1.Grenjabakki og Grenjar 2. Breyting á afmörkun lóða
2504044
Eigandi Grenjabakka L238152 og Grenjar 2 L226585 óskar eftir að fá að breyta lítillega afmörkun lóðanna vegna legu nýs aðkomuvegar. Aðkoma er af Landvegi (nr.26) og þaðan um nýjan vegslóða. Kvöð er á Grenjabakka um aðgengi að lóðunum Birkivöllum, Silfurbrekku og Grenjum 2. Kvöð er á Grenjum 2 um aðgengi að lóðinni Birkivellir.
Merkjalýsing frá Eflu dags. 13.01.2025.
Merkjalýsing frá Eflu dags. 13.01.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
2.Gaddstaðir 6a. Stofnuð lóð.
2504045
Landeigandi óskar eftir að fá að skipta úr lóð sinni Gaddststöðum 6a, lóð sem yrði 177,9 m² að stærð, fengi heitið Gaddstaðir 6 spilda 1 og L239300 í samræmi við merkjalýsingu frá Hermanni Hermannssyni dags. 5.4.2025. Á nýju lóðina færist matshluti 01 0103 Sumarhús. Engar breytingar verða gerðar á landnotkun lóðarinnar en hún er á skilgreindu frístundasvæði.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
3.Hólmatjörn L219184, sameining með Hólmatjörn 1, L232611.
2401031
Eigendur jarðarinnar Hólmatjörn L219184 og eigandi lóðarinnar Hólmatjörn 1, L232611 óska eftir að sameina Hólmatjörn 1 undir jörðina Hólmatjörn. Hólmatjörn L219184 mælist 48,6 ha en verður 53,6 ha eftir sameiningu og leiðréttist því skráning á stærð í fasteignaskrá samhliða þessum breytingum. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 10.3.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
4.Lækjarbotnar landskipti, Lækjarbotnar skiki
2504046
Landeigandi óskar eftir að fá að skipta úr jörð sinni Lækjarbotnum L164992, skika sem yrði 42,15 ha að stærð, fengi heitið Lækjarbotnar skiki og L239301 í samræmi við merkjalýsingu frá Sigurgeir Skúlasyni dags. 7.4.2025. Engar breytingar verða gerðar á landnotkun lóðarinnar en hún er á skilreindu landbúnaðarsvæði.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
5.Vaðalda vindorkuver. Landskipti Vaðalda Tengivirki og Vaðalda Safnstöð
2504047
Landeigandi óskar eftir að fá að skipta úr lóð sinni Vaðöldu vindorkuveri, L238022, tveimur lóðum. Báðar lóðirnar yrðu 41,300 m² að stærð, önnur fengi heitið Vaðalda Tengivirki og Lxxxxxx og hin fengi heitið Vaðalda Safnstöð og Lxxxxxx í samræmi við merkjalýsingu frá Hugrúnu Hörpu Björnsdóttur dags. 2.4.2025.
Samtals stærð lóðanna er því 82.600 m2 (8,3 ha). Vaðalda vindorkuver er með skráða stærð 1788,3 m2 en minnkar um 8,3 ha og verður 1780 ha
Samtals stærð lóðanna er því 82.600 m2 (8,3 ha). Vaðalda vindorkuver er með skráða stærð 1788,3 m2 en minnkar um 8,3 ha og verður 1780 ha
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
6.Sigöldvirkjun, framkvæmdaleyfi. Kæra 56_2025 og 57_2025 vegna ákvörðunar sveitarstjórnar.
2504027
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sendir afrit kæru dags. 7.4.2025, móttekin af nefndinni sama dag. Kærðar eru ákvarðanir hreppsnefndar Ásahrepps um að veita tvö framkvæmdaleyfi í sambandi við fyrirhugaða stækkun Sigöldustöðvar í Ásahreppi og Rangárþingi ytra úr 150 í 215 MW, ákvörðun 1 tekin á hreppsnefndarfundi 22. janúar 2025, mál nr. 314/2025 í Skipulagsgátt og ákvörðun 2 tekin á hreppsnefndarfundi 19. febrúar 2025, mál nr. 315/2025 í Skipulagsgátt.
Lagt fram til kynningar
7.Kerfisáætlun Landsnets 2025-2034. Umhverfismatsskýrsla til kynningar.
