54. fundur 06. nóvember 2025 kl. 08:30 - 11:00 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Gunnar Aron Ólason formaður
  • Þórunn Dís Þórunnardóttir aðalmaður
  • Þröstur Sigurðsson aðalmaður
  • Svavar L. Torfason aðalmaður
  • Brynhildur Sighvatsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson embættismaður
  • Jón Ragnar Örlygsson
Fundargerð ritaði: Haraldur Birgir Haraldsson Skipulags- og byggingarfulltrúi

1.Skinnar land, L192282. Landskipti. Klöpp

2502067

Lóðin Klöpp L239037 hefur verið skipt úr landi Skinna L192282. Á uppdrætti sem var fylgigagn landskiptanna við afgreiðslu nefndarinnar frá 6.3.2025 var sýnd aðkoma að lóðinni í gegnum óskipta sameign Austurbæjarmýrarinnar. Borist hafa athugasemdir frá eigendum í óskiptunni þar sem umræddri aðkomu er hafnað þar sem ekki var um neitt samráð að ræða við eigendur óskiptunnar.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir athugasemd sem henni barst þann 23. október 2025 varðandi mál nr. 2502067 "Skinnar land, L192282. Landskipti. Klöpp.", þar sem mótmælt er fyrirhugaðri aðkomu yfir óskipta sameign Austurbæjarmýrar. Nefndin áréttar að fyrri bókun 6. mars 2025, og staðfesting sveitarstjórnar þann 12. mars 2025, fól hvorki í sér stofnun umferðarréttar né endanlega ákvörðun um legu á aðkomu um land annarra. Umferðarréttur yfir einkalandi stofnast einungis með þinglýstum samningi eða skipulagskvöð í deiliskipulagi og, náist ekki samkomulag, þá aðeins með eignarnámi og bótum samkvæmt lögum. Nefndin telur að það sé á ábyrgð merkjalýsanda að ganga svo frá málum að fullt samráð ríki um sýndar aðkomur á uppdráttum landskipta.

Með hliðsjón af framkomnum athugasemdum bókar nefndin jafnframt að komi til framkvæmda á þegar stofnaðri spildu skuli í slíkum umsóknum gerð skýr og fullnægjandi grein fyrir aðkomu að spildunni og lögmætum heimildum hennar sem stofnaðar verða með gerð deiliskipulags, þar sem upp hafa komið athugasemdir eigenda um að sýnd aðkoma hafi ekki verið samþykkt.
Nefndin staðfestir efnislega fyrri afgreiðslu um að gera ekki athugasemdir við viðkomandi landskipti og heitið „Klöpp“.

2.Austvaðsholt 2 og Grásteinn. Staðfesting á landamerkjalínu

2510273

Lögð er fram merkjalýsing sem sýnir landamerkjalínu milli jarðanna Austvaðsholts 2 og Grásteins. Allir eigendur hafa staðfest afmörkun og hnitsetningu línunnar með áritun á merkjalýsinguna. Merkjalýsing frá Jóhönnu Sigurjónsdóttur, dags. 10.10.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við samþykkt landamerki aðila og leggur til að þau verði samþykkt.

3.Keldur II. Landskipti. Keldur 4.

2510274

Eigandi jarðarinnar Keldur II, L164522, óskar eftir að fá að skipta úr jörð sinni, lóð undir iðnaðarsvæði fyrir væntanlega Tunguvirkjun og þau mannvirki sem henni fylgja. Lóðin verði 44,3 ha að stærð, fengi heitið Keldur 4 og Lxxxxxx. Keldur II verður 5736,1 ha eftir breytingu. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur dags. 17.10.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

