43. fundur 07. maí 2025 kl. 08:30 - 10:30 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Gunnar Aron Ólason formaður
  • Þröstur Sigurðsson aðalmaður
  • Svavar L. Torfason aðalmaður
  • Brynhildur Sighvatsdóttir aðalmaður
  • Berglind Kristinsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson embættismaður
  • Jón Ragnar Örlygsson
Fundargerð ritaði: Haraldur Birgir Haraldsson Skipulags- og byggingarfulltrúi
Gunnar Aron víkur af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa máls.

1.Vegabætur á Landvegi (26) frá vegamótum að Áfangagili að Þjórsárdalsvegi. Beiðni um umsögn

2504076

Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn sveitarfélagsins vegna áforma Landsvirkjunar, í samstarfi við Vegagerðina, áformar að gera endurbætur á um 13 km kafla á Landvegi (26) í Rangárþingi Ytra, frá afleggjara að veginum að Áfangagili að vegamótum við Þjórsárdalsveg (32) og Sprengisandsleið (26). Núverandi vegur er malarvegur, ástand hans er almennt slæmt og talin er brýn þörf á að byggja hann upp og leggja á hann bundið slitlag. Nýttar verða námur í nágrenni framkvæmdasvæðisins og uppgröftur úr Sultartangaskurði og er áætluð efnisþörf í heildina um 128.100 m3. Áætlaður framkvæmdartími er um 6 mánuðir.
Í samræmi við 20. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 hefur Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra farið yfir tilkynningu framkvæmdaraðila, þar sem Landsvirkjun áformar, í samstarfi við Vegagerðina, að gera endurbætur á um 13 km kafla á Landvegi (26) í Rangárþingi Ytra. Niðurstaða nefndarinnar er að endurbætur á umræddum vegakafla sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 111/2021. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Gunnar Aron kemur aftur á fundinn

2.Umferðarmál. Staða mála

2310087

Farið yfir stöðu umferðarmála.

Eigna- og framkvæmdanefnd samþykkti á síðasta fundi að merktar verði gangbrautir á eftirfarandi stöðum í sumar: Heiðvangur/Þingskálar, Eyjasandur/Langisandur, Langisandur/Dynskálar, Eyjasandur/Langalda, Þrúðvangur/Bolli og Freyvangur í framhaldi af göngustíg yfir hól. Einnig verður komið fyrir léttri hraðahindrun á Þrúðvang á móts við Nes og fyrsti áfangi nýrrar gangstéttar lagður með Þrúðvangi frá Hellubíó í átt að Nesi. Nefndin óskar eftir að skipulags- og umferðarnefnd komi með tillögur að framtíðar gönguleiðum frá Nestúni og Hólavangi yfir á Helluvaðsveg og frá Baugöldu að Þrúðvangi.
Framkvæmdaáætlun lögð fram til kynningar.

Skipulags- og umferðarnefnd telur að fara eigi eftir gildandi deiliskipulagi þar sem sýndar eru tvær leiðir úr Baugöldu. Fylgja skuli svo gildandi deiliskipulagi áfram þar til komið er að bílastæðum við grunnskóla. Vestan við bílastæðið verði sett gangbraut / sebrabraut sem tengir núverandi og skipulagðar leiðir að Þrúðvangi. Einnig sem viðbót við núverandi göngustíga að Laufskálum.
Að auki leggur nefndin áherslu á að núverandi gönguleiðir yfir hólinn frá Eyjasandi og Geitasandi verði skilgreindar í skipulagi.

Nefndin telur réttast að fara eigi eftir gildandi deiliskipulagi fyrir Lundarsvæðið þar sem skilgreindar eru tvær leiðir inná Helluvaðsveg en að auki skuli gönguleiðin milli Nestúns 17 og 19 bætt við. Gangstéttin sem sýnd er í skipulagi skuli tengjast við fyrirhugaða gangstétt við Þrúðvang.

Nefndin leggur jafnframt til að útbúnar verði þekjur í kortasjá sem sýni stöðu umferðarmerkinga, umferðarmannvirkja og göngustígakerfis. Stefnt verði að kynningu á næsta fundi.

Skipulags- og umferðarnefnd vísar til leiðbeininga Vegagerðarinnar frá 2023 um algilda hönnun utandyra (LEI-3306) og leggur áherslu á að þær verði hafðar til hliðsjónar við skipulag og hönnun gatna, gangstétta og annarra opinna svæða í sveitarfélaginu. Nefndin mælist til þess að eigna- og framkvæmdasvið fylgi viðmiðum leiðbeininganna við nýframkvæmdir og viðhald til að tryggja aðgengi og öryggi allra íbúa.

Nefndin leggur að auki til að komið verði fyrir hraðahindrun sunnan við gatnamót Þrúðvangs og Ártúns.

Ennfremur leggur nefndin til að "hringtorgið" við enda Bogatúns á Helluvaðsvegi verði fjarlægt og sett frárein / breikkun að sunnanverðu við Helluvaðsveginn í staðinn.