2504042
Lögð er fram umhverfismatsskýrsla Kerfisáætlunar Landsnets 2025-2034 til kynningar. Í kerfisáætlun fjallar Landsnet um hvernig skuli þróa og endurnýja flutningskerfi raforku.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Landsnets: https://landsnet.is/kerfisaaetlun/.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Landsnets: https://landsnet.is/kerfisaaetlun/.
Lagt fram til kynningar
8.Landsskipulagsstefna 2024-2038
2406023
Skipulagsstofnun vekur athygli á nýútgefinni landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024-2038. Á landsskipulag.is má nálgast útgefna stefnu ásamt frekari upplýsingum um stefnuna, framfylgd hennar og einstakra verkefna aðgerðaáætlunar.
Lagt fram til kynningar
9.Umhverfismatsdagurinn 2025
2504043
Umhverfismatsdagurinn í ár fer fram þann 5. júní í Nauthól og í beinu streymi.
Umhverfismatsdagurinn er árleg ráðstefna um umhverfismat, þar sem fjallað er um það sem efst er á baugi í málaflokknum hverju sinni.
Umhverfismatsdagurinn er árleg ráðstefna um umhverfismat, þar sem fjallað er um það sem efst er á baugi í málaflokknum hverju sinni.
Lagt fram til kynningar
10.Efri-Rauðalækur land L205549. Deiliskipulag
2504038
Landeigandi óskar eftir að fá að leggja fram tillögu að deiliskipulagi til byggingar á íbúðarhúsi ásamt vélaskemmu og tengdum mannvirkjum.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11.Skammbeinsstaðir 1D. Breyting á deiliskipulagi.
2504040
Landeigendur óska eftir að fá að leggja fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi dags. 28.1.2021. Á uppdrætti bætist við ný 12.601 m2 lóð ásamt byggingarreit B4. Innan byggingarreits er heimilt að byggja allt að 138 m2 íbúðarhús með sambyggðum eða stakstæðum bílskúr, ásamt 60 m2 gestahúsi og allt að 180 m2 skemmu/geymslu. Aðkoma verður óbreytt. Skipulagsgögn frá Eflu dags. 28.3.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin áréttar að samþykkt deiliskipulagsins felur ekki í sér staðfestingu á stofnun nýrrar lóðar heldur þarf að fara um slíkt sem landskiptamál.
12.Stekkatún Breyting á landnotkun í aðalskipulagi
2410033
Rangárþing ytra vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin nær til Stekkatúns 1 (landnr. 165446) sem er 44 ha að stærð skv. skrá HMS. Hluti lands er skilgreindur sem verslunar- og þjónustusvæði VÞ36 í gildandi aðalskipulagi. Fyrstu hugmyndir gerðu ráð fyrir að stækka verslunar- og þjónustusvæði VÞ36 úr 6,7 ha í 44 ha. Megin uppbygging yrðu gestahús/litlar hvelfingar þar sem gestir geti notið næturhimins og norðurljósa, ásamt góðri gistiþjónustu. Hámarks byggingarmagn innan þjónustusvæðis hefði aukist úr 510 m2 yfir í allt að 1600 m2 innan svæðis. Lýsing skipulagsáforma hefur verið kynnt og var frestur til athugasemda til og með 28.11.2024. Nokkrar athugasemdir bárust á kynningartíma lýsingarinnar sem gerðu það að verkum að umsækjendur hafa nú minnkað áform sín niður í að Verslunar- og þjónustusvæðið verður 12,6 ha í stað 44 ha áður, að hámarksfjöldi gesta verði allt að 54 í allt að 27 litlum gestahúsum / hvelfingum í stað 55 áður. Tillagan var auglýst frá og með 31.1.2025 til og með 19.3.2025. Umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum: Vegagerðinni, sem bendir á að ekki liggi fyrir samþykkt um vegtengingar við Þykkvabæjarveginn; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem bendir á að öxulþungi innan svæðis verði 32 tonn; frá Veitum og Landsneti sem gerðu engar athugasemdir; frá Náttúrverndarstofnun sem bendir á að þurfi að setja fram stefnu sveitarfélagsins varðandi vernd á mikilvægum fuglasvæðum og að auki varðandi náttúruvernd vistgerða. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands lagði til breytingu á lýsingu í kafla 4.2, töflu 2.3.4. Lögð er fram samantekt á umsögnum aðila og drög að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin telur ekki tilefni til frekari viðbragða, samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.
13.Stekkatún ósk um breytingu á deiliskipulagi.
