1.Hagi 2 í Holtum L165087. Landskipti Hagi 2C.
2511152
Eigandi Haga 2 L165087 óskar eftir að fá að skipta úr jörð sinni, 10.109,8 m² spildu sem fengi heitið Hagi 2C og Lxxxxxx skv. merkjalýsingu frá Kristjönu Ó. Valgeirsdóttur dags. 11.11.2025. Engin áform liggja fyrir um breytingu á landnotkun en um er að ræða landbúnaðarland. Vegagerðin hefur samþykkt sýnda tengingu við Hagabraut en gerir jafnframt þá kröfu að aðrir megi nýta sér hana komi til frekari uppbyggingar á svæðinu.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
2.Hagakrókur, Landskipti. Akrar
2511181
Eigandi Hagakróks L225766, óskar eftir að stofna úr jörð sinni, 729,8 m² lóð sem fengi heitið Akrar og Lxxxxxx. Núverandi matshlutar 02 og 03 Gestahús færast yfir á nýja lóð. Ekki liggja fyrir áform um breytingu á landnotkun. Merkjalýsing frá Sigurði Unnari Sigurðssyni dags. 15.11.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Nefndin vill árétta að gera þarf tilheyrandi breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið komi til framkvæmda á lóðinni.
3.Guttormshagi land L191691. Landskipti Ásaberg.
2511252
Eigandi Guttormshaga lands L191691 óskar eftir að fá að skipta úr landi sínu, spildu sem fengi heitið Ásaberg, stærð 13.727 m² og Lxxxxxx. Guttormshagi land L191691 verður 89.311 m² eftir skiptin. Núverandi sumarbústaður mhl01 0101 mun færast yfir á nýja lóð. Aðkoma að lóðinni verður óbreytt frá Guttormshagavegi í gegnum land Guttormshaga L165083 skv. þinglýstu skjali þar um. Áform um aðra nýtingu en núverandi landnotkun segir liggur ekki fyrir en jörðin er á skilgreindu landbúnaðarsvæði.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
4.Laugavegur. Umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða til bættra merkinga
2511149
Ferðafélag Íslands óskar eftir leyfi Rangárþings ytra til að bæta merkingar á Laugaveginum og samhliða að sækja um styrk til þess til framkvæmdajóðs ferðamannastaða. Rangárþing eystra og Forsætisráðuneytið gera engar athugasemdir við áform Ferðafélagsins.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir engar athugasemdir við áform Ferðafélags Íslands um bættar merkingar en leggur áherslu á að Náttúruverndarstofnun verði höfð með í ráðum við val á útliti og tegund merkinga og skilta þar sem um samræmt útlit er að ræða innan Fjallabaks.
5.Kjarralda og Lyngalda. Umsókn um lóðir undir fjölbýli
2511002
G.G.Tré ehf óskar eftir að fá að byggja 8-10 íbúða raðhús á tveimur hæðum undir 50-70 m² íbúðir. Litið er til sameiningar á loðum við enda Kjarröldu og Lyngöldu til að byrja með. Framkvæmdir gætu hafist júlí eða ágúst 2026 og standa í eitt ár. Nefndin óskaði eftir frekari upplýsingum á síðasta fundi.
Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í framkomnar hugmyndir G.G.Tré ehf. um smærri íbúðir og telur slíka uppbyggingu geta stutt við fjölbreyttara íbúðaframboð í sveitarfélaginu. Nefndin telur hins vegar rétt að kanna hvort verkefninu megi finna heppilegri staðsetningu norðar í hverfinu Öldur III, þar sem nú þegar er gert ráð fyrir tveggja hæða íbúðarhúsnæði í deiliskipulagi. Nefndin óskar eftir að metið verði hvort hentugra þyki að gera Móölduna tilbúna hvað þetta varðar áður en Melalda er tekin fyrir. Nefndin telur jafnframt æskilegt að deiliskipulagið verði tekið upp og skoðað hvort ekki sé hentugra að setja inn parhús á einni hæð í stað einbýlishúsa við enda gatnanna, eins og nú er auk þess að skoða með breidd gatna.
