1.Hagi lóð L178633. Landskipti Vatnsbakki 2
2408017
Landeigendur óskar eftir að fá að skipta úr lóð sinni Haga lóð, L178633, einni lóð, 2666,8 m². Útskipta lóðin fengi heitið Vatnsbakki 2 og landeignanúmerið Lxxxxxx. Lóðin Hagi lóð L178633 héldi upprunalandeignanúmeri sínu og yrði jafnstór eða 2666,8 m² eins og hin nýja lóð. Gögn skv. merkjalýsingu frá Jóhönnu Sigurjónsdóttur.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt þegar búið er að lagfæra ósamræmi í stærðum á uppdrætti.
2.Landmannaafréttur. Stofnun lóðar. Vaðalda
2408027
Forsætisráðuneytið óskar eftir að stofna lóð undir iðnaðarstarfsemi við Vaðöldu úr Landmannaafrétti L229508. Lóðin yrði 1788,3 ha að stærð, fengi landeignanúmerið Lxxxxxx og heitið Vaðalda. Merkjalýsing frá Jóhönnu Sigurjónsdóttur dags. 25.7.2024.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
3.Stóru-Skógar landskipti þriggja lóða. Stóri-Bakki, Stóra-Hæð og Krikakot.
2409002
Landeigandi Stóru-Skóga, L230849, óskar eftir að fá að skipta úr jörð sinni, þremur lóðum. Lóð sem fengi heitið Stóri-Bakki, stærð 50907,2 m², og Lxxxxxx, lóð sem fengi heitið Stóra-Hæð, stærðin 44151,3 m² og Lxxxxxx og lóð sem fengi heitið Krikakot, stærðin 131324,6 m² og Lxxxxxx. Jörðin Stóru-Skógar L230849 minnkar sem nemur útskiptum lóðum og verður 14,2 ha eftir skiptin. Merkjalýsing frá Jóhönnu Sigurjónsdóttur dags. 30.8.2024.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
4.Hraunvegur 34, breyting á afmörkun
2408052
Landeigandi óskar eftir að afmörkun lóðar nr. 34 við Hraunveg í Fjallalandi verði breytt í samræmi við breytingu sem gerð var á deiliskipulagi vegna þess. Merkjalýsing frá Jóhönnu Sigurjónsdóttur dags. 15.8.2024.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti enda í samræmi við nýgerða breytingu á deiliskipulagi og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
5.Umferðarmál, merkingar innan Hellu
2409005
Farið yfir stöðu umferðarmerkinga á Hellu. Lagður fram listi frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvarinnar um stöðu merkinga.
Skipulags- og umferðarnefnd telur réttast að fá ráðgjafa til að meta úrbætur við gatnamót Heiðvangs og Þingskála með tengingu við væntanlegt skipulag skólasvæðisins ásamt öðrum atriðum sem rædd voru á fundinum.
6.Umferðarmál. Staða mála
2310087
Farið yfir stöðu umferðarmála 2024
Ábending barst um að settir yrðu umferðarspeglar á Baugöldu vegna slæmrar yfirsýnar. Nefndin leggur til að settir verði upp speglar við lóðamörk Baugöldu 7 og milli lóða nr. 25 og 27 við Baugöldu. Ábending barst líka vegna slæms ástands ljósastaura við Bræðraborgarstíg í Þykkvabæ og leggur nefndin til að forstöðumaður þjónustumiðstöðvar skoði hvaða úrbóta er þörf. Varðandi hraðahindrun á Lækjarbrautina telur nefndin rétt að núverandi hraðahindrun verði endurgerð en tekur ekki afstöðu til eignarhalds götunnar.
7.Ásahreppur. Sigöldustöð efnistökusvæði
2409007
Lögð er fram skipulagslýsing sem tekur til breytingar á aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032. Með breytingunni felst að skilgreint verði nýtt efnistökusvæði við aðrennslisskurð Sigöldustöðvar. Efni hefur verið tekið af svæðinu við framkvæmdir tengdar virkjunum og vatnsmiðlun, en náman er ekki á skipulagi. Efni úr námunni verður einkum nýtt við framkvæmdir í tengslum við fyrirhugaða stækkun Sigöldustöðvar. Stærð efnistökusvæðis verður um 1 ha og heimilt verður að vinna allt að 49.000 m3 af efni.
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra gerir ekki athugasemdir við fyrirhugað efnistökusvæði eða að gerðar verði breytingar á aðalskipulagi Ásahrepps af því tilefni.
