60. fundur 09. febrúar 2026 kl. 08:15 - 09:30 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Þórunn Dís Þórunnardóttir aðalmaður
  • Þröstur Sigurðsson aðalmaður
  • Svavar L. Torfason aðalmaður
  • Brynhildur Sighvatsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Haraldur Birgir Haraldsson Skipulagsfulltrúi
Á fundinn mætti Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir lögmaður og fór yfir drög að greinargerð sveitarfélagsins.

1.Hvammsvirkjun. Framkvæmdaleyfi vegna virkjunar

2602014

Lögð er fram umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdum við 95 MW Hvammsvirkjun, dags. 22. janúar 2026, ásamt fylgiskjölum.

Hvammsvirkjun er fyrirhuguð vatnsaflsvirkjun í neðanverðri Þjórsá norður að Skarðsfjalli, skilgreind á aðalskipulagi innan svæðis I15 ? Hvammsvirkjun. Fyrirhugað inntakslón virkjunarinnar, Hagalón, er áætlað í farvegi Þjórsár norður af Skarðsfjalli.

Framkvæmdaleyfisumsókn Landsvirkjunar tekur til heildarframkvæmda við virkjunina, sbr. virkjunarleyfi og leyfi til breytinga á vatnshloti, dags. 12. desember 2025.

Með Hvammsvirkjun verður nýtt allt að 352 m3/s rennsli og 32 m fall Þjórsár á um 9 km kafla frá Yrjaskeri að neðri enda Ölmóðseyjar. Virkjunin nýtir miðlað rennsli Þjórsár frá lónunum ofar á vatnasviðinu. Virkjunarsvæðið er innan sveitarfélaganna Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Flest mannvirki verða í því fyrrnefnda. Hagalón verður myndað með stíflu í Þjórsá á mörkum jarða Minna-Núps í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Hvamms 1 í Rangárþingi ytra, stíflugarði í landi Skarðs í Rangárþingi ytra og Þjórsárdalsvegi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Steinsteypt flóðvirki, fiskvegir, inntaksskurður, inntaksvirki, aðrennslispípur, stöðvarhús, sveifluþró, frárennslisgöng og frárennslisskurður verða í landi Hvamms 1. Innan framkvæmdasvæðisins eru byggingarleyfisskyld mannvirki skv. nánari útlistun þar á í fyrirliggjandi greinargerð með umsókn um framkvæmdaleyfið. Sótt verður um byggingarleyfi fyrir þeim mannvirkjum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012 eftir því sem mannvirkjagerð kallar á. Umsóknin tekur ekki til endurbyggingar og færslu Þjórsárdalsvegar, færslu Gnúpverjavegar og styrkingu núverandi Hvammsvegar, né framkvæmda vegna nýs tengivirkis í landi Skarðs og breytinga á Búrfellslínu 1, en þær framkvæmdir eru á forræði Vegagerðarinnar og Landsnets.

Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Landsvirkjunar og öðrum fylgigögnum umsóknar.

Eftirtalin gögn eru lögð fram hjá nefndinni:

Umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi, dags. 22. janúar 2026.

Greinargerð Landsvirkjunar með umsókn um framkvæmdaleyfi, dags. 22. janúar 2026.

Viðauki með greinargerð Landsvirkjunar ? Ytri skilyrði og kröfur, mótvægisaðgerðir og vöktun

Teikningar og yfirlitsmynd af framkvæmd.

Deiliskipulag Hvammsvirkjunar.


Skipulagsgreinargerð og umhverfisskýrsla.


Skipulagsuppdráttur 1:12.500.


Skipulagsuppdráttur 1:2.500.

Umhverfismatsskýrsla, dags. apríl 2003.

Úrskurður Skipulagsstofnunar, dags. 19. ágúst 2003.

Úrskurður umhverfisráðherra, dags. 27. apríl 2004.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um endurskoðun matsskýrslu, dags. 16. desember 2015.

Endurskoðað umhverfismat, frá því í október 2017.

Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Hvammsvirkjunar, dags. 12. mars 2018.

Leyfi Minjastofnunar Íslands, dags. 26. nóvember 2021.

Leyfi Fiskistofu, dags. 14. júlí 2022.

Virkjunarleyfi til bráðabirgða frá Umhverfis- og orkustofnun, dags. 12. desember 2025.

Umsögn Náttúruverndarstofnunar, dags. 28. janúar 2026.

Athugasemdir Landsvirkjunar, dags. 4. febrúar 2026 vegna umsagnar Náttúruverndarstofnunar.

Samkomulag landeigenda og framkvæmdaraðila um mótvægisaðgerðir vegna áhrifa Hvammsvirkjunar á friðun Viðeyjar/Minnanúpshólma, dags. 22. desember 2023.

Drög að greinargerð í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 9. febrúar 2026.

Farið var yfir drög að greinargerð sveitarfélagsins. Afgreiðslu frestað þar til endanleg greinargerð liggur fyrir.
Fylgiskjöl:
Dganý þökkuð góð yfirferð

Fundi slitið - kl. 09:30.