3.Gaddstaðaeyja. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

2401044

Rangárþing ytra hefur samþykkt að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á landnotkun í aðalskipulagi í Gaddstaðaeyju, þar sem gert verði ráð fyrir breytingu á landnotkun þar sem núverandi Óbyggt svæði verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði. Skipulagslýsing dags. 9.4.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að lýsing verði kynnt að nýju, vegna mikilla breytinga sem orðnar hafa frá fyrri kynningu. Nefndin gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Gunnar Aron víkur af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa máls.

4.Vaðölduver. Breyting á deiliskipulagi

2502046

Landsvirkjun óskar eftir að gerðar verði breytingar á gildandi deiliskipulagi dags. 28.5.2024. Unnið hefur verið nánar að útfærslu vindorkuversins og verður vindmyllum fækkað, meira byggingarmagn á lóð safnstöðvar heimilað, bætt verður við útsýnisstað og bílastæði við hann, vegtengingar og lega göngu- og reiðleiða er yfirfarin ásamt því að bætt er við vatnsbóli og vatnslögnum. Þá verða lóðir sem voru skilgreindar undir vindmyllur felldar út. Lögð er fram greinargerð og uppdráttur frá Eflu dags. 18.2.2025. Tillagan var auglýst frá og með 28.2.2025 til og með 16.4.2025. Umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum: Frá Mílu, Brunavörnum, Náttúrufræðistofnun, Heilbrigðiseftirliti, Landsneti og Vegagerðinni sem gerðu engar athugasemdir; frá Minjastofnun sem leggur til að vegur við réttina í Haldi verði færður lítillega til; frá Veðurstofu Íslands sem bendir á misræmi í númeringu vindmylla á svæðinu, að ekki sé fjallað ítarlega um náttúruvá á svæðinu, að varnargarðar skuli ekki vera hæðarsettir og að skv. straumfræðilegu reiknilíkani muni svæðið geta farið á kaf ef til hamfarahlaups kemur. Lögð er fram samantekt á umsögnum ásamt drögum að viðbrögðum við þeim. Uppfærð gögn frá Eflu dags. 2.5.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.
Gunnar Aron kemur aftur á fundinn.

5.Gaddstaðir íbúðasvæði. Breyting á aðalskipulagi

2406055

Erindi vísað frá Byggðaráði 26.6.2024 þess efnis að fela Skipulags- og umferðarnefnd að ræða mögulegar breytingar á aðkomuvegi inn í hverfið. Breytingin tekur til frístunda- og íbúðasvæðis, þar sem fjöldi lóða og aðkomuvegur að ÍB29 og F63 er endurskoðaður þar sem núverandi aðkoma var aðeins ætluð til bráðabirgða. Ný aðkoma að svæðinu verður meðfram Suðurlandsvegi (1) að sunnanverðu, frá væntanlegu hringtorgi við Reykjagarð. Núverandi aðkoma að svæðinu sem er um Aldamótaskóg verður felld úr gildi. Í samræmi við breytingu á legu aðkomuvegar verða lóðarmörk endurskoðuð og fyrirhugað er að fjölga heimiluðum lóðum svæðanna í aðalskipulagi. Tillaga var auglýst frá og með 28.2.2025 til og með 16.4.2025. Umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum: Frá Veitum sem óskuðu eftir að tillit verði tekið til staðsetningar stofnlagna við hönnun og staðsetningu á nýjum vegi; frá Náttúruverbndarstofnun sem vísar til fyrri umsagnar við lýsinguna en gerir ekki frekari athugasemdir; frá Vegagerðinni sem minnir á að allar framkvæmdir innan helgunarsvæða eru háðar leyfi Vegagerðarinnar; frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem vísar til fyrri umsagnar um lýsinguna. Lögð er fram samantekt á umsögnum ásamt drögum að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.
Gunnar Aron víkur af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa máls.

6.Hvammsvirkjun. Breyting á skipulagi vegna stækkunar efnistökusvæða

2501063

Landsvirkjun vinnur nú að lokaundirbúningi fyrir Hvammsvirkjun og tengdar framkvæmdir í og við Þjórsá í Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Rangárþingi ytra. Ýmsar hönnunarforsendur hafa breyst og við endanlega verkhönnun hefur komið í ljós að efnisþörf er nokkuð meiri en reiknað var með í upphafi, einkum vegna mikilla fyllinga í tengslum við nýjan Þjórsárdalsveg. Til að mæta þessari viðbótarefnisþörf hyggst Landsvirkjun óska eftir stækkun á núverandi efnistökusvæði í Hvammslóni í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og innan Rangárþings ytra.

Núverandi heimildir í skipulagi heimila að tekið sé allt að 950.000 m3 af efni, þar af 500.000 m3 í efnistökusvæði E26 sem er í lónstæði Hvammsvirkjunar og mun svæðið fara undir vatn að framkvæmdum loknum.

