1.Marteinstunga landskipti. Sólbakkaland.
2510027
Eigandi Marteinstungu óskar eftir að fá að skipta úr jörð sinni, 7,7 ha spildu sem fengi heitið Sólbakkaland og L240400. Engin áform eru um breytingu á landnotkun. Merkjalýsing frá Hugrúnu Hörpu Björnsdóttur dags. 22.9.2025.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
2.Rangárflatir 2, breyting á mörkum lóðar
2510024
Rangárflatir 2, L230717 er með skráða stærð 12359,5 m² í fasteignaskrá HMS. Afmörkun lóðarinnar breytist ásamt stærð hennar þar sem jarðstrengur og helgunarsvæði hans er tekið út fyrir núverandi mörk.
Rangárflatir 2 minnkar um 2592,5 m² og verður 9767,0 m².
Mismunurinn fer inn í Gaddstaðir L164482, sem er ekki með skráða stærð en stækkar um það sem því nemur. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 15.9.2025.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
3.Ægissíða 3. Landskipti
2510019
Eigendur Ægissíðu 3 óska eftir að fá að skipta upp jörð sinni milli núverandi eiganda. Við skipti verða til 8 ný landnúmer og ein landeign sem þegar er til stækkar, en það er Ægissíða 3 lóð 1 L203253, sem verður 27,6 ha. Aðrar lóðir verða Ægissíða lóð 2, 25,9 ha og Lxxxxxx, lóð 3, 28,0 ha og Lxxxxxx, lóð 4, 24,4 ha og Lxxxxxx, lóð 5, 27,5 ha og Lxxxxxx, lóð 6, 33,5 ha og Lxxxxxx, lóð 7, 11,5 ha og Lxxxxxx, lóð 8, 19,5 ha og Lxxxxxxog lóð 9, 3,5 ha og Lxxxxxx.
Fyrir breytingu er Ægissíða 3 skráð 202 ha. Eftir breytingu verður Ægissíða 3 7893,8 m2 eða 0,79 ha. Engin áform eru um breytingu á landnotkun útskiptra lóða. Merkjalýsing er frá Adam Hoffritz dags. 30.9.2025.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Nefndin vill árétta að allar aðkomur að lóðum verði í samræmi við veghönnunar- og öryggisreglur Vegagerðarinnar.
4.Umferðarmál 2025. Staða mála
2505035
Farið yfir stöðu umferðarmála 2025
Staða mála kynnt
5.Svínhagi L8A. Deiliskipulag.
2510026
Sótt er um heimild til að leggja fram deiliskipulag. Gert verði ráð fyrir að byggðir verði allt að 15 gistiskálar til útleigu til ferðamanna. Ekki er gert ráð fyrir föstu aðsetri að svo stöddu.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir umsókn umsækjanda og telur að gera þurfi breytingar á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi vegna fram lagðra áforma. Núverandi lóð er á skilgreindu landbúnaðarsvæði skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 og verður að breytast í Verslunar- og þjónustusvæði ef áform umsækjanda eiga fram að ganga.
Umsækjanda er veitt heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Jafnframt er skipulagsfulltrúa falið að vinna að breytingu á gildandi aðalskipulagi til samræmis við áform umsækjanda, á hans kostnað.

6.Svínhagi L7. Deiliskipulag
2510025
Sótt er um heimild til að leggja fram deiliskipulag. Gert verði ráð fyrir að byggðir verði allt að 10 gistiskálar til útleigu til ferðamanna. Ekki er gert ráð fyrir föstu aðsetri að svo stöddu.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir umsókn umsækjanda og telur að gera þurfi breytingar á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi vegna fram lagðra áforma. Núverandi lóð er á skilgreindu landbúnaðarsvæði skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 og verður að breytast í Verslunar- og þjónustusvæði ef áform umsækjanda eiga fram að ganga.
Umsækjanda er veitt heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Jafnframt er skipulagsfulltrúa falið að vinna að breytingu á gildandi aðalskipulagi til samræmis við áform umsækjanda, á hans kostnað.
