59. fundur 05. febrúar 2026 kl. 08:30 - 10:30 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Gunnar Aron Ólason formaður
  • Þórunn Dís Þórunnardóttir aðalmaður
  • Þröstur Sigurðsson aðalmaður
  • Brynhildur Sighvatsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson embættismaður
  • Jón Ragnar Örlygsson
Fundargerð ritaði: Haraldur Birgir Haraldsson Skipulagsfulltrúi
Svavar Leópold Torfason boðaði forföll.

1.Sælukot. Landskipti. Sörlatunga og Sælukot 2.

2601065

Landeigandi Sælukots L175270 óskar eftir að fá að skipta úr jörð sinni, tveimur spildum. Annars vegar 20,4 ha spildu, fengi heitið Sörlatunga og Lxxxxxx, og hins vegar 2873,7 m² spildu, fengi heitið Sælukot 2 og Lxxxxxx. Sælukot verður 24,8 ha eftir breytingu. Matshluti 03 Einbýlishús færist yfir á Sælukot 2. Matshlutar 06 Sumarhús og 07 Gestahús færast yfir á Sörlatungu. Ekki er gerð breyting á landnotkun nema lóðin undir íbúðarhúsið verður íbúðarlóð. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur dags. 7.1.2026.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

2.Umferðarmál 2025. Staða mála

2505035

Farið yfir stöðu umferðarmála 2025
Farið yfir reiðleiðamál, framkvæmdir á gatnakerfum og fl.
Nefndin óskar eftir upplýsingum frá Framkvmæda- og eignanefnd um stöðu á uppsetningu hraðaskilta.

3.Efnistökusvæði. Yfirlit og staða efnistöku

2506048

Sveitarstjórn hefur óskað eftir að tekið verði saman yfirlit yfir allar námur og efnistökusvæði í sveitarfélaginu, hverjar þeirra séu með starfsleyfi og stöðu á efnismagni. Skilgreint verði sérstaklega hvaða námur eru opnar í tengslum við virkjanir og áætlað magn í þeim.

Lögð er fram samantekt á skipulögðum efnistökusvæðum í sveitarfélaginu og farið yfir stöðuna.
Lagt fram til kynningar

4.Staða skipulagsmála

2411052

Samantekt á stöðu skipulagsmála tengdum aðkomu sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar

5.Svínhagi 2. Deiliskipulag.

2601059

Eigandi lóðarinnar Svínhagi 2 óskar eftir að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Markmiðið er að skapa hágæða gistiaðstöðu sem styður við ferðaþjónustu á svæðinu auk þess að flytja lögheimili á lóðina.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Nefndin vill árétta að ekki er talin þörf á að breyta landnotkun í aðalskipulagi vegna þessa og að farið skuli eftir ákvæðum kafla 2.3.1 í greinargerð aðalskipulagsins hvað varðar heimilað byggingarmagn á lóðinni.
Gestir undir þessum lið voru fulltrúar sveitarstjórnar, Björk Grétarsdóttir, Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, Viðar Már Þorsteinsson auk Ásgeirs Jónssonar og Anne Bruun frá Eflu. Jón Ragnar sá um að skrifa minnispunkta.

6.Öldur III. Breyting á deiliskipulagi

2602002

Farið yfir áherslur gildandi deiliskipulags og rætt hvort eigi að breyta áherslum um byggingartegundir og heimila tveggja hæða fjölbýlishús, breikka vegi milli húsa um a.m.k. 1 metra og skilgreina tengingar gatna við Helluvang Ofanbyggðaveginn.
Farið yfir áherslur og hugmyndir. Eflu falið að leggja fram tillögur í samræmi við umræður á fundinum. Tillögur lagðar fram á næsta reglulega fundi nefndarinnar.
Gestir yfirgáfu fundinn

7.Tunguvirkjun í landi Keldna. Breyting á aðalskipulagi.