8.Hallstún L165088. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi og deiliskipulag
2408056
Landeigandi óskar eftir breytingum á landnotkun jarða sinna ásamt heimild til að leggja fram nýtt deiliskipulag í kjölfarið. Svæðin sem breytingin nær til eru Hallstún (L165088), Hallstún land (L203602) og Hallstún land (203908). Heildarstærð svæðanna er 34,3 ha. Frístundabyggð F72 er skilgreint á hluta Hallstúns og Hallstúni land (203602). Fyrirhugað er að sameina jarðirnar og byggja þar upp til fastrar búsetu þar sem stundaður verður landbúnaður og atvinna tengd hestamennsku. Gert er ráð fyrir að fella út F72 svo að allt skipulagssvæðið verði landbúnaðarsvæði að nýju.
Sett er fram sameiginleg skipulagslýsing frá Eflu dags. 29.8.2024 fyrir breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga 123/2010 og gerð deiliskipulags fyrir svæðið í samræmi við 40. gr. laganna.

Skipulags- og umferðarnefnd telur að gera þurfi breytingar á landnotkun í aðalskipulagi til að áform umsækjanda geti orðið að veruleika. Breyta þarf núverandi frístundasvæði í landbúnaðarsvæði. Skipulagsnefndin samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og felur skipulagsfulltrúa jafnhliða að gera tillögu að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028 í samræmi við ofangreint.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt. Lýsing skal kynnt í samræmi við 30. og 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning lýsingar skal standa í a.m.k. tvær vikur talið frá birtingu auglýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins og í staðarblaði, eða nánar tiltekið frá 12. - 26. september 2024.

9.Hallstún spilda L203254. Ósk um heimild til skipulags
2408057
Eigandi Hallstúns spildu L203254 óskar eftir að fá að leggja fram deiliskipulag af lóð sinni samhliða breytingum á landnotkun í aðalskipulagi sveitarfélagsins, þar sem núverandi landnotkun landbúnaðarsvæðis verði breytt í Verslunar- og þjónustunot. Fyrirhuguð er uppbygging ferðaþjónustu fyrir allt að 20 gesti.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að gera þurfi breytingar á landnotkun í aðalskipulagi til að áform umsækjanda geti orðið að veruleika. Breyta þarf núverandi landbúnaðarsvæði í verslunar- og þjónustusvæði. Skipulagsnefndin samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og felur skipulagsfulltrúa jafnhliða að gera tillögu að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028 í samræmi við ofangreint. Nefndin telur tilefni til að benda aðilum á umferðaröryggisreglur Vegagerðarinnar varðandi fjarlægðir á milli tenginga inná Hagaveginn og er æskilegt að samliggjandi lóðir nýti sömu tengingu.
10.Gunnarsholt land L164499. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi.
2404112
Félagið Gbest ehf hefur fengið heimild til að gera breytingar á landnotkun í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Svæðið sem breytingin nær til er Gunnarsholt land (L164499). Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi Rangárþing ytra. Gert er ráð fyrir að um 60 hekturum verði breytt í athafnasvæði. Fyrirhugað er að framleiða skógarplöntur á spildunni í gróðurhúsum og innan skjólveggja. Heimilað verður að byggja skemmur og einnig verður starfsmannaaðstaða til viðveru og gistingar innan svæðis. Gert er ráð fyrir að plantað verði trjám umhverfis starfsemina, í um 20-30 hektara svæði, þ.e. sem skjólbelti innan lóðarmarka. Lýsing skipulagsáforma hefur verið kynnt og bárust eftirtaldar umsagnir:
Landsnet og Míla gera engar athugasemdir; Brunavarnir Rangárvallasýslu benda á að burðarþol aðkomuleiða innan svæðis skuli vera 30 tonn hið minnsta og að trjágróður megi ekki hindra aðkomu slökkviliðs; Umhverfisstofnun sem gerir ekki athugasemdir en bendir á að skoða þurfi vel áhrif ljósmengunar frá gróðurhúsum; Heilbrigðiseftirlit Suðurlands sem bendir á að mögulega sé framkvæmdin tilkynningaskyld sbr. tölulið 1.02 í 1. viðauka laga nr. 111/2021; Vegagerðin sem bendir á að æskilegt sé að nýta tengingu við Sagnagarðsveg (2740-01). Skipulagsstofnun telur lýsinguna veita góða mynd af viðfangsefni breytingarinnar og bendir á að marka þurfi stefnu um yfirbragð svæðisins við gerð deiliskipulagsins og að þegar land er tekið úr landbúnaðarnotum þurfi sveitarstjórn að taka afstöðu til hvort landið er stærra en þörf krefur miðað við umfang væntanlegrar starfsemi. Lögð er fram tillaga frá Eflu dags. 21.8.2024.

Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. en leggur til að hún verði áður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en af fundi sveitarstjórnar verður. Nefndin telur þörf á að kynning tillögunnar fari fram í dagblaði og að auki á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem tillagan getur varðað hagsmunaaðila utan sveitarfélagsins.
11.Hagi v Selfjall 2. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi.
2405003
Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að gerð verði breyting á landnotkun í aðalskipulagi þar sem lóðin Hagi v/Selfjall 2 yrði skilgreind sem Verslunar- og þjónustulóð í stað frístundalóðar áður. Lýsing skipulagsáforma var kynnt til og með 28.6.2024. Eftirfarandi umsagnir bárust:
Frá Mílu, sem gerði engar athugasemdir en óskar eftir samráði við væntanlegar framkvæmdir; frá Veitum sem gera ekki athugasemdir en benda á að svæðið er utan skyldusvæðis og þarf því að semja sérstaklega um notkun á heitu vatni; frá Umhverfisstofnun og Landsneti sem gerðu engar athugasemdir; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem benda á skilyrta öxulþyngd og mælir með að settur verði nýr brunahani á svæðið; frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem gerir engar athugasemdir en bendir á að huga þurfi að hljóðvist vegna nálægðar við frístundalóðir og að skilgreina þurfi vatnsvernd í kringum vatnsból á svæðinu og frá Skipulagsstofnun sem bendir á að setja þurfi skýr skipulagsákvæði fyrir VÞ svæðið, gera þurfi grein fyrir áhrifum á nærliggjandi frístundabyggð, taka þurfi mið að Landsskipulagsstefnu og að hafa þurfi gott samráð við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Lögð er fram greinargerð frá Eflu dags. 28.8.2024.

Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. en leggur til að hún verði áður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en af fundi sveitarstjórnar verður. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem tillagan varðar ekki hagsmunaaðila utan sveitarfélagsins. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að kynna áformin sérstaklega til nærliggjandi lóðarhafa.
12.Oddspartur Loki, L204612. Breyting á aðalskipulagi
2405083
Fyrirhugað er að breyta landnotkun á hluta svæðis Oddsparts Loka í Þykkvabæ í verslunar- og þjónustusvæði. Fyrir er veitingastaður og tvenn kúluhús til útleigu innan skikans. Áform eru um áframhaldandi uppbyggingu innan svæðis, þá allt að 15 kúluhús og tvenn þjónustuhús. Einnig er gert ráð fyrir 5 stærri húsum til útleigu fyrir gesti. Lýsing skipulagsáforma hefur verið kynnt og bárust umsagnir frá eftirtöldum aðilum:
Frá Umhverfisstofnun, Landsneti, Mílu og Veitum, sem gerðu engar athugasemdir en Míla bendir á að hafa skuli samráð við fyrirtækið þegar að framkvæmdum verða; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu, sem bendir á að burðarþol aðkomuleiða innan svæðis skuli vera 30 tonn hið minnsta og að gróðursetning við aðkomuveg megi ekki hindra aðkomu slökkviliðs; frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem óskar frekari skýringa á hugtakinu "kúluhúsi" og bendir á að sala gistingar sé starfsleyfisskyld og að skýrt þurfi að koma fram hvernig aðgengi að hreinlætisaðstöðu verður háttað; frá Vegagerðinni sem gerir athugasemdir við tengingar inná Háfsveg (2995-01) og frá Skipulagsstofnun sem gerir ekki athugasemdir en bendir á ýmis efnisleg atriði sem þurfa að koma fram í væntanlegri tillögu. Lögð er fram tillaga frá Efla dags. 27.8.2024

Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. en leggur til að hún verði áður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en af fundi sveitarstjórnar verður. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem tillagan varðar ekki hagsmunaaðila utan sveitarfélagsins.
13.Rangárflatir 2. Deiliskipulag
2409004
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 14.8.2024 tillögu Byggðaráðs frá fundi þeirra 10.7.2024 þar sem Byggðarráð leggur til að lóðin Rangárflatir 2 fari í skipulagsferli jafnhliða vinnu við endurskoðun miðbæjarskipulagsins og möguleikar lóðarinnar verði nýttir betur til að auka fjölbreytni atvinnulífs í sveitarfélaginu. Farið yfir skipulagslegar áherslur varðandi uppbyggingu á Rangárflötum 2.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að samið verði við skipulagsráðgjafa um skipulagslega ráðgjöf og gerð deiliskipulags fyrir svæðið.