Umsækjanda er veitt heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Jafnframt er skipulagsfulltrúa falið að vinna að breytingu á gildandi aðalskipulagi til samræmis við áform umsækjanda, á hans kostnað.
7.Kjarralda 1&2 auk Lyngöldu 2. Ósk um breytingu á deiliskipulagi.
2510040
Lóðarhafi Kjarröldu 1, Kjarröldu 3 og Lyngöldu 2 óskar eftir að fá að gera breytingar á deiliskipulagi lóðanna, þar sem óskað er eftir heimild til að fjölga íbúðum. Á Kjarröldu 1 og Lyngöldu 2 verði heimild til byggingar 6 íbúða raðhúss í stað 4 og á Kjarröldu 3 verði gert ráð fyrir 7 íbúðum í stað 5.
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra hefur fjallað um erindi lóðarhafa Kjarröldu 1, Kjarröldu 3 og Lyngöldu 2 um breytingu á deiliskipulagi til fjölgunar íbúða. Nefndin telur að gatan og tengdir innviðir s.s veitur séu ekki hönnuð til að bera þá auknu umferð og bílastæðaþörf sem fjölgun íbúða hefði í för með sér, og að öryggi og gæði umhverfis verði ekki tryggð með fyrirliggjandi gögnum. Þá liggja ekki fyrir rök sem sýna fram á að gildandi deiliskipulag hamli því að bjóða íbúðir sem falli undir reglur um hlutdeildarlán; skilyrðum um lágmarksstærðir og íbúðagerðir verður að mati nefndarinnar unnt að mæta með hönnun innan heimilaðs íbúðafjölda og byggingarmagns. Ekki eru því efni til að víkja frá skipulagsforsendum í þágu tiltekinnar fjármögnunarleiðar. Að þessu virtu er erindinu hafnað.
8.Þjóðólfshagi. Breyting á deiliskipulag
2510046
Eigandi lóðanna nr 27 og 28 í Þjóðólfshaga óskar eftir að breyta gildandi deiliskipulagi þar sem uppfærðir verða byggingarskilmálar beggja lóða í tengslum við breytingar á afmörkun þeirra. Breyting er gerð á innri afmörkun lóðanna og byggingarreitum innan þeirra. Tillaga frá Eflu dags. 13.10.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu með fyrirvara um að skýr aðkoma sé að hverri lóð og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
9.Norður Nýibær Breyting á landnotkun í aðalskipulagi
2505009
Landeigandi óskar eftir heimild til breytingar á núverandi landnotkun á hluta landareignar Norður-Nýibær L165410. Heildarstærð svæðis er um 25 ha og hluti þess verður skilgreindur sem íbúðabyggð. Fyrirhugað er að hluti íbúðarlóða verði 1 - 1,5ha að stærð hver og að heimilt verði að reisa íbúðarhús og bílskúr auk gestahúsa til útleigu allt árið um kring fyrir ferðamenn. Heimild yrði til lítilsháttar reksturs innan svæðis. Gert er ráð fyrir aðkomu að norðanverðu inn á spilduna af Þykkvabæjarvegi. Lýsing var kynnt með fresti til athugasemda til 1. október. Vegagerðin gerði athugasemd við tengingar inná Þykkvabæjarveg. Lögð er fram tillaga frá Eflu dags. 1. október 2025.
Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar nefndarinnar.
10.Suðurlandsvegur gegnum Hellu. Deiliskipulag
2301069
Rangárþing ytra hefur samþykkt að vinna að deiliskipulagi fyrir Suðurlandsveg gegnum Hellu, frá tengingum göngu- og hjólreiðastígar vestan við Rangá og að vegamótum Rangárvallavegar í austri. Skilgreindar verði tengingar og staðsetning stíga og lagna. Eftir auglýsingu tillögunnar barst athugasemd frá Skipulagsstofnun þess eðlis að skipulagsmörk sköruðust við aðrar aðliggjandi skipulagsáætlanir og því þurfi að breyta. Lögð er fram ný tillaga frá Eflu dags. 28.7.2025 þar sem skipulagsmörkin hafa verið samræmd. Tillagan var endurauglýst frá og með 13.8.2025 til og með 1.10.2025. Umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum:
Mílu, Landsneti, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Veitum, sem gerðu engar athugasemdir en óskuðu eftir samráði við væntanlegar framkvæmdir; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem gerði engar athugasemdir; frá Náttúruverndastofnun sem gerði engar athugasemdir; frá Þorsteini Kristinssyni sem gerir athugasemdir við útfærslu á gatnamótum Suðurlandsvegar og Rangárvallavegar og frá Vegagerðinni sem gerir athugasemdir við tengingu til austurs inná Suðurlandsveginn frá lóðinni næst hringtorginu.

Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin vill árétta við Vegagerðina að nú þegar liggur fyrir samþykki Vegagerðarinnar fyrir umræddri tengingu rétt austan við hringtorgið. Nefndin tekur undir með Þorsteini Kristinssyni um nauðsyn þess að gera vegamót Suðurlandsvegar og Rangárvallavegar betri en þau eru í dag, en sér ekki fyrir sér að þær lausnir sem bent er á verði að veruleika á næstu árum. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við Vegagerðina um vegtengingu við Suðurlandsveg 2 og frestar afgreiðslu málsins.
11.Bjálmholt. Deiliskipulag verslunar- og þjónustuhúss
2507054
Þorkell Jónsson fyrir hönd landeigenda Bjálmholts L165072 óskar eftir heimild til að leggja fram deiliskipulag úr jörð sinni. Um er að ræða uppbyggingu á framleiðslu- og þjónustuhúsi til að framleiða og selja afurðir sínar, ásamt því að taka á móti ferðamönnum til að kynna starfsemi bæjarins. Lögð er fram tillaga frá M11 arkitektum dags. 5.8.2025. Fallið hefur því verið frá uppbyggingu nær Landvegi og tilheyrandi málum því lokað, bæði í málakerfinu og í skipulagsgáttinni. Tillaga var auglýst frá og með 13.8.2025 til og með 1.10.2025. Umsagnir bárust frá eftirfarandi aðilum:
Frá Mílu, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Veitum sem gerðu engar athugasemdir en óskaðu samráðs við frekari framkvæmdir; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem bentu á að öxulþungi á svæðinu verði 32 tonn, að gróður hindri ekki aðkomu slökkviliðs og að tryggja verði nægt slökkvivatn á svæðinu; frá Náttúruverndarstofnun sem gerði engar athugasemdir; frá Vegagerðinni sem samþykkir tengingu við þjóðveg með fyrirvörum;

Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila og telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu. Nefndin leggur því til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
12.Lyngás. Breyting á deiliskipulagi
2410080
Landeigendur hafa lagt fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi dags. 25.3.2010. Breytingin tekur til tveggja nýrra lóða, vegtengingar og hljóðmanar. Stærð svæðis er um 1,6 ha og verða lóðir 11 í stað 9 áður. Skipulagsgögn frá Eflu dags. 28.10.2024. Tillaga var auglýst frá og með 13.11.2024 til og með 1.1.2025. Vegna óverulegra breytinga sem gerðar voru á skilmálum í aðalskipulagi eftir auglýsingu tillögunnar þarf að taka hana fyrir á nýjan leik. Tillagan var auglýst frá og með 13.8.2025 til og með 1.10.2025. Umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum:
Frá Mílu, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Veitum sem gerðu engar athugasemdir en óskuðu eftir samráði við frekari framkvæmdir á svæðinu; frá Landsneti sem ítrekar að farið verði eftir ákvæðum um helgunarsvæði raflína og að helgunarsvæði Lækjartúnslínu 2 verði afmarkað á uppdrætti; frá Brunavörnum Rangárvllasýslu sem bendir á að aðkomuleiðir innan svæðis skuli vera 32 tonn og að gróður skuli ekki hindra aðkomu slökkviliðs; frá Vegagerðinni sem bendir á að ef Suðurlandsvegur breikkar gæti aðkoma af Bugavegi breyst með tilheyrandi fækkun vegtenginga auk þess sem gróður gæti orðið víkjandi af sömu ástæðu;

Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