2405065
Eigendur Stekkatúns L165446 hafa lagt fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið frá 2023. Áform eru um að fjölga gistirýmum og bæta við þjónusturýmum til reksturs ferðaþjónustu. Tillagan var auglýst frá og með 31.01.2025-19.03.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
14.Hagi v Selfjall 2. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi.
2405003
Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að auglýst verði tillaga að breytingu á landnotkun í aðalskipulagi þar sem lóðin Hagi v/Selfjall 2 yrði skilgreind sem Verslunar- og þjónustulóð í stað frístundalóðar áður. Meðan á auglýsingu stóð átti jafnframt að grenndarkynna breytta tillögu til nærliggjandi lóðarhafa. Lóðarhöfum var kynnt breytingin og bárust athugasemdir í kynningu. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gerði einnig athugasemdir við efnisleg atriði í greinargerð. Lögð er fram samantekt á umsögnum og drögum að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila bæði í tengslum við kynningu á breytingun á landnotkun og í tengslum við breytinguna á deiliskipulaginu. Í ljósi framkominna umsagna beggja skipulagsferla sér nefndin ekki annað í stöðunni en að stöðva feril skipulagsins, bæði hvað varðar áformaða breytingu á landotkun lóðarinnar í aðalskipulagi og hvað varðar breytinguna á gildandi deiliskipulagi svæðisins. Lóðin verði því áfram skilgreind í frístundanotkun eins og verið hefur og tilheyrandi skilmálar hennar því óbreyttir.
15.Hagi v Selfjall 2. Breyting á deiliskipulagi
2402077
Eigandi lóðarinnar Hagi v/Selfjall 2, L176252, hefur fengið heimild til að auglýsa tillögu að breytingum á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið, dags. 10.6.1992, þar sem heimiluð verði áform um útleigu gistingar í flokki II ásamt rekstri til leiðtoga- og heilsuþjálfunar. Meðan á auglýsingu stóð átti jafnframt að grenndarkynna breytta tillögu til nærliggjandi lóðarhafa. Lóðarhöfum var kynnt breytingin og bárust athugasemdir í kynningu. Skipulagið var grenndarkynnt hagsmunaraðilum að nýju. Lögð er fram samantekt á umsögnum og drögum að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila bæði í tengslum við kynningu á breytingun á landnotkun og í tengslum við breytinguna á deiliskipulaginu. Í ljósi framkominna umsagna beggja skipulagsferla sér nefndin ekki annað í stöðunni en að stöðva feril skipulagsins, bæði hvað varðar áformaða breytingu á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi og hvað varðar breytinguna á gildandi deiliskipulagi svæðisins. Lóðin verði því áfram skilgreind í frístundanotkun eins og verið hefur og tilheyrandi skilmálar hennar því óbreyttir.
16.Deiliskipulag á Strönd
2409058
Lögð fram drög að endurskoðaðu deiliskiplagi fyrir Strönd. Stjórn sorpstöðvarinnar samþykkti drögin og ákvað að málið skildi fara í formlegan skipulagsferil. Lögð er fram tillaga frá Eflu dags. 20.3.2025
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
17.Brekkusel 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2503043
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Óskars Björnssonar um leyfi til að breyta notkun núverandi frístundahúss í íbúðarhús. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við breytta notkun húsnæðis en telur aðkomu Skipulags- og umferðarnefndar nauðsynlega vegna fjarlægðar frá aðalvegi.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að áformum umsækjanda um fast aðsetur á lóð sinni, Brekkuseli 1, og þar með skráningu lögheimilis á lóðinni verði hafnað þar sem fjarlægð frá næsta aðalvegi er umfram það viðmið sem gefið er upp í aðalskipulagi.
18.Faxaflatir 4. Staða mála.
2504039
Skipulagsnefnd fer yfir stöðu mála hvað varðar skipulag og framkvæmdir
Skipulags- og umferðarnefnd telur að framkvæmdir hafi dregist úr hófi fram á lóðinni Faxaflatir 4 en henni var úthlutað í október 2021 til uppbyggingar á 1.000-1.200 fermetra miðstöð þar sem gert yrði ráð fyrir ýmissi ferðatengdri þjónustu. Nefndin leggur til að lóðarhafa Faxaflata 4, verði gert að leggja fram skriflega tímasetta framkvæmdaáætlun fyrir næsta fund Byggðarráðs þann 23. apríl næstkomandi og skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að fylgja því eftir.
19.Tindasel. Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu.