6.Heiðvangur 11 og 13. Staðfesting á lóðamörkum
2507041
Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr. 11 og 13 við Heiðvang. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 17.10.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðarinnar og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
7.Heiðvangur 9 og 11. Staðfesting á lóðamörkum
2507042
Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr. 9 og 11 við Heiðvang. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 17.10.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðarinnar og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
8.Sorporkuver á Strönd. Kynning matsskýrslu
2506094
Uppi eru áform um að koma upp sorporkustöð með orkuvinnslu (sorporkuveri) á urðunarstaðnum á Strönd í Rangárþingi ytra. Stöðin kemur til með að brenna úrgangi í ákveðnum flokkum og varminn sem fæst með brennslunni verður nýttur til að efla hitaveituna á svæðinu. Lögð er fram Umhverfismatsskýrsla til kynningar. Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn Rangárþings ytra og er frestur til að skila inn umsögn til og með 2.1.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd telur skýrsluna gefa góða mynd af áformum og mótvægisaðgerðum vegna mögulegrar mengunar. Nefndin telur að sorporkuver á Strönd stuðli að jákvæðum áhrifum á samfélagið.
9.Íþrótta- og útivistasvæði á Hellu. Hönnun
2508043
Leitað var til fjögurra aðila vegna verðkönnunar í frumhönnun svæðisins. Tilboð bárust frá þremur aðilum.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að samið verði við Landhönnun þar sem tilboð þeirra var hagstæðast. Nefndin vill þakka öðrum sem buðu fyrir innsend verð.
10.Fundaáætlun 2026 -sveitarstjórn, byggðarráð, skipulags- og umf.nefnd
2511182
Farið yfir drög að fundaáætlun fyrir árið 2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að fundaáætlun og samþykkir þau fyrir sitt leyti.
11.Kortasjá. Innri vefur. Umferðaröryggi og fl.
2511254
Farið yfir vinnuumhverfi gagnasjár
www.kort.is/ry_skipulag
www.kort.is/ry_skipulag
Kynning á stöðu verkefnisins. Skipulags- og umferðarnefnd undirstrikar að innleiðing gagnasjár er hugsuð til að tryggja betra flæði upplýsinga til framkvæmdasviðs, meðal annars um samgöngumannvirki og umferðaröryggismál. Nefndin gerir ráð fyrir að Framkvæmda- og eignanefnd og framkvæmdasvið nýti gagnasjána einnig sem vinnutæki til að auka skilvirkni í framkvæmd ákvarðana.
12.Gjaldskrá skipulags- og umhverfismála 2026
2511146
Farið yfir stöðu gjaldskrár
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir gjaldskránna í heild sinni. Nefndin ítrekar fyrri bókun sína þar sem Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að breyting verði gerð á 9. grein Samþykktar um byggingargjöld, sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. desember 2024, þar sem bætt verði við ákvæðum í b-lið þeirrar greinar þess efnis að fyrir byggingar með gólfflöt milli 2.000 og 3.000 m² verði gjaldið 400%, fyrir gólfflöt milli 3.000 og 4.000 m² verði hlutfallið 500% og 600% fyrir gólffleti yfir 4.000 m². Við D-lið 9. greinar verði bætt við heimild til gjaldtöku vegna skilta. Verði hlutfallið 20%. Að auki verði fellt út ákvæði um húsaleiguúttektir í 11. grein sömu samþykktar. Þá er að auki lagt til að 2. mgr. 4. greinar verði felld niður.
13.Reglur um lóðaúthlutun. Breytingar
2505080
Farið yfir stöðu mála og áherslur við úthlutun lóða.
Lagt fram til kynningar.
14.Samþykkt um byggingargjöld. Breytingar
2505079
Farið yfir áherslur og breytingar
Lagt fram til kynningar.
15.Hróarslækur L164520. Breyting á deiliskipulagi.
2511148
Í gildi er deiliskipulag fyrir Hróarslæk sem tók gildi í B-deild Stjórnartíðinda þann 13. október 2023. Gerð er breyting á greinargerð og uppdrætti skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með breyttu deiliskipulagi er byggingarmagn aukið á byggingarreit B3 þar sem heimilt verður að byggja vélageymslu á byggingarreitnum í stað gistihúss. Skipulagsgögn frá Eflu dags. 14.11.2025.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
16.Ægissíða 4 land. Ósk um breytingu á landnotkun
2511007
Eigandi Ægissíðu 4 lands, L165443, óskar eftir að gerð verði breyting á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi þar sem henni verði breytt úr iðnaðarsvæði í verslunar- og þjónustulóð.
Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í erindið og telur verslunar- og þjónustu eiga mun meira heima á þessu svæði en iðnaður þegar til framtíðar er litið. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að hefja breytingar á landnotkun í aðalskipulagi.
17.Krikakot - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2508027
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Íslandsturna ehf um uppsetningu á fjarskiptamastri á lóðinni Krikakot úr landi Köldukinnar í samræmi við aðaluppdrætti frá Bjarka Guðmundssyni dags. 28.7.2025. Forsmíðað heitgalvanhúðað stálmastur (röramastur) er fest á staðsteypta undirstöðu með festiboltum. Undirstöður eru gerðar á þjappað undirlag með jarðfyllingu ofan á steypufæti. Steyptur hnallur undir mastur og búnað verður sýnilegur í frágengnu landi. Málið var grenndarkynnt nærliggjandi lóðarhöfum. Grenndarkynningu lauk 22.09.2025. Athugasemd barst frá nærliggjandi eiganda lands þar sem gerðar voru athugasemdir við áformaða staðsetningu. Skipulags- og umferðarnefnd gat ekki fallist á fram lagða staðsetningu og óskaði því eftir nýrri staðsetningu frá umsækjanda á fundi 2.10.2025. Lögð er fram ný tillaga með nýrri staðsetningu.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að erindið verði grenndarkynnt að nýju til sömu aðila og siðast. Þar sem staðsetning mastursins er hugsuð í miðri skipulagðri byggð telur nefndin réttast að umsækjandi geri nauðsynlegar breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem mastrið verði sett inn þegar staðsetning þess hefur verið staðfest.
18.Ægissíða 4. Breyting á deiliskipulagi.
2512001
Eigendur Ægissíðu 4 óska eftir að fá að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi, sem tók gildi með auglýsingu í B-deild 26.10.2023, fyrir Ægissíðu 4 þar sem starfsemi matarvagna verði heimiluð auk skilgreingar á staðsetningu skilta og merkinga.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins.
Gunnar Aron vék af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa máls.
19.Vaðfitjanáma við Þjórsá. Nýtt efnistökusvæði. Breyting á aðalskipulagi.
2503088
Óskað er eftir að nýtt efnistökusvæði fyrir efnistöku allt að 80.000 m³ verði skilgreint í aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðrar efnistöku á Vaðfitjum við Þjórsá. Lýsing skipulagsáforma var kynnt til og með 30. apríl. Tillagan var auglýst frá og með 6.10.2025 til og með 20.11.2025. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.
Gunnar Aron kemur aftur inn á fundinn.
20.Galtalækjarnáma E57. Merkurnáma. Ósk um aukna heimild til efnistöku.
2506015
Landeigendur hafa óskað eftir aukinni heimild til efnistöku úr Galtalækjarnámu E57. Fyrirhugað er að stækka núverandi efnistökusvæði E57 í Merkurhrauni úr 2 ha í allt að 15 ha og auka heildar efnistökumagn upp í allt að 450.000 m³. Lýsing skipulagsáforma var kynnt með fresti til athugasemda til og með 26. júní sl. Tillagan var auglýst með fresti til athugasemda til og með 21.11.2025. Umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum:
Landsneti sem gerir engar athugasemdir, frá Vegagerðinni sem óskar eftir að unnið verði að samgöngumati fyrir svæði; frá Náttúruverndarstofnun sem bendir á að hraun geti haft ákveðið verndargildi, að það skjóti skökku við að efnistökusvæði allt að 14 ha skuli vera innan virks landgræðslusvæðis, að fjallað sé um mikilvægi verndunar fuglalífs, að með landmótun verði unnið að endurgerð sem næst upprunalegu umhverfi og að brýnt sé að fjallað verði um áhrif efnistökusvæðisins á vatnsverndarsvæði og tilheyrandi vatnshlot, frá eigendum Rjúpnavalla sem hafa áhyggjur af aukinni umferð þungavinnuvéla á Landveginn og frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem tekur í sama streng og Náttúruverndarstofnun hvað varðar áhrif á vatnsverndarsvæði og vatnshlot. Lögð er fram samantekt umsagna og drög að viðbrögðum við þeim.