13.Heysholt og Landborgir. Breyting á deiliskipulagi
2507034
Landeigendur í Heysholti Guðmundur Björnsson kt. 030537-3199 og Guðrún Lóa Kristinsdóttir kt. 270139-2809 eigendur eigna með landeignanúmer L164975 og L216515 og Landborga kt: 580581-0569 eigandi eignar með landeignanúmer L216516 óska eftir breytingu á deiliskipulagi Heysholts sem samþykkt var með auglýsingu í B-deild 7.6.2013. Í deiliskipulagsbreytingunni felst að mörk skipulagssvæðisins stækkar til norðurs, afmörkuð er ný 3.300 m² lóð fyrir rotþró og lóð nr. 8 minnkar úr 4.110 m² í 2.600 m². Byggingarreitur á lóð 8 minnkar. Samhliða breytingunni var lóðastærð lóðar til síðari nota lagfærð til samræmis við mæliblað úr 57.935 m² í 62.043 m². Lóð til síðari nota fyrir frístundabyggð stækkar úr 57.935 m² (62.043m²) í 65.343 m². Byggingarreitur hótels færist til á lóð. Með snúningi byggingarreits næst betra útsýni og húsið situr betur gagnvart sólu. Staðsetning spennistöðvar lóðar færist til til samræmis við landeignaskrá. Ný lóð fyrir Rotþró 3.300 m², sem tekin er úr landi Heysholts með landeignanúmeri L164975 verður í eigu Landborga og mun tilheyra landeignanúmeri L216516 eftir breytingu. Lóð til síðari nota fyrir frístundabyggð L216515 mun stækka um 3.300 m². Tillagan var auglýst frá og með 13.8.2025 til og með 1.10.2025. Umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum:
Frá Mílu og Veitum sem gerðu engar athugasemdir en óskuðu eftir samráaði við framkvæmdir; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem óskuðu eftir að burðarþol aðkomuleiða innan svæðis verði 32 tonn og að gróður hindri ekki aðkomu slökkvibíla; frá Vegagerðinni sem gerði engar athugasemdir; frá Náttúruverndarstofnun sem bendir á að innan svæðis sé hraun sem njóti sérstakrar verndar og þurfi því að draga úr áhrifum framkvæmda vegna þess, að innan svæðis er vistgerðin Víðikjarrvist sem er með mjög hátt verndargildi og safnar í sig mikið af fuglum og frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem gerir engar athugasemdir en bendir á að ekki sé hægt að taka afstöðu til stærðar fráveitu þar sem ekki liggi fyrir umfang gististarfsemi eða frístundabyggðar. Því skuli hafa samráð við HSL þegar kemur að vali á fráveitulausnum síðar.
Frá Mílu og Veitum sem gerðu engar athugasemdir en óskuðu eftir samráaði við framkvæmdir; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem óskuðu eftir að burðarþol aðkomuleiða innan svæðis verði 32 tonn og að gróður hindri ekki aðkomu slökkvibíla; frá Vegagerðinni sem gerði engar athugasemdir; frá Náttúruverndarstofnun sem bendir á að innan svæðis sé hraun sem njóti sérstakrar verndar og þurfi því að draga úr áhrifum framkvæmda vegna þess, að innan svæðis er vistgerðin Víðikjarrvist sem er með mjög hátt verndargildi og safnar í sig mikið af fuglum og frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem gerir engar athugasemdir en bendir á að ekki sé hægt að taka afstöðu til stærðar fráveitu þar sem ekki liggi fyrir umfang gististarfsemi eða frístundabyggðar. Því skuli hafa samráð við HSL þegar kemur að vali á fráveitulausnum síðar.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
14.Leynir 2. Deiliskipulag.