4.Heysholt og Landborgir. Landskipti og samruni

2510275

Eigendur Heysholts L164975 óska eftir að fá að skipta úr jörð sinni, 3300 m² spildu undir rotþró fyrir hótelið. Lóðin sameinast Vörðum L216516. Stærð Varða L216516 helst óbreytt þar sem samhliða er skipt úr henni tveimur spildum, annars vegar 1506 m² og hins vegar 1791 m², sem sameinast Vörðum lóð 1 L216515. Vörður lóð 1 verður 6,4 ha eftir breytinguna. Jörðin Heysholt l164975 verður 51,8 ha eftir breytinguna. Ekki er gert ráð fyrir að landnotkun breytist við þessar hliðranir en unnið er að gerð breytinga á gildandi deiliskipulagi sem tekur á þessum breytingum. Merkjalýsing frá Hallvarði Vignissyni, dags. 16.9.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

5.Gaddstaðir 11. Sameining Gaddstaðir 11a í upprunalóð

2510312

Gaddstaðir 11a L230680 sameinast upprúnalóðinni Gaddstaðir 11, L164608 og falla merki á milli þeirra niður. Allar kvaðir falla niður. Eftir samruna verða báðar fasteignir, sumarhús, innan Gaddstaða 11, L164608. Merkjalýsing frá Halldóru Narfadóttur dags. 16.10.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

6.Ósk um álit vegna lokunar reileiðar í gegnum land Leirubakka, Vatnagarðs og Galtalækjar

2510166

Landeigandi á Minni-Völlum og Íshestar óska eftir áliti vegna lokunar reiðleiðar í gegnum land Leirubakka, Vatnagarðs og Galtalækjar að Sporðavaði á Ytri-Rangá. Reiðleiðin yfir Sporðavað í gegnum áðurnefndar jarðir hefur verið haldið lokaðri undanfarin ár að frumkvæði landeiganda að Leirubakka.
Vísað er til samskipta við lögmann sveitarfélagsins vegna fram kominnar fyrirspurnar.
Í 26. gr. náttúruverndarlaga kemur fram að óheimilt sé að setja niður girðingu á vatns-, ár- eða sjávarbakka þannig að hindri umferð gangandi manna. Ef mannvirki hindrar för um bakka skal sem kostur er séð fyrir göngustíg kringum mannvirkið og að bakkanum aftur. Þá segir í ákvæðinu að þegar girða þarf yfir forna þjóðleið eða skipulagðan göngu-, hjólreiða- eða reiðstíg skal sá sem girðir hafa þar hlið á girðingu.
Almennt séð er því bannað að girða yfir forna þjóðleið nema það sé haft hlið á girðingunni. Þetta gildir líka um reiðvegi.
Eiganda er óheimilt að hindra almenning í að njóta þeirra réttinda sem mælt er fyrir í ákvæði 26. gr. náttúruverndarlaga. Sá sem verður var við hindranir sem hann telur brjóta gegn þessum réttindum getur krafist úrlausnar Náttúruverndarstofnunar um þær. Úrlausn Náttúruverndarstofnunar má skjóta til ráðherra.
Skipulags- og umferðarnefnd telur því afar varhugavert að sveitarfélagið gerist úrskurðaraðili um einkaréttarlegan ágreining aðila. Best fer á því að einkaaðilar leysi úr svona þrætum sjálfir t.a.m með því að leggja hann fyrir Náttúruverndarstofnun.

7.Sigöldugljúfur

2410024

Farið yfir þau tilboð sem bárust vegna frumhönnunar á skipulagi fyrir Sigöldugljúfur. Tilboð bárust frá tveimur aðilum af þremur sem boðið var þátttaka.
Skipulags- og umferðarnefnd fór yfir þær áherslur sem bjóðendur lögðu fyrir í tilboðum sínum. Nefndin leggur til að samið verði við Batteríið sem er lægstbjóðandi. Nefndin leggur áherslu á að vinna verði sett af stað sem fyrst.

8.Hvammsvirkjun. Kæra nr. 134_2025 vegna veitingar framkvæmdaleyfis.

2508064

Kröfu um ógildingu hafnað

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði í vikunni kröfu um að fella úr gildi virkjunarleyfi til bráðabirgða vegna undirbúningsframkvæmda Hvammsvirkjunar sem Umhverfis- og orkustofnun veitti í ágúst sl. Stofnunin hefur nú beiðni um endurútgáfu virkjunarleyfis til umfjöllunar og er von á niðurstöðu öðru hvoru megin við áramótin.
Lagt fram til kynningar

9.Norður Nýibær Breyting á landnotkun í aðalskipulagi.