2506047

Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að lagðar verði fram tillögur að breytingum á aðalskipulagi vegna fyrirhugaðrar virkjunar í landi Keldna þar sem landnotkun undir virkjunarsvæðið verði gert að iðnaðarsvæði. Lýsing skipulagsáforma frá Eflu dags. 27.10.2025 var kynnt í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga og stóð kynning yfir frá og með 12.11.2025 til og með 29.12.2025. Umsagnir bárust frá alls 19 aðilum.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila vegna skipulagslýsingar um breytingu á aðalskipulagi fyrir Tunguvirkjun. Í umsögnum koma fram veruleg álitamál, m.a. vegna menningarminja og afstöðu Minjastofnunar, sérstakrar verndar jarðminja/fossa á svæðinu, óvissu um stöðu grunnvatnshlots og krafna um mat á áhrifum á vatnshlot, auk ábendinga um verndargildi lífríkis og þörf á frekari grunnrannsóknum. Nefndin telur því ekki rétt að vísa málinu áfram til auglýsingar að svo stöddu.

Skipulagsfulltrúa er falið að kalla eftir nánari gögnum frá framkvæmdaraðila, þar á meðal hnitsettri afmörkun iðnaðarsvæðis, samræmdu mati á áhrifum á vatnshlot og neysluvatn, úttektum á lífríki/fuglalífi og skýrri niðurstöðu um minjar á svæðinu í samráði við Minjastofnun. Þá verði tryggt að tilkynningaskylda framkvæmdar til Skipulagsstofnunar verði uppfyllt og niðurstaða liggi fyrir áður en frekari afgreiðsla fer fram.

Lagt er til að málinu verði frestað.

8.Svínhagi L7 og L8A. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi.

2601359

Sveitarfélagið samþykkti 22.10.2025 að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem núverandi landnotkun landbúnaðarsvæðis verði breytt í Verslunar- og þjónustusvæði. Lögð er fram lýsing skipulagsáforma dags. 30.1.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

9.Gunnarsholt land L164499. Deiliskipulag

2505038

Framkvæmdaaðili Gbest ehf sækir um að fá að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir skógarplöntuframleiðslu. Gert er ráð fyrir framleiðslu skógarplantna í gróðurhúsum/léttum byggingum sem og utanhúss innan ræktaðra skjólbelta. Heimilað verður að byggja skemmur/gróðurhús og annan húsakost sem þarf til ræktunarinnar og einnig verður starfsmannaaðstaða til viðveru og gistingar. Starfsmenn eru að jafnaði allt að 10 en á álagstímum geta störf á svæðinu orðið allt að 60. Gert ráð fyrir að plantað verði trjám og skjólbeltum til að auka skjól og afmarka starfsemina. Tillaga var auglýst frá og með 10.12.2025 til og með 28.1.2026. Umsagnir bárust frá 9 aðilum en ekki voru gerðar neinar athugasemdir. Ábendingar bárust frá Náttúrufræðistofnun um að gæta þurfi að vistgerðum á svæðinu þó þær njóti ekki verndar; frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem bendir á að jarðboranir séu háðar starfsleyfi auk kælikerfa; frá Brunavörnum Rangárvallasýslu sem bendir á að burðarþol innan svæðis skuli vera 32 tonn og að gróður við aðkomuveg megi ekki hindra aðkomu slökkviliðs; frá Mílu sem óska eftir samráði þegar af framkvæmdum verður.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin vill árétta að gerð verði krafa um, við útgáfu byggingarleyfa fyrir gróðurhús, að gripið verði til viðeigandi mótvægisaðgerða gagnvart ljósmengun, svo sem með uppsetningu myrkvunartjalda eða sambærilegu. Skilmálum þess efnis verði bætt við í greinargerð skipulagstillögunnar áður en tillagan verður send til Skipulagsstofnunar.

10.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 163

2511024F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 163 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

11.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 164

2512004F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 164 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

12.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 165

2512007F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 165 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

13.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 166

2601001F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 166 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:30.