14.Mosar deiliskipulag
2210013
Landeigendur hafa lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðina Mosar, Rangárþingi ytra. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að skipta lóðinni upp í 8-16 lóðir undir sumarhús þar sem stærð hverrar lóðar yrði á bilinu 0,4 - 2,0 ha. Aðkoma er af Bjallavegi (nr. 272) og um nýjan aðkomuveg að Mosum. Tillagan var auglýst frá og með 14.12.2023 til og með 25.1.2024. Nokkrar athugasemdir bárust og er lögð fram samantekt á viðbrögðum við þeim ásamt viðbrögðum við afgreiðslu Skipulagsstofnunar sem barst eftir auglýsingu tillögunnar.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Vísað er til samantektar umsagna og viðbragða við þeim. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
15.Tindasel. Deiliskipulag
2408051
Eigandi Tindasels 1 og Tindasels 2 hefur fengið heimild til að leggja fram deiliskipulag af aukinni starfsemi en nú er á svæðinu. Tilheyrandi breytingar á aðalskipulagi hafa verið auglýstar. Áform gera ráð fyrir móttöku allt að 200 gesta, byggingar hótels og gistiaðstöðu ásamt veitingasölu og að auki bættari aðstöðu fyrir starfsfólk og gistingu fyrir starfsfólk. Uppdráttur og greinargerð frá Eflu dags. 30.8.2024.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
16.Áfangagil. Deiliskipulag
2401048
Rekstraraðilar í Áfangagili hafa fengið heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi af svæðinu. Áætlað er að byggja upp meiri aðstöðu fyrir ferðamenn á svæðinu. Núverandi fjallaskálar, tjaldstæði, sturta og salernishús verða áfram í notkun. Skilarétt fyrir Landmannaafrétt er einnig á skipulagssvæðinu.
Gönguleiðin Hellismannaleið liggur um hlaðið í Áfangagili og er Áfangagil einn af gististöðunum á þeirri leið. Þá er talsverð umferð hestahópa í Áfangagili og m.a. skipulagðar hestaferðir um Fjallabakssvæðið og er þá gist í Áfangagili. Hægt er að koma að skipulagssvæðinu af tveimur vegum, annars vegar af Dómadalsleið (F-225) og hins vegar af Landvegi (26).
Uppdráttur og greinargerð frá Eflu dags. 13.5.2024.
Gönguleiðin Hellismannaleið liggur um hlaðið í Áfangagili og er Áfangagil einn af gististöðunum á þeirri leið. Þá er talsverð umferð hestahópa í Áfangagili og m.a. skipulagðar hestaferðir um Fjallabakssvæðið og er þá gist í Áfangagili. Hægt er að koma að skipulagssvæðinu af tveimur vegum, annars vegar af Dómadalsleið (F-225) og hins vegar af Landvegi (26).
Uppdráttur og greinargerð frá Eflu dags. 13.5.2024.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
17.Gaddstaðir íbúðasvæði. Breyting á deiliskipulagi.
2406055
Núverandi tenging að svæðinu er til bráðabirgða. Skipulags- og umferðarnefnd telur réttast að aðkoma verði meðfram Suðurlandsvegi að sunnanverðu frá væntanlegu hringtorgi við Reykjagarð og tengist núverandi aðkomuvegi sem þar er. Nefndin leggur til að gerðar verði nauðsynlegar breytingar í aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem sýnd aðkoma verði felld út úr Aldamótaskógi í þeirri mynd sem gildandi aðalskipulag sýnir. Að auki leggur nefndin til að vinna hefjist samhliða við breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið, þar sem uppfylltar verði áður samþykktar breytingar fyrir lóðir nr. 34 og 35 annars vegar og fyrir lóð 48 hins vegar. Jafnframt skuli breyta skipulagsmörkum við núverandi aðkomu frá Suðurlandsvegi vegna skörunar við deiliskipulag Suðurlandsvegar. Nefndin telur jafnframt ekki ástæðu til að breyta lóðamörkum lóðanna sem liggja að núverandi aðkomu, heldur skuli vera um aðkomu inn í Aldamótaskóginn áfram í sama stíl og á er á milli lóða 40 og 41. Lögð er fram lýsing skipulagsáforma frá Eflu dags. 30.8.2024.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt. Lýsing skal kynnt í samræmi við 30. og 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning lýsingar skal standa í a.m.k. tvær vikur talið frá birtingu auglýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins og í staðarblaði, eða nánar tiltekið frá 12. - 26. september 2024.