Landsneti sem gerir engar athugasemdir, frá Vegagerðinni sem óskar eftir að unnið verði að samgöngumati fyrir svæði; frá Náttúruverndarstofnun sem bendir á að hraun geti haft ákveðið verndargildi, að það skjóti skökku við að efnistökusvæði allt að 14 ha skuli vera innan virks landgræðslusvæðis, að fjallað sé um mikilvægi verndunar fuglalífs, að með landmótun verði unnið að endurgerð sem næst upprunalegu umhverfi og að brýnt sé að fjallað verði um áhrif efnistökusvæðisins á vatnsverndarsvæði og tilheyrandi vatnshlot, frá eigendum Rjúpnavalla sem hafa áhyggjur af aukinni umferð þungavinnuvéla á Landveginn og frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem tekur í sama streng og Náttúruverndarstofnun hvað varðar áhrif á vatnsverndarsvæði og vatnshlot. Lögð er fram samantekt umsagna og drög að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir athugasemdir og umsagnir. Ekki þykir ástæða til að taka undir athugasemdir um verulega aukið álag á veg eða að þörf sé á samgöngumati vegna stækkunar námu, enda er náma í notkun og stækkun námunnar er til að tryggja svipaða nýtingu og verið hefur undanfarna áratugi.
Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.
Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.
21.Búðafossvegur. Beiðni um umsögn vegna ákvörðunar um matsskyldu.
2511185
Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn sveitarfélagsins við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt:
Búðafossvegur milli Þjórsárdalsvegar og Landvegar, nr. 1542/2025: Tilkynning um framkvæmd (Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu)
Búðafossvegur milli Þjórsárdalsvegar og Landvegar, nr. 1542/2025: Tilkynning um framkvæmd (Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu)
Í samræmi við 6. gr. laga nr. 106/2000 hefur Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra farið yfir tilkynningu framkvæmdaraðila. Niðurstaða nefndarinnar er að lagning Búðafossvegar milli Þjórsárdalsvegar og Landvegar sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 106/2000. Því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
22.Mosar deiliskipulag
2210013
Sett er fram ný tillaga að deiliskipulagi fyrir Mosa (landnr. 227577) þar sem gert er ráð fyrir 15 frístundalóðum. Settir eru skilmálar um byggingar og yfirbragð á lóðunum. Mosar eru við Bjallaveg (nr. 272) og er aðkoma af honum að svæðinu. Skipulagssvæðið er 15,3 ha að stærð. Eldra mál nr. 991/2023 í Skipulagsgátt verður fellt út. Tillaga var auglýst frá og með 6.10.2025 til og með 20.11.2025. Umsagnir bárust frá eftirfarandi aðilum:
Nátturuverndarstofnun, Mílu, Veitum, Landsneti, Vegagerðinni og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem gerðu engar athugasemdir og frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem bendir á að gróður megi ekki hindra aðkomu slökkviliðs.
Nátturuverndarstofnun, Mílu, Veitum, Landsneti, Vegagerðinni og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem gerðu engar athugasemdir og frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem bendir á að gróður megi ekki hindra aðkomu slökkviliðs.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
23.Stekkhólar L165069. Deiliskipulag
2509014
Landeigendur Stekkhóla L165069 hafa fengið heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi úr jörð sinni. Um er að ræða uppbyggingu á þremur byggingarreitum, þar sem heimilt verði að byggja íbúðarhús, frístundahús, hesthús með reiðhöll og skemmu. Aðkoma að jörðinni er frá Árbæjarvegi og um vegi innan jarðar. Tillagan var auglýst frá og með 6.10.2025 til og með 20.11.2025 og bárust eftirtaldar umsagnir:
Náttúruverndarstofnun, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Míla, Veitur gera engar athugasemdir; Vegagerðin sem benti á að sýna verði veghelgunarsvæði og fjarlægðir milli tenginga; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem bendir á að burðaþol vega skuli vera 32 tonn, að gróðursetning megi ekki hindra aðkomu slökkvibíla og að hugsanlega þurfi að gera kröfur til aukins slökkvivatns vegna áforma um byggingu reiðhallar og frá Landsneti sem bendir á að Hellulína 1, 66kV loftlína er ekki sýnd á skipulagstillögunni.