Í heild verður viðbótarefnismagn 350.000 m3 innan beggja sveitarfélaga. Öll fyrirhuguð viðbótarsvæði verða einnig í lónsstæðinu og hverfa því í lónið að framkvæmdum loknum. Samanlögð stærð allra svæðanna er um 25 ha, en efnistakan er hins vegar öll innan framkvæmdasvæðis og lónsstæðis Hvammsvirkjunar, á svæði sem er búið að heimila að raska nú þegar. Lýsing skipulagsáforma var kynnt frá og með 13.3.2025 til og með 11.4.2025. Umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum: Frá Brunavörnum, Vegagerðinni, Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Landsneti, Heilbrigðiseftirliti og Minjastofnun sem gerðu engar athugasemdir; frá Hafrannsóknarstofnun sem bendir á að kannski hefði verið eðlilegra að efni verði ekki tekið úr Þverá heldur frekar þar sem inngrip hefur þegar orðið en gerir ekki athugasemdir við önnur áformuð efnistökusvæði; frá Náttúruverndarstofnun sem bendir á að hrauni verði ekki raskað nema brýna nauðsyn beri til og að fram komi í tillögunni hvaða leiðir verði farnar til að forðast raski á náttúruminjum; frá Náttúrufræðistofnun sem telur almennt séð ekki æskilegt að taka efni úr virkum árfarvegi og frá Skipulagsstofnun sem bendir á að hentugast sé að vinna að tilkynningu um mat á umhverfisáhrifum samhliða skipulagstillögum. Lögð er fram tillaga frá Eflu dags. 29.4.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga en vinnslutillagan verði áður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins.
Gunnar Aron kemur aftur á fundinn

7.Viðhalds og framkvæmdaáætlun 2024

2408032

Á fundi skipulags- og umferðarnefndar 20. febrúar 2025 var lögð fram tillaga að áformum sveitarfélagsins um aukið umferðaröryggi í tengslum við aðgengi að skólasvæði á Hellu. Áformin voru grenndarkynnt frá og með 28. mars til og með 27. apríl 2025. Barst ein athugasemd.
Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu erindisins.
Gunnar Aron víkur af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa máls.

8.Vaðfitjanáma við Þjórsá. Nýtt efnistökusvæði. Breyting á aðalskipulagi.

2503088

Óskað er eftir að nýtt efnistökusvæði fyrir efnistöku allt að 80.000 m³ verði skilgreint í aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðrar efnistöku á Vaðfitjum við Þjórsá. Lýsing skipulagsáforma var kynnt til og með 30. apríl. Umsagnir bárust frá Landsneti, Vegagerðinni, Brunavörnun Rangárvallasýslu Minjastofnun og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem gera ekki athugsemdir við skipulagstillöguna.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga en vinnslutillagan verði áður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins.
Gunnar Aron kemur aftur á fundinn

9.Hallstún spilda L203254. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

2410003

Eigandi Hallstúns spildu L203254 óskar eftir að fá að leggja fram deiliskipulag af lóð sinni samhliða breytingum á landnotkun í aðalskipulagi sveitarfélagsins, þar sem núverandi landnotkun landbúnaðarsvæðis verði breytt í Verslunar- og þjónustunot. Fyrirhuguð er uppbygging ferðaþjónsutu fyrir allt að 20 gesti. Tillagan var auglýst frá og með 5.3.2025 til og með 23.4.2025. Umsagnir bárust frá Veitum sem bendir á að svæðið er utan skyldusvæðis og því þurfi að semja sérstaklega um tengingu við hitaveitu, frá Vegagerðinni sem bendir á að nýta vegtengingu með Giljanesi og að gerð vegtenginga verði í samráði við Vegagerðina, frá Náttúruverndarstofnun sem bendir á að innan skipulagssvæðis er að finna vistgerðir með hátt verndargildi og er svæðið mikilvægt fuglasvæði, frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands kemur athugasemd að í kafla 3.3 í greinagerð aðalskipulagsbreytingarinna kemur fram að ef farið verði í vatnstöku innan svæðisins verði gerð grein fyrir vatnsbóli og vatnsverndarsvæðum í skipulagi. HSL bendi einnig á að skipulagssvæðið er aðeins 2,8 ha að stærð og innan þess er gert ráð fyrir 8-10 byggingum fyrir rekstur gististaðar. Lögð er fram samantekt umsagna og drög að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.

10.Lækjarsel, L202406 og Kúfholt, L165021. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

2505002

Landeigendur ósk eftir að breyta landnotkun á lóðum sínum Lækjarseli, L202406 og Kúfholti 1, 165021 úr frístundarbyggð í landbúnaðarsvæði. Áhugi landeigenda á því að fá búseturétt á landspildum sínum hefur aukist með það fyrir augum að stunda minniháttar búskap eða aðra starfsemi og hafa þar fasta búsetu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

11.Ómsvellir 2. Umsókn um lóð

2504048

Hrafnablik ehf óskar eftir að fá úthlutaðri lóðinni nr. 2 við Ómsvelli til að byggja á henni hesthús úr timbri. Æskilegur byrjunartími framkvæmda er júní/júlí 2025 og áætlaður byggingartími er 6 mánuðir.

Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að lóðinni Ómsvellir 2 verði úthlutað til Hrafnabliks ehf til að byggja á henni hesthús í samræmi við gildandi deiliskipulag svæðisins.

Fundi slitið - kl. 10:30.