1.Árbæjarhjáleiga 1. Landskipti, Árbæjarhjáleiga 1B
2510028
Eigendur Árbæjarhjáleigu 1 óska eftir að fá að skipta úr landi sínu, 18,6 ha spildu sem fengi heitið Árbæjarhjáleiga 1B og Lxxxxxx. Matshluti 16 færist yfir á nýja lóð. Kvaðir sem fyrir liggja haldast óbreyttar á nýrri lóð. Engin áform eru um breytingu á landnotkun. Merkjalýsing frá Jóhönnu Sigurjónsdóttur dags. 24.9.2025. Vegagerðin gerir ekki athugasemdir við áformaða tengingu.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
2.Tjörn L165426. Landskipti. Jörð afmörkuð og hnitsett.
2511097
Eigandi Tjarnar óskar eftir að sveitarfélagið staðfesti afmörkun jarðarinnar Tjarnar í samræmi við merkjalýsingu frá Kristjönu Ó. Valgeirsdóttur dags. 20.10.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða afmörkun og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
3.Hvammsvirkjun. Kæra 130_2025 vegna veitingu framkvæmdaleyfis.
2508039
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sendir frá sér úrskurð í máli vegna kæru nr. 130/2025, þar sem hafnað er kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun sveitarstjórnar Rangárþings ytra frá 15. ágúst 2025 um að veita framkvæmdaleyfi fyrir undirbúningsframkvæmdum vegna Hvammsvirkjunar.
Lagt fram til kynningar
Friðþór Sófus Sigmundsson og Ásgeir Jónsson frá Eflu kynntu fundarfólki möguleika gagnalands.
4.Gagnaland kynning.
2505034
Efla hefur verið að vinna að landupplýsingagrunni fyrir sveitarfélög. Hann inniheldur öll Landupplýsingagögn fyrir sveitarfélagið. Hugmyndin er að öll gögn séu tryggð og geymd og afrituð og gæði þeirra séu tryggð.
Farið yfir helstu áherslur.
Farið yfir helstu áherslur.
Farið yfir áherslur og möguleika gagnvirkrar kortasjár.
Sófus og Ásgeir víkja af fundi og er þökkuð góð yfirferð
Gunnar Aron víkur af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins.
5.Landvegamót. Framkvæmdaleyfi til endurbóta vegna Vaðölduvers.
2511145
Landsvirkjun sækir um framkvæmdaleyfi til endurbóta á Landvegamótum í tengslum við aðkomuleiðir að Vaðöldu. Framkvæmdir eru unnar í fullu samráði við Vegagerðina.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að útgáfa framkvæmdaleyfis til endurbóta á hringtorginu að Landvegamótum sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði samþykkt enda hefur framkvæmdin engin áhrif á skipulagsáætlanir. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum.
Gunnar Aron kemur aftur á fundinn.
6.Gjaldskrá skipulags- og umhverfismála 2026
2511146
Farið yfir stöðu gjaldskrár
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að breyting verði gerð á 9. grein Samþykktar um byggingargjöld, sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. desember 2024, þar sem bætt verði við ákvæðum í b-lið þeirrar greinar þess efnis að fyrir byggingar með gólfflöt milli 2.000 og 3.000 m² verði gjaldið 400%, fyrir gólfflöt milli 3.000 og 4.000 m² verði hlutfallið 500% og 600% fyrir gólffleti yfir 4.000 m².
Við D-lið 9. greinar verði bætt við heimild til gjaldtöku vegna skilta. Verði hlutfallið 20%.
Að auki verði fellt út ákvæði um húsaleiguúttektir í 11. grein sömu samþykktar.
Þá er að auki lagt til að 2. mgr. 4. greinar verði felld niður.
Málinu vísað til frekari afgreiðslu á næsta fundi.
Við D-lið 9. greinar verði bætt við heimild til gjaldtöku vegna skilta. Verði hlutfallið 20%.
Að auki verði fellt út ákvæði um húsaleiguúttektir í 11. grein sömu samþykktar.
Þá er að auki lagt til að 2. mgr. 4. greinar verði felld niður.
Málinu vísað til frekari afgreiðslu á næsta fundi.
7.Fjárhagsáætlun skipulags- og byggingardeildar 2026
2511147
Farið yfir fjárhagsáætlun deildarinnar fyrir árið 2026
Lagt fram til kynningar.
