49. fundur 21. ágúst 2025 kl. 08:30 - 11:00 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Gunnar Aron Ólason formaður
  • Þórunn Dís Þórunnardóttir aðalmaður
  • Þröstur Sigurðsson aðalmaður
  • Svavar L. Torfason aðalmaður
  • Brynhildur Sighvatsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Haraldur Birgir Haraldsson Skipulags- og byggingarfulltrúi

1.Ægissíða 1. Landskipti Ægisbjarg 13, 15, 17 og 19.

2508034

Lóðareigandi Ægissíðu 1, L199935, óskar eftir að fá að skipta úr lóð sinni, fjórum íbúðarlóðum í samræmi við tillögu að deiliskipulagi fyrir Bjargshverfið og merkjalýsingu frá Hörpu Birgisdóttur dags. 10.7.2025. Lóðirnar verða Ægisbjarg 13, stærð 880,8 m² og fengi landeignanúmerið Lxxxxxx; Ægisbjarg 15, stærð 1431,7 m² og Lxxxxxx; Ægisbjarg 17, stærð 1006,7 m² og Lxxxxxx og Ægisbjarg 19, stærð 850,7 m² og Lxxxxxx. Það sem eftir stendur af lóðinni yrði 3791,1 m² og héldi heiti sínu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

2.Skjólvegur 1-6. Leiðrétting á afmörkun lóða.

2508033

Mistök voru gerð við hnitsetningu og afmörkun lóðanna við stofnun þeirra. Eftir mælingar á vettvangi breytist afmörkun lóðanna lítilsháttar á þessa leið:

Skjólvegur 1 er 5024,6 m² en verður 5000,0 m².

Skjólvegur 2 er 6527,7 m² en verður 6333,3 m².

Skjólvegur 3 er 5001,5 m² en verður 5000,0 m².

Skjólvegur 4 er 6584,5 m² en verður 6333,1 m².

Skjólvegur 5 er 5001,4 m² en verður 5000,0 m².

Skjólvegur 6 er 9017,5 m² en verður 9323,3 m².

Upprunajörðin Árbæjarhellir 2, L198670, stækkar því um 170,7 m² skv. merkjalýsingu frá Jóhönnu Sigurjónsdóttur dags. 1.4.2025
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagðar leiðréttingar og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

3.Hagi lóðir við E-Gíslholtsvatn. Leiðrétting á afmörkun

2508030

Eigendur fjögurra samliggjandi lóða við Gíslholtsvatn óska eftir leiðréttingu á afmörkun lóða sinna í samræmi við merkjalýsingu frá Jóhönnu Sigurjónsdóttur. Vísað er til afsala og sölugjörninga því til staðfestu.

Lóðirnar eru Hagi lóð L176724, sem verður 10.494,4 m² eftir breytingu; Hagi lóð L222632 sem verður 10.000 m² eftir breytingu; Hagi loð L165221 sem verður 10.600 m² eftir breytingu og Hagi lóð L165223 sem verður 14.900 m² eftir breytingu. Upprunajörðin er Hagi L165085. Landnotkun breytist ekki en um frístundasvæði er að ræða.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagðar leiðréttingar og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

4.Krikakot - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

2508027

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Íslandsturna hf um uppsetningu á fjarskiptamastri á lóðinni Krikakot úr landi Köldukinnar í samræmi við aðaluppdrætti frá Bjarka Guðmundssyni dags. 28.7.2025.

Forsmíðað heitgalvanhúðað stálmastur (röramastur) er fest á staðsteypta undirstöðu með festiboltum. Undirstöður eru gerðar á þjappað undirlag með jarðfyllingu ofan á steypufæti. Steyptur hnallur undir mastur og búnað verður sýnilegur í frágengnu landi. Erindinu vísað til nefndarinnar þar sem uppsetning mastursins er ekki í samræmi við deiliskipulag svæðisins.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að erindið verði grenndarkynnt nærliggjandi lóðarhöfum á svæðinu. Þar sem staðsetning mastursins er hugsuð í miðri skipulagðri byggð tekur nefndin réttast að umsækjandi geri nauðsynlegar breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem mastrið verði sett inn.

5.Nes land L164744. Ósk um breyting á aðkomu.