2504026
Skipulagsstofnun leitar umsagna umsagnaraðila vegna tilkynninga til ákvörðunar um matsskyldu á
grundvelli 20. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Deluxe Lodges ehf. fyrirhugar uppbyggingu á hóteli og gistihúsum á jörðinni Tindaseli í Rangárþingi ytra. Gert er ráð fyrir gistingu fyrir allt að 200 manns á þremur aðskildum uppbyggingarsvæðum á samtals um 12,7 ha svæði og er heildar byggingamagn áætlað um 5000 m2.
grundvelli 20. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Deluxe Lodges ehf. fyrirhugar uppbyggingu á hóteli og gistihúsum á jörðinni Tindaseli í Rangárþingi ytra. Gert er ráð fyrir gistingu fyrir allt að 200 manns á þremur aðskildum uppbyggingarsvæðum á samtals um 12,7 ha svæði og er heildar byggingamagn áætlað um 5000 m2.
Í samræmi við 20. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 hefur Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra farið yfir tilkynningu framkvæmdaraðila, þar sem Deluxe Lodges ehf fyrirhugar uppbyggingu hótels og gistihúsa. Niðurstaða nefndarinnar er að bygging hótels og gistihúsa á lóðinni Tindaseli sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 111/2021. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
20.Hvammsvirkjun. Stækkun efnistökusvæðis. Ákvörðun vegna matsskyldu
2504041
Landsvirkjun vinnur nú að lokaundirbúningi við Hvammsvirkjun og tengdar framkvæmdir í og við Þjórsá í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þær efnistökuheimildir sem eru í gildandi deiliskipulagi byggja á umhverfismati frá 2003 og uppfærðu umhverfismati frá 2017, og hafa ýmsar hönnunarforsendur breyst síðan þá og við endanlega verkhönnun hefur komið í ljós að efnisþörf er nokkuð meiri en reiknað var með í upphafi og því hyggjast Landsvirkjun og Vegagerðin stækka efnistökusvæði E26 til að mæta þessari viðbótarefnisþörf. Er það einkum nýr Þjórsárdalsvegur og miklar fyllingar honum tengdum sem kalla á þessa auknu efnisþörf. Í heild verður viðbótarefnismagn 390.000 m3 .
Í samræmi við 20. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 hefur Skipulagsnefnd Rangárþings ytra farið yfir tilkynningu framkvæmdaraðila, þar sem Landsvirkjun fyrirhugar stækkun efnistökusvæða. Niðurstaða nefndarinnar er að stækkun efnistökusvæða á umræddum stað sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 111/2021. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
21.Stóru-Vellir L165011. Umsókn um framkvæmdaleyfi til vegagerðar.
2504028
Fyrir hönd eigenda Stóru-Valla, L165011, er hér með sótt um framkvæmdaleyfi fyrir vegi í landi Minni-Valla, L164995, skv. dómssátt sem gerð var 23. apríl 2024, þinglýsingarnúmer 447-B-001933/2024.
Að beiðni sveitarfélagsins er einnig óskað eftir aðalskipulagsbreytingu á grundvelli dómssáttar.
Að beiðni sveitarfélagsins er einnig óskað eftir aðalskipulagsbreytingu á grundvelli dómssáttar.
Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu erindisins og leggur til að leitað verði álits lögmanns sveitarfélagsins um efnið.
22.Landmannalaugar göngupallar. Framkvæmdaleyfi
2404147
Umhverfisstofnun fékk útgefið framkvæmdaleyfi fyrir endurnýjun á göngupalli frá skála Ferðafélags Íslands að nýjum laugapalli við náttúrulaug. Framkvæmdaleyfi útgefið 10.6.2024. Vegna skorts á efni til framkvæmdarinnar var framkvæmdum frestað fram á þetta ár að viðbættum kaflanum sem nú er sótt um, þ.e. frá laugapalli að Námskvísl. Umsókn barst frá Náttúruverndarstofnun (áður Umhverfisstofnun) þann 13. mars 2025 vegna viðbótarinnar. Umsögn frá Forsætisráðuneytinu liggur fyrir þar sem ekki eru gerðar neinar athugasemdir.
Í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 hefur Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra farið yfir umsókn framkvæmdaraðila um endurnýjun á göngupalli frá skála Ferðafélags Íslands að Námskvísl í Landmannalaugum. Niðurstaða nefndarinnar er að umrædd áform séu ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 111/2021. Því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 5. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Næsti fundur Skipulags- og umferðarnefndar er áformaður þann 7. maí í stað 8. eins og áætlanir gerður ráð fyrir.
Fundi slitið - kl. 10:30.