Stefán Short, nýr byggingarfulltrúi, fer yfir áherslur og viðbrögð
8.Rangárþing ytra, reglugerð um skilti
1612036
Farið yfir áherslur í reglugerð um skilti.
Farið var yfir áherslur í reglugerð sveitarfélagsins. Borið hefur á að sett séu upp skilti víða í sveitarfélaginu án leyfa og vill nefndin ítreka nauðsyn þess að brugðist verði við því hið allra fyrsta.
Stefán Short boðinn velkominn og þökkuð góð yfirferð
9.Hagi v Selfjall 2. Ósk um deiliskipulag.
2505094
Eigendur lóðarinnar Hagi v/Selfjall 2, L176252, hafa fengið heimild til að fá að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið, dags. 10.6.1992, þar sem heimiluð verði föst búseta og byggingarheimildir uppfærðar skv. því. Unnið er að breytingu á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi þar sem henni verði breytt úr frístundasvæði í landbúnaðarsvæði til samræmis við fram lögð áform. Lögð er fram tillaga frá Svövu Björk Jónsdóttur dags. 15.10.2025
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
10.Heiðvangur 12 og 14. Staðfesting á lóðamörkum
2508077
Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr. 12 og 14 við Heiðvang. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 26.8.2025.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðarinnar og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
11.Heiðvangur 19 og 21. Staðfesting á lóðamörkum
2509077
Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr.19 og 21 við Heiðvang. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 03.06.2025.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðarinnar og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
12.Faxaflatir 4. Umsókn um stækkun lóðar
2511143
Lóðarhafi Faxaflata 4 L233063 óskar eftir að fá að stækka lóðina á kostnað lóðarinnar Faxaflata L225962. Um aukningu á byggingaráformum er að ræða frá fyrri úthlutun. Lóðin Faxaflatir 4 stækkar um 7028,4 m² og verður 17654,4 m². Æskilegur byrjunartími framkvæmda er 1.12.2025. Áætlaður byggingartími er 24-36 mánuðir. Umsókn barst 12.11.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í umsókn lóðarhafa Faxaflata 4 (L233063) og leggur til við sveitarstjórn að úthluta lóðarhafa þeim hluta Faxaflata (L225962) sem nemur stækkun um 7.028,4 m² þannig að heildarstærð Faxaflata 4 verði 17.654,4 m²; lóðirnar verði þó ekki sameinaðar né breyting skráð fyrr en liggur fyrir undirritaður, skuldbindandi samningur um rekstur lágvöruverðsverslunar. Nefndin lýsir jafnframt fullum vilja til að samþykkja sameiningu lóðanna og fullnaðarstækkun á síðari stigum þegar framangreind skilyrði og nauðsynlegar skipulags- og lóðarskráningarbreytingar liggja fyrir.
Nefndin leggur jafnframt til að gerð verði breyting á ákvæðum aðalskipulagsins varðandi umrætt svæði þar sem nýtingarhlutfall svæðisins verði aukið.
Nefndin leggur jafnframt til að gerð verði breyting á ákvæðum aðalskipulagsins varðandi umrætt svæði þar sem nýtingarhlutfall svæðisins verði aukið.
13.Hella þéttbýli. Skilgreindar reiðleiðir
2509030
Farið yfir og kortlagðar staðfestar reiðleiðir og sett í samræmi við aðalskipulag.
https://earth.google.com/earth/d/10gAfRwgVgwFhrk_dx0fDRXeIVguMkT2Z?usp=sharing
https://earth.google.com/earth/d/10gAfRwgVgwFhrk_dx0fDRXeIVguMkT2Z?usp=sharing
Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í að fram lagðar hugmyndir verði að veruleika í aðalskipulagi sveitarfélagsins en telur þetta vera lítinn hluta þeirra reiðleiða sem þarfnast skoðunar og staðfestingar. Nefndin leggur til að felldar verði út þær leiðir sem Landssamband hestamanna hefur sett inn á kortasjá sveitarfélagsins, þar sem þær eru afar misvísandi og sums staðar rangar. Nefndin ítrekar að fá fund með fulltrúum hestamannafélagsins til að leggja heildarlínur í aðalskipulagi fyrir allar þekktar reiðleiðir innan sveitarfélagsins.
14.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 157
2510011F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 157 er að ræða.
Lagt fram til kynningar.
15.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 158
2510020F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 158 er að ræða.
Lagt fram til kynningar.
16.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 159
2511002F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 159 er að ræða.
Lagt fram til kynningar.
17.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 160
2511004F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 160 er að ræða.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 11:15.