18.Bjargshverfi - Deiliskipulag
2311062
Sveitarfélagið hefur unnið að hugmyndavinnu vegna nýs íbúðarhverfis í Bjargshverfi. Gert verði ráð fyrir allt að 100 íbúðareiningum í mismunandi tegundum húsa, einbýlis, par- og raðhúsum. Gerð verði grein fyrir tengingum við aðra vegi og samgöngum innan svæðisins. Tengsl við þéttbýlið austan Ytri-Rangár gerð skil með áformuðum göngubrúm og göngustígum. Unnið er að veitu- og gatnahönnun fyrir svæðið. Farið yfir stöðuna.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að haldin verði samkeppni um nafngiftir á götum innan svæðisins og verði Skipulags- og umferðarnefnd látin meta þær tillögur sem fram koma.
19.Heiðarbakki. Framkvæmdaleyfi til skógræktar
2409003
Landeigandi að Heiðarbakka, L164504, sækir um framkvæmdaleyfi og tilkynnir til sveitarstjórnar áform sín um skógrækt á u.þ.b. 77 ha spildu úr jörð sinni, skv. uppdrætti frá Skógræktinni og drögum að samningi við Skógræktina dags. 21.6.2024. Álit skógræktarráðgjafa er einnig lagt fram. Um viðbót er að ræða við veitingu framkvæmdaleyfis til skógræktar á um 110 ha svæði sem veitt var á árinu 2022. Heildarsvæði verður því um 187 ha.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að umrædd framkvæmd sé ekki þess eðlis að kalli á mat á umhverfisáhrifum. Nefndin leggur til að veitt verði framkvæmdaleyfi til skógræktar á umræddu svæði. Nefndin telur nauðsynlegt að gerðar verði breytingar á landnotkun svæðisins í aðalskipulagi og svæðið verði fært í Skógræktar- og landgræðslusvæði. Nefndin telur ekki þörf á deiliskipulagi fyrir svæðið að sinni nema til komi áform um frekari uppbyggingu innan svæðis.
20.Við Sultartanga. Framkvæmdaleyfi vegna rafstrengs
2408048
Orkufjarskipti hf. áætla að leggja rafstreng og ljóslögn milli lokumannvirkja LV í Sultartanga, þ.e. frá botnrás yfir blöðrur, sjá græna línu á mynd 1 sem hér er meðfylgjandi. Lagnaleiðin er um 5km og liggur samsíða fyrirliggjandi lögn í eigu Orkufjarskipta.
Að auki er áformað að leggja rafstreng auk ljóslagnar um 3km leið, sjá gula línu á mynd 1, inn að fyrirhuguðu vinnusvæði verktaka þar sem að staðsettur verður m.a. jarðvegsbrjótur sem að knúinn verður áfram af rafmagni.

Skipulagsnefnd leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 5. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Greinargerð leyfisveitanda skv. 3. mgr. 27. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 verði lögð fram á næsta fundi sveitarstjórnar. Vísað verði til þeirrar greinargerðar í skilmálum framkvæmdaleyfisins.
21.Landmannalaugar, Laugahringur. Framkvæmdaleyfi til endurbóta á göngustíg
2408049
Umhverfisstofnun óskar eftir framkvæmdarleyfi vegna endurbóta á gönguleið um Laugahraun í Landmannalaugum. Er þetta síðasti kaflinn í endurbótum og viðhaldi á göngustíg sem í daglegu tali kallast Laugahringur. Um er að ræða lagfæringu á um 500 m löngum kafla í gegnum Laugahraunið.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að umrædd framkvæmd sé ekki til þess fallin að hafa neikvæð áhrif á umhverfið og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Skipulags- og umferðarnefnd leggur því til að veitt verði framkvæmdaleyfi til Umhverfisstofnunar á grundvelli 5. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og felur skipulagsfulltrúa að afgreiða málið.
22.Hverfisskipulag
2311053
Hverfisskipulag innan Hellu. Farið yfir stöðu mála.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að vinnu við hverfisskipulag verði hraðað eins og kostur er. Lögð verði megin áhersla á eldri svæði innan þéttbýlisins.
Fundi slitið - kl. 10:45.