2506093

Eigendur óska eftir að fá að útbúa betri aðkomu að lóð sinni en fyrir liggur. Ógerningur virðist vera að hafa áður samþykkta aðkomu sökum mikils landhalla.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við að aðkoma breytist frá því sem fyrir liggur. Nefndin leggur til að aðkoman verði tekin inn á núverandi veg u.þ.b. 200 metrum frá lóðamörkum en leggist ofan / austan lóðarinnar, inn að miðju hennar og þar inn. Allur stofnkostnaður og viðhald leggist á umsækjanda. Nefndin setur það sem skilyrði að ef umrædd tenging geti nýst öðrum lóðarhöfum í framtíðinni verði það heimilt. Jafnframt áskilur sveitarfélagið sér rétt til að endurskoða legu vegarins ef sveitarfélagið kýs að nýta landið til annarra nota en er í dag. Nefndin leggur til að gerð verði breyting á gildandi deiliskipulagi á kostnað umsækjanda þar sem ný aðkoma verði skilgreind.

6.Hella. Tenging göngu,- reið- og hjólaleiða

2508016

Sveitarstjórn hefur samþykkt að hafin verði vinna við skilgreiningu á tengingum göngu,- reið- og hjólaleiðum innan Hellu.
Skipulags- og umferðarnefnd felur skipulagsfulltrúa að útbúa yfirlitskort af öllum leiðum og setja inn á kortasjánna.

7.Hraðahindranir. Tegundir og staðsetning

2508017

Farið yfir stöðu hraðahindrana og lagðar til úrbætur þar sem þess er þörf.
Hafin er vinna við að kortleggja allar hraðahindranir og mun sú samantekt verða lögð fram á næsta fundi nefndarinnar með það fyrir augum að hvert tilfelli verði metið í samræmi við leiðbeiningar Vegagerðarinnar þar um.

8.Umferðarmál 2025. Staða mála

2505035

Farið yfir stöðu umferðarmála 2025
Skipulags- og umferðarnefnd hvetur framkvæmdasvið sveitarfélagsins til að ganga frá þeim málum sem þegar hafa verið ákveðin á vettvangi stjórnsýslunnar

9.Rangárþing ytra, reglugerð um skilti

1612036

Farið yfir áherslur í reglugerð um skilti.
Borið hefur á að skilti hafi verið sett upp í þéttbýlinu á Hellu án þess að sótt hafi verið um slíkt. Byggingarfulltrúa verði gert að bregðast við því.

10.Kvörtun vegna umferðar ökutækja á göngustíg

2508041

Kvörtun barst vegna umferðar ökutækja á göngustíg
Skipulags- og umferðarnefnd tekur fyrir kvörtun sem borist hefur vegna aksturs ökutækja á göngu- og hjólastíg sem liggur yfir hólinn við enda Freyvangs/ofan Heiðvangs í átt að Hesthúsvegi/Eyjasandi. Í kvörtuninni kemur fram að gangandi vegfarandi hafi mætt þar jeppabifreið á akstri með kerru, sem skapaði hættu fyrir gangandi vegfarendur. Ökumaður bifreiðarinnar, virtist vera að stytta sér leið frá Freyvangi með rusl á kerru á leið sinni að grenndargámasvæði.
Umferð ökutækja á göngu- og hjólastígum er bönnuð samkvæmt umferðarlögum nr. 77/2019 og slík háttsemi getur varðað sektum. Nefndin tekur málið alvarlega og leggur áherslu á að stígurinn var upphaflega lagður með það að markmiði að bæta öryggi barna á leið sinni frá íbúðahverfinu í Ölduhverfi til og frá grunnskóla Hellu og íþróttasvæði þorpsins.
Tillögur nefndarinnar
Nefndin telur brýnt að gripið verði til eftirfarandi aðgerða til að tryggja öryggi vegfarenda á svæðinu:
1.
Stígurinn verði kláraður að Heiðvangi með malbikun í samræmi við umsókn og gögn sem fylgdu framkvæmdaleyfi göngustígarins fyrir um ári síðan. Þjónustumiðstöð sveitarfélagsins annist það sérstaklega fyrir haustið og verði það framkvæmt meðfram öðrum malbikunarframkvæmdum sem fyrirhugaðar eru í september.
2.
Bætt verði við lýsingu við stíginn.
3.
Öryggisbætur á stígnum verði gerðar, þar á meðal frágangur á grófri möl meðfram stígnum, og gripið verði til aðgerða gegn hálku og vatnssöfnun á bröttum og hlykkjóttum köflum.
4.
Settar verði viðeigandi umferðarmerkingar sem árétta að stígurinn er eingöngu ætlaður gangandi og hjólandi vegfarendum.
5.
Koma verði fyrir hindrunum sem tryggja að bifreiðar geti ekki farið þessa leið.