2508002
Í gildi er deiliskipulag fyrir Leyni, dags. B-deildar auglýsingar 28. jan. 2021. Í því skipulagi var heimild fyrir nokkuð umfangsmikilli gistingu og þjónustu við ferðamenn. Með nýju deiliskipulagi er dregið verulega úr umfangi starfsemi. Eldra deiliskipulag verður fellt úr gildi við gildistöku nýs deiliskipulags. Nýtt deiliskipulag nær yfir um 4 ha af landi Leynis 2. Leynir 2 er skráð 25 ha að stærð skv. fasteignaskrá HMS. Gert er ráð fyrir aðstöðu starfsmanna í þjónustuhúsi og gistingu í minni gestahúsum (kúluhúsum) fyrir allt að 50 gesti, skv. flokki II. Þá verður áfram heimilt að reka tjaldsvæði. Lýsing skipulagsáforma var kynnt til og með 1.10.2025. Umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum:
Frá Mílu sem geri engar athugasemdir; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem óskar eftir að burðarþol innan svæðis verði 32 tonn og að gróður hindri ekki aðkomu slökkvibíla; frá Veitum sem gerði engar athugasemdir; frá Vegagerðinni sem gerði engar athugasemdir; frá Skipulagsstofnun sem gerir engar athugasemdir en bendir á að endurskoðun taki til minna svæðis en gildandi dsk, að hafa skuli gott samráð við nærliggjandi aðila og að framkvæmdin fellur undir tilkynningaskylda framkvæmd skv. lögum nr. 111/2021; frá Náttúruverndarstofnun sem bendir á að áhrif mannlegra umsvifa geti haft áhrif á búsvæði fugla og frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem gerir athugasemdir við að vatnsból norðan Landvegar skuli ekki skilgreint betur gagnvart vatnsvernd, að vanáætlað sé heildarfjöldi persónueininga og að hreinsivirki frá veitu sem þjóni meira en 50 persónueiningum sé háð starfsleyfi. Því sé nauðsynlegt að fjallað verði um umfang slíks hreinsivirkis í greinargerð. Lögð er fram tillaga frá Eflu dags. 13.10.2025.

Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin vill árétta að áform um uppbyggingu tjaldsvæðis í samræmi við áform umsækjanda séu ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 106/2000. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
15.Laufafell. Breyting á deiliskipulagi.
2510006
Neyðarlínan áformar að skipta út núverandi rafstreng frá fjarskiptastöðinni við Laufafell. Lögð er fram tillaga að breytingu á gildandi deiliskipulagi sem birt var í B-deild stjórnartíðinda 5.6.2014 þar sem ný leið er skilgreind.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
16.Steinkusel. Breyting á deiliskipulagi
2502070
Eigendur lóða innan Steinkusels, svæðis úr landi Efra-Sels, óska eftir að fá að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi dags. september 2010. Lóðirnar sem um ræðir eru Kúfholt I L165021, Kúfholt II L220223, Kötlusel lóð F3 L220224, Fjallasel lóð F4 L220225 og Kúfholt III L220226. Breytingarnar eru þannig að stærðir lóða breytast og lóðunum fjölgar í 8 landspildur (stærð lóða 0,5-1,0 ha.), heiti á lóðum breytast einnig (að hluta til). Byggingarreitir afmarkast 10m frá lóðamörkum. Heimilt verði að byggja íbúðarhús með bílskúr, gestahús, skemmu/geymslu og gróðurhús. Samhliða óska landeigendur eftir að sækja um breytta landnotkun í aðalskipulagi, fara úr frístundabyggð og í íbúðabyggð í dreifbýli. Landeigendur stefna að því að hafa fasta búsetu á svæðinu. Lögð er fram tillaga frá Atla Ágústssyni dags. 2.6.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu með fyrirvara um að aðkomur verði betur skilgreindar fyrir allar lóðir innan svæðisins. Nefndin leggur til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Gunnar Aron víkur sæti við meðferð og afgreiðslu málsins
17.Heiðvangur 8 og 10. Staðfesting á lóðamörkum
2508061
Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr. 8 og 10 við Heiðvang. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 26.8.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðarinnar og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
Gunnar Aron kemur aftur inn á fundinn
18.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 151
2508002F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 151 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
19.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 152
2508009F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 152 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
20.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 153
2509001F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 153 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
21.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 154
2509006F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 154 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
22.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 155
2509010F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 155 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
23.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 156
2510003F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 156 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
Fundi slitið - kl. 10:30.