Náttúruverndarstofnun, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Míla, Veitur gera engar athugasemdir; Vegagerðin sem benti á að sýna verði veghelgunarsvæði og fjarlægðir milli tenginga; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem bendir á að burðaþol vega skuli vera 32 tonn, að gróðursetning megi ekki hindra aðkomu slökkvibíla og að hugsanlega þurfi að gera kröfur til aukins slökkvivatns vegna áforma um byggingu reiðhallar og frá Landsneti sem bendir á að Hellulína 1, 66kV loftlína er ekki sýnd á skipulagstillögunni.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
24.Hekluskarð. Breyting á deiliskipulagi.
2509026
Verið er að breyta afmörkun deiliskipulagssvæðisins þar sem aðkoma að Hekluskarði 1 (L205145) er ekki lengur um afleggjara út frá þjóðveg nr. 26 (landvegur að Leirubakka) heldur hefur aðkoman verið færð á nýjan afleggjara út frá vegi að Stóru-Völlum. Afmörkunin breytist einnig að norð-vestan verðu svo hún nái yfir lóð B4 L209909, sem skipta á upp í 4 skika, Hekluskarð 2, 3, 4 og 5. Innan byggingarreita er heimilt að reisa 1 íbúðarhús að hámarki 150 m2. Húsið má vera ein hæð og ris. Hámarksmænishæð 6,5 m, mælt frá efri brún gólfplötu og upp á mæni. Þar að auki er heimilt að byggja gestahús að hámarksstærð 40 m2 innan byggingarreitsins. Þakform er frjálst. Tillaga var auglýst frá og með 6.10.2025 til og með 20.11.2025 og bárust eftirtaldar umsagnir:
Míla, Veitur, Landsnet, Vegagerðin sem gerðu engar athugasemdir; frá Náttúruverndarstofnun sem leggur áherslu á að nútímahraun á svæðinu er háð vernd og ber að forðast rask þeirra, að svæðið sé innan mikilvægs fuglasvæðis og þurfi því að skilgreina stefnu sveitarfélagsins varðandi vernd fuglasvæða og að fjallað verði um vistgerðir innan svæðisins og hvernig lágmarka megi röskun á þeim; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem áréttar að burðarþol vega innan svæðis skuli þola 32 tonn og að gróðursetning megi ekki hindra aðkomu slökkviliðs; frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem gerir athugasemdir við neysluvatnsborholur innan svæðis nema að tryggt sé að vatnsvernd sé tryggð.
Míla, Veitur, Landsnet, Vegagerðin sem gerðu engar athugasemdir; frá Náttúruverndarstofnun sem leggur áherslu á að nútímahraun á svæðinu er háð vernd og ber að forðast rask þeirra, að svæðið sé innan mikilvægs fuglasvæðis og þurfi því að skilgreina stefnu sveitarfélagsins varðandi vernd fuglasvæða og að fjallað verði um vistgerðir innan svæðisins og hvernig lágmarka megi röskun á þeim; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem áréttar að burðarþol vega innan svæðis skuli þola 32 tonn og að gróðursetning megi ekki hindra aðkomu slökkviliðs; frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem gerir athugasemdir við neysluvatnsborholur innan svæðis nema að tryggt sé að vatnsvernd sé tryggð.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
25.Bjálmholt. Deiliskipulag verslunar- og þjónustuhúss
2507054
Þorkell Jónsson fyrir hönd landeigenda Bjálmholts L165072 hefur fengið heimild til að leggja fram deiliskipulag úr jörð sinni. Um er að ræða uppbyggingu á framleiðslu- og þjónustuhúsi til að framleiða og selja afurðir sínar, ásamt því að taka á móti ferðamönnum til að kynna starfsemi bæjarins. Lögð er fram tillaga frá M11 arkitektum dags. 5.8.2025. Fallið hefur því verið frá uppbyggingu nær Landvegi og tilheyrandi málum því lokað, bæði í málakerfinu og í skipulagsgáttinni. Engar athugasemdir bárust í auglýsingu tillögunnar en athugasemd barst frá Skipulagsstofnun þess efnis að eðlilegast væri að skilgreina landnotkun fyrir verslun og þjónustu í stað landbúnaðar.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir og athugasemdir skipulagsstofnunar. Nefndin hefur talið það til hagsbóta fyrir samfélagið ef lögbýlistengd starfsemi á bújörð er efld á þennan hátt þrátt fyrir að byggingarmagn fari yfir skilgreind mörk á landbúnaðarlandi og hefur því heimilað tiltekna uppbyggingu án þess að vilja skilgreina landnotkun annað en landbúnað. Nefndin telur því enga ástæðu til að skilgreina umrædda starfsemi á lögbýlinu Bjálmholti til annars en lögbýlistengda starfsemi á bújörð og telur því ekki ástæðu til breytinga á landnotkun.