Skipulags- og umferðarnefnd leggur ríka áherslu á að sveitarfélagið bregðist við framangreindum atriðum til að tryggja öryggi allra vegfarenda, sérstaklega barna.

11.Lýtingsstaðir 6. Deiliskipulag

2505072

Eigendur Lýtingsstaða 6 hafa auglýst tillögu að deiliskipulagi þar sem gert er ráð fyrir byggingu tveggja einbýlishúsa, tveggja gestahúsa ásamt skemmu. Skipulagsgögn frá Axel Benediktssyni dags. 20.5.2025. Tillagan var auglýst frá og með 11.6.2025 til og með 30.7.2025. Umsagnir bárust frá Mílu, Náttúruverndarstofnun, Veitum, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Landsneti sem gerðu engar athugasemdir; frá Vegagerðinni sem hafnar framlagðri tillögu að vegtengingu og frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem bendir á að öxulþungi vega innan svæði skuli vera 32 tonn og að trjágróður megi ekki hindra aðkomu slökkvibíla.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

12.Helluflugvöllur. Skipulagsmál

2101015

Samráðsferli um skipulag á flugtengdri starfsemi innan Helluflugvallar.
Skipulags- og umferðarnefnd telur sýnd staðsetning henta mun betur en sú fyrri. Nefndin leggur áherslu á að Flugmálafélag Íslands skili til sveitarfélagsins þeim upplýsingum sem þeir voru beðnir um á fundi 24. mars 2025, sem taka eiga á framtíðarsýn flugvallarins á Hellu. Lagt fram til kynningar.

13.Skipulagsmál á hálendi. Grashagi fjallasel

2508040

Í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins er svæðið við Grashaga skilgreint sem Afþreyingar- og ferðamannasvæði AF17. Fjallasel á afrétti. Gert er ráð fyrir aðstöðu til útiveru, þjónustuhús, snyrtingu, gistingu og dagdvalaraðstöðu við heita laug sem er í Grashaga, gistiaðstaða fyrir allt að 30 manns. Stærð svæðis er um 1 ha.
Farið var yfir áherslur og möguleika til að gera Grashagann að eftirsóknarverðum kosti fyrir ferðaþjónustu. Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í erindið en telur það ekki samræmast fjárhagsáætlun viðkomandi sviðs og leggur til að ákvörðun bíði næstu fjárhagsáætlunar.

14.Hvammsvirkjun. Kærur nr. 132-133- og 134-2024.

2410061

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sendir tilkynningu um afturköllun á stjórnsýslukæru nr. 133/2024 vegna framkvæmdaleyfis fyrir Hvammsvirkjun.
Lagt fram til kynningar.

15.Hvammsvirkjun. Kæra 130_2025 vegna veitingu framkvæmdaleyfis.

2508039

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sendir afrit kæru dags. 18.8.2025, móttekin af nefndinni sama dag.

NASF Á ÍSLANDI, kt. 601217-2440, Síðumúla 34, Reykjavík, NÁTTÚRUGRIÐ, kt. 490721-0960, Bergþórugötu 17, Reykjavík, NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK ÍSLANDS, kt. 460697-2049 Hafnarstræti 5, Reykjavík, hafa falið lögmanni að kæra ákvörðun sveitarstjórnar Rangárþings ytra frá 15. ágúst 20251 um að veita Landsvirkjun nýtt framkvæmdaleyfi skv. umsókn fjórum dögum fyrr, vegna Hvammsvirkjunar í stað annars sem veitt var 16. október 2024. Jafnframt er afturkölluð kæra sömu aðila frá 23. október 2024 á síðastgreindu leyfi, mál nefndarinnar 133/2024. Kært er ætlað brot á þátttökurétti almennings í mati á umhverfisáhrifum almennt og aðrir ágallar á málsmeðferð, meðal annars en ekki einvörðungu að því er varðar áhrif á grunnvatn og eldhraun.
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 11:00.