2505009

Landeigandi óskar eftir heimild til breytingar á núverandi landnotkun á hluta landareignar Norður-Nýibær L165410. Heildarstærð svæðis er um 25 ha og hluti þess verður skilgreindur sem íbúðabyggð. Fyrirhugað er að stærð íbúðarlóða verði 1,1 ha að jafnaði og að heimilt verði að reisa íbúðarhús og bílskúr auk gestahúsa til útleigu allt árið um kring fyrir ferðamenn. Heimild yrði til lítilsháttar reksturs innan svæðis á sérlóð. Gert er ráð fyrir aðkomu að norðanverðu inn á spilduna af Þykkvabæjarvegi. Lýsing var kynnt með fresti til athugasemda til 1. október. Vegagerðin gerði athugasemd við tengingar inná Þykkvabæjarveg. Lögð er fram tillaga frá Eflu dags. 1. október 2025.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar í samræmi við 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 en áður verði hún kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. sömu laga.

10.Tunguvirkjun í landi Keldna. Breyting á aðalskipulagi.

2506047

Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að gerðar verði breytingar á aðalskipulagi vegna fyrirhugaðrar virkjunar í landi Keldna þar sem landnotkun undir virkjunarsvæðið verði gert að iðnaðarsvæði. Lögð er fram lýsing skipulagsáforma frá Eflu dags. 27.10.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning lýsingar skal standa til og með 16. nóvember nk.

11.Þjóðólfshagi 1. Breyting á landnotkun í Verslunar- og þjónustusvæði

2510315

Rangárþing ytra vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin nær til hluta úr jörðinni Þjóðólfshaga 1 þar sem áform eru uppi um rekstur gistiþjónustu í gistiskálum fyrir allt að 60 manns. Lögð er fram lýsing skipulagsáforma frá Eflu dags. 31.10.2024.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning lýsingar skal vera til og með 16. nóvember nk.

12.Gaddstaðaeyja. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

2401044

Rangárþing ytra hefur samþykkt að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á landnotkun í aðalskipulagi í Gaddstaðaeyju, þar sem gert verði ráð fyrir breytingu á landnotkun þar sem núverandi Óbyggt svæði verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði. Lýsing skipulagsáforma hefur verið kynnt auk þess að kynning vinnslutillögu hefur farið fram og var frestur til athugasemda veittur til 1. október. Alls bárust um 10 umsagnir. Kynning vinnslutillögu hefur einnig farið fram og bárust um 10 umsagnir við þá kynningu. Lögð er fram samantekt allra umsagna og drög að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir aðila og samþykkir fyrir sitt leyti þau viðbrögð sem eru sett fram við þeim. Nefndin samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en áður verði hún kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. sömu laga. Nefndin ítrekar að alltaf hafi staðið til að auglýsa breytinguna á aðalskipulaginu og tillögu að deiliskipulagi samhliða eins og lög heimila og ekkert sem bendir til þess að svo geti ekki orðið.
Gunnar Aron vék sæti við meðferð og afgreiðslu málsins

13.Ferjufit. Stækkun efnistökusvæðis. Breyting á aðalskipulagi.

2510325

Rangárþing ytra vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin nær til efnistökusvæðis E122 við Ferjufit á Þjórsáreyrum (L238022). Svæðið stækkar úr 2,0 ha í allt að 5,0 ha og heimiluð efnistaka eykst úr 10.000 m³ í allt að 120.000 m³. Sameiginleg lýsing skipulagsáforma fyrir Tungnaáreyrar og Ferjufit var kynnt frá og með 6.10.2025 til og með 3.11.2025 og bárust umsagnir frá fjórum aðilum.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir athugasemdir og umsagnir við lýsingu skipulagsáforma. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar í samræmi við 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 en áður verði hún kynnt sem vinnslutillaga í samræmi við 2. mgr. 30. gr. sömu laga. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins.
Gunnar Aron vék sæti við meðferð og afgreiðslu málsins

14.Tungnaáreyrar. Stækkun efnistökusvæðis. Breyting á aðalskipulagi.