Nefndin telur að fram komnar umsagnir leiði því ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nefndin telur að fram komnar umsagnir leiði því ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
26.Skólasvæðið deiliskipulag. Breyting vegna ljósamastra
2503033
Lögð er fram tillaga að breytingum á gildandi deiliskipulagi fyrir skólasvæðið á Hellu, dags. 31.1.2023. Breytingin felur í sér að í stað sex 9,5 metra hárra ljósmastra er óskað eftir að fá að koma fyrir fjórum 21 metra háum ljósmöstrum. Með því að hækka möstrin verður lýsingin nákvæmari og varnar glýju í nágrenninu. Tillaga frá Arkís dags. 11.3.2025 var auglýst frá og með 28.3.2025 til og með 14.5.2025. Tillaga var jafnframt kynnt vel á heimasíðu sveitarfélagsins og á samfélagsmiðlum. Umsagnir bárust frá Veðurstofu Íslands og Vegagerðinni sem gerðu engar athugasemdir og frá Isavia sem óskar eftir að sett verði hindranaljós á möstrin.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
27.Gaddstaðaeyja L196655. Deiliskipulag
2303048
Eigandi Gaddstaðaeyju leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi í eyjunni. Gert er ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í eyjunni, í formi allt að 160 herbergja hótels með afþreyingu s.s. baðlóni, á suðurtanga eyjunnar, auk byggingu allt að 30 smáhýsa til útleigu inn af árbökkum norðurhluta eyjunnar. Smáhýsin munu tengjast rekstri hótelsins. Breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins er í lokaferli þar sem landnotkun verður breytt úr óbyggðu svæði í landnotkun verslunar- og þjónustu. Tillaga frá Zeppelin arkitektum dags.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur til að tillagan verði auglýst samhliða tillögu að breytingum á aðalskipulagi fyrir sama svæði þegar heimild til þess liggur fyrir.
28.Gunnarsholt land L164499. Deiliskipulag
2505038
Framkvæmdaaðili Gbest ehf sækir um að fá að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir skógarplöntuframleiðslu. Gert er ráð fyrir framleiðslu skógarplantna í gróðurhúsum/léttum byggingum sem og utanhúss innan ræktaðra skjólbelta. Heimilað verður að byggja skemmur/gróðurhús og annan húsakost sem þarf til ræktunarinnar og einnig verður starfsmannaaðstaða til viðveru og gistingar. Starfsmenn eru að jafnaði allt að 10 en á álagstímum geta störf á svæðinu orðið allt að 60. Gert ráð fyrir að plantað verði trjám og skjólbeltum til að auka skjól og afmarka starfsemina. Skipulagsgögn frá Gunnlaugi Jónassyni dags. 20.11.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
29.Flóahreppur. Endurskoðun aðalskipulags Flóahrepps 2025-2037.
2511251
Flóahreppur óskar eftir umsögn sveitarstjórnar vegna fram lagðrar skipulags- og matslýsingar fyrir endurskoðun Aðalskipulags Flóahrepps 2025-2037.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fram lagða skipulags- og matslýsingu.
30.Móbakki úr landi Móeiðarhvols.
2511144
Landeigandi Móbakka óskar eftir breytingu á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings eystra ásamt heimild til deiliskipulagsgerðar fyrir land sitt. Með breytingunni verður landnotkun svæðisins endurskilgreind þannig að heimiluð er föst búseta innan skógræktarsvæðis auk þess allt að 1 ha svæði fyrir samfélagsþjónustu og allt að 1 ha svæði fyrir verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir um 1500 m2 dýraspítala með áfastri reiðskemmu/hesthúsi, allt að 350 m2 íbúðarhús/bílskúr og gestahús og fimm til sex gestahúsum, fyrir allt að 20 gesti.
Óskað er umsagnar Rangárþings ytra.
Óskað er umsagnar Rangárþings ytra.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir engar athugasemdir við fram lögð áform.
31.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 161
2511010F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 161 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
32.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 162
2511017F
Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 162 er að ræða.
Lagt fram til kynningar
Fundi slitið - kl. 10:45.