1. fundur 13. mars 2023 kl. 15:00 - 17:00 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson
  • Þröstur Sigurðsson
  • Ísleifur Jónasson
  • Nanna Jónsdóttir
  • Þráinn Ingólfsson
  • Helga Björg Helgadóttir
  • Reynir Örn Pálmason aðalmaður
Starfsmenn
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
  • Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Erla Sigríður Sigurðsdóttir, Þórunn Dís Þórunardóttir og Eydís Þ. Indriðadóttir boðuðu forföll.

1.Samþykktir og þjónustusamningar Rangárþing ytra og Ásahreppur

Málsnúmer 2111010Vakta málsnúmer

Rammasamkomulag um samstarfsverkefni sveitarfélagana og aðrir samningar um samstarfsverkefni.
Rætt var um samstarfssamninga sveitarfélagana.

Lagt til að sveitarstjórnirnar tilnefni tvo fulltrúa hvor í viðræðunefnd um útfærslu samstarfsverkefna.

Samþykkt samhljóða.

2.Byggðaþróunarfulltrúi í Rangárvallasýslu

Málsnúmer 2301021Vakta málsnúmer

Minnisblað vinnuhóps um byggðarþróunarfulltrúa í Rangárvallasýslu. Verkefnið er samstarfsverkefni sveitarfélaganna þriggja í Rangárvallasýslu og SASS.
Rætt var um stofnun starfs byggðarþróunarfulltrúa í Rangárvallasýslu og hlutverk hans.

3.Samtök orkusveitarfélaga. Stefnumörkun

Málsnúmer 2302133Vakta málsnúmer

Rætt var um hvort ætti að stofna samstarfsvettvang vegna orkunýtingar og nýframkæmda á Þjósár- og Tungnaársvæðinu.

4.Fjallskil 2020

Málsnúmer 2103067Vakta málsnúmer

Umræða um fjallskilmál á Holtamannaafrétti.
Farið var yfir hugmyndir um að láta reikna út "núll" kostnað við smalamennsku á Holtamannaafrétti.

Samþykkt að fara í þessa vinnu og fela formanni fjallskilanefndar að leiða þá vinnu.

5.Samgöngumál

Málsnúmer 2303032Vakta málsnúmer

Sameiginleg samgöngumál.

1. Snjómokstur

2. Merkingar og skilti með vegum

3. Reiðvegir
Rætt var um ýmis sameiginleg samgöngumál í sveitarfélögunum.
1. Snjómokstur:
Rætt var um sameiginlegar reglur varðandi snjómokstur í sveitarfélögunum og tímalengd núverandi samnings.

2. Merkingar og skilti með vegum:
Ásahreppur mun endurnýja beiðni varðandi endurnýjun skiltis við Landvegamót.

3. Reiðvegir:
Rætt var um sameiginlega reiðvegi sem skarast á milli sveitarfélaga.
Stefnt að vorfundi samráðsnefndar mánudaginn 5. júní, kl. 13:00.

Fundi slitið - kl. 17:00.