2510324

Rangárþing ytra vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin nær til efnistökusvæðis E70 í Tungnaáreyrum (L229508). Með þessari breytingu er gert ráð fyrir stækkun svæðisins úr 2,5 ha í allt að 7,5 ha, þar sem heimiluð efnistaka eykst úr 50.000 m³ í allt að 100.000 m³. Sameiginleg lýsing skipulagsáforma fyrir Tungnaáreyrar og Ferjufit var kynnt frá og með 6.10.2025 til og með 3.11.2025 og bárust umsagnir frá fjórum aðilum.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir athugasemdir og umsagnir við lýsingu skipulagsáforma. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar í samræmi við 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 en áður verði hún kynnt sem vinnslutillaga í samræmi við 2. mgr. 30. gr. sömu laga. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins.
Gunnar Aron kom aftur inn á fundinn

15.Faxaflatir 4. Fyrirspurn um stækkun lóðar.

2509044

Óskað er eftir að stækka lóðina Faxaflatir 4 til suðurs. Unnið er að samkomulagi við verslunarkeðju sem kallar á stærra húsnæði en nú er gert ráð fyrir á reitnum. Samhliða er óskað eftir að staðsetning á húsnæði færist sunnar sem stækkun nemur til að koma fyrir fleiri bílastæðum fyrir framan í tengslum við verslunarkeðjuna. Núverandi stærð lóðar og stærð á byggingarreit takmarka þessar forsendu breytingar og eru því lykilatriði í þeirri framþróun sem fyrirhuguð er. Viljayfirlýsing liggur fyrir milli aðila til byggingar á verslunarrými fyrir lágvöruverðsverslun á fyrstu hæð. Lögð er fram merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur dags. 31.10.2025 þar sem lóðin Faxaflatir 4 verður 17.654,4 m² að stærð. Lóðin Faxaflatir minnkar og verður 31.719,1 m² eftir breytinguna.
Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í erindið og leggur til við sveitarstjórn að stækkun lóðarinnar og landskiptin verði samþykkt. Nefndin áréttar þörfina á að samhliða stækkun hennar skuli hafin vinna við breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem áformað er að byggingarmagn muni aukast.

16.Háfshjáleiga 1, 2 og 3. Deiliskipulag

2412017

Landeigandi hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir Háfshjáleigu 1, 2 og 3 þar sem áform eru uppi um byggingu íbúðarhúss, vélageymslu og tengdra útihúsa. Tillagan var auglýst frá og með 13.2.2025 til og með 3.4.2025. Breyting var gerð á framsetningu deiliskipulags eftir auglýsingu. Lögð er fram ný tillaga frá Landnot/Geoform dags. 21.10.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

17.Suðurlandsvegur gegnum Hellu. Deiliskipulag

2301069

Rangárþing ytra hefur samþykkt að vinna að deiliskipulagi fyrir Suðurlandsveg gegnum Hellu, frá tengingum göngu- og hjólreiðastígar vestan við Rangá og að vegamótum Rangárvallavegar í austri. Skilgreindar verði tengingar og staðsetning stíga og lagna. Eftir auglýsingu tillögunnar barst athugasemd frá Skipulagsstofnun þess eðlis að skipulagsmörk sköruðust við aðrar aðliggjandi skipulagsáætlanir og því þurfi að breyta. Lögð er fram ný tillaga frá Eflu dags. 28.7.2025 þar sem skipulagsmörkin hafa verið samræmd. Tillagan var endurauglýst frá og með 13.8.2025 til og með 1.10.2025. Umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum: Mílu, Landsneti, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Veitum, sem gerðu engar athugasemdir en óskuðu eftir samráði við væntanlegar framkvæmdir; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem gerði engar athugasemdir; frá Náttúruverndastofnun sem gerði engar athugasemdir; frá Þorsteini Kristinssyni sem gerir athugasemdir við útfærslu á gatnamótum Suðurlandsvegar og Rangárvallavegar og frá Vegagerðinni sem gerir athugasemdir við tengingu til austurs inná Suðurlandsveginn frá lóðinni næst hringtorginu.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin hefur móttekið að Vegagerðin leggst ekki gegn umræddri tengingu austan núverandi hringtorgs inná Suðurlandsveginn þó hún telji hana ekki í fullu samræmi við veghönnunarreglur. Nefndin tekur undir með Þorsteini Kristinssyni um nauðsyn þess að gera vegamót Suðurlandsvegar og Rangárvallavegar betri en þau eru í dag, en sér ekki fyrir sér að þær lausnir sem bent er á verði að veruleika á næstu árum. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

