórn Odda bs. samþykkir að endurnýja samninginn verði hann á svipuðum forsendum.
Samþykkt samhljóða.
7.Umsókn um skólavist utan lögheimilis
Málsnúmer 2610120Vakta málsnúmer
Fært í trúnaðarmálabók.
8.Starfsmannamál.
Málsnúmer 2605045Vakta málsnúmer
Fært í trúnaðarmálabók.
9.Stýrihópur um mótun skólastefnu - 1
Málsnúmer 2610008FVakta málsnúmer
Reynir Jónsson fór yfir stöðuna við gerð nýrrar skólastefnu. Einnig var fundargerð 1. fundar lögð fram til kynningar.
10.Bréf frá nemendum í Grunnskólanum á Hellu
Málsnúmer 2610051Vakta málsnúmer
Stjórn Odda bs. þakkar fyrir erindið og fagnar frumkvæði og hugmyndum nemenda. Stjórn upplýsir að þegar er unnið að úrbótum.
Fundi slitið - kl. 10:15.