18.Hjartaland. Breyting á deiliskipulagi

2510291

Eigendur óska eftir heimild til að breyta deiliskipulagi fyrir lóð sína. Gerð er breyting á deiliskipulagi svæðisins sem tekur til Sólstaðar (L227520) og Stóru-Skóga 2A (L234474). Byggingarreit B1 á Sólstöðum er breytt ásamt skilmálum innan hans þar sem heimilt er að stækka íbúðarhúsið í 250m² og reisa annað íbúðarhús allt að 250m² með innbyggðum bílskúr og allt að 250 m² gróðurhús. Heildarbyggingarmagn B1 verður 750 m². Tveimur nýjum byggingarreitum, G1 og Ú1 er bætt við ásamt skilmálum. Á G1 er heimilt að reisa allt að 5 gestahús, húsin verða mis stór og á stærðarbilinu 40-80 m², þar sem leyfilegt er að hafa gistingu í flokki II, fyrir allt að 10 gesti. Heildarbyggingarmagn byggingareits G1 verður 300 m². Á byggingarreit Ú1 er heimilt að reysa fjárhús, hesthús og áhaldageymslu, samtals allt að 500 m². Heimilt er að reisa 3 gróðurhús, samtals allt að 1000 m². Heildarbyggingarmagn Ú1 verður 1500 m².
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

19.Norður Nýibær. Deiliskipulag íbúðabyggðar

2510326

Landeigandi leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir hluta úr jörð sinni, Norður Nýjabæ. Heildarstærð svæðis er um 25 ha og hluti þess verður skilgreindur sem íbúðabyggð. Fyrirhugað er að hluti íbúðarlóða verði 1,1 ha að jafnaði og að heimilt verði að reisa íbúðarhús og bílskúr auk gestahúsa til útleigu allt árið um kring fyrir ferðamenn. Heimild yrði til lítilsháttar reksturs innan svæðis að auki á sérlóð næst aðkomu inná svæðið. Gert er ráð fyrir aðkomu að norðanverðu inn á spilduna af Þykkvabæjarvegi. Breyting á aðalskipulagi er í lokaferli.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

20.Kjarralda og Lyngalda. Umsókn um lóðir undir fjölbýli

2511002

G.G.Tré ehf óskar eftir að fá að byggja 8-10 íbúða raðhús á tveimur hæðum undir 50-70 m² íbúðir. Litið er til sameiningar á lóðum undir einbýlishús við enda Kjarröldu og Lyngöldu til að byrja með. Framkvæmdir gætu hafist júlí eða ágúst 2026 og standa í eitt ár.
Skipulags- og umferðarnefnd óskar eftir frekari upplýsingum um hugmyndir umsækjanda um aðkomu, ásýnd og fyrirkomulag bygginga. Nefndin frestar erindi umsækjanda að sinni.
Gunnar Aron vék sæti við meðferð og afgreiðslu málsins

21.Heiðvangur 10 og 12. Staðfesting á lóðamörkum

2508075

Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr. 10 og 12 við Heiðvang. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 26.8.2025.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
Gunnar Aron kom aftur inn á fundinn.

22.Heiðvangur 13 og 15. Staðfesting á lóðamörkum.

2509043

Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr.13 og 15 við Heiðvang. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 03.06.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðarinnar og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

Fundi slitið - kl. 11:00.