1.Lækur 13. L186655. Landskipti
2602039
Lóðin Lækur 13, L186655, er minnkuð um 0,4 ha, og verður eftir það 4,92 ha.
Það sem minnkað er um, gengur til upprunalóðarinnar L164544 (Reyðarvatn), sem verður eftir það 1269,4 ha.
Eigandi lóðarinnar og Reyðarvatns er Ríkissjóður. Merkjalýsing frá Páli Sigurðssyni, dags. 28.1.2026.

Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
2.Hallstún spilda L203254. Landskipti
2602040
Eigandi Hallstúns spildu óskar eftir að fá að skipta úr lóð sinni. Stofna á lóð sem yrði 9745.7 m² að stærð, fengi heitið Hallstún spilda 2 og Lxxxxxx. Hallstún spilda verður 16875,0 m² eftir skiptin. Merkjalýsing frá Jóhönnu Sigurjónsdóttur dags. 5.2.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
3.Lýtingsstaðir. Landskipti Lýtingsstaðir millispilda 1-4 og Krosshóll
2602044
Eigendur Lýtingsstaða L165121 óska eftir að fá að skipta úr jörð sinni alls fjórum millispildum. Lýtingsstaðir millispilda 1 er 2,9 ha. Enginn matshluti er á lóðinni Engin kvöð er á lóðinni. Lóðin mun síðar sameinast Lýtingsstöðum landi 1 (L223208); Lýtingsstaðir millispilda 2 er 8,4 ha. Enginn matshluti er á lóðinni. Kvöð er á lóðinni vegna aðkomu að Lýtingsstöðum Krosshóli (L180257) og Lýtingsstöðum millispildu 3. Lóðin mun síðar sameinast Hellisholti (L223209); Lýtingsstaðir millispilda 3 er 8,4 ha. Enginn matshluti er á lóðinni. Kvöð er á lóðinni vegna aðkomu að Lýtingsstöðum Krosshóli (L180257). Lóðin mun síðar sameinast Lýtingsstöðum landi 4 (L223210); Lýtingsstaðir millispilda 4 er 6,7 ha. Enginn matshluti er á lóðinni. Kvöð er á lóðinni vegna aðkomu að Lýtingsstöðum Krosshóli (L180257) og Lýtingsstöðum millispildu 3. Lóðin mun síðar sameinast Lýtingsstöðum landi 2 (L220547).
Eigendur óska jafnframt eftir að staðfesta afmörkun Lýtingsstaðir Krosshóll L180257. Lóðin er skráð 144,0 m² í fasteignaskrá HMS. Stærð lóðar breytist ekki með nýrri afmörkun. Einn matshluti er á lóðinni: 01 Tækjahús Engin kvöð er á lóðinni. Merkjalýsing frá Hugrúnu Hörpu Björnsdóttur, dags. 16.1.2026.

Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
4.Lýtingsstaðir land 2. Landskipti. Lýtingsstaðir land 2 millispilda og Hilmarsstaðir.
2602045
Eigendur Lýtingsstaða lands 2 óska eftir að skipta úr landi sínu tveimur spildum. Annars vegar Lýtingsstaðir land 2 millispilda sem verður 13,8 ha að stærð. Enginn matshluti er á lóðinni Engin kvöð er á lóðinni. Lóðin mun síðar sameinast Lýtingsstöðum 1 (L223208). Hins vegar Hilmarsstaðir sem verða 87926,0 m² að stærð. Enginn matshluti er á lóðinni. Engin kvöð er á lóðinni. Aðkoma að lóðinni er frá Lýtingsstöðum (L165121), en verður frá Lýtingsstöðum landi 2 (L220547) þegar landskipti Lýtingsstaða hafa farið fram. Merkjalýsing frá Hugrúnu Hörpu Björnsdóttur dags. 16.1.2026.
Lýtingsstaðir land 2 (L220547) er skráð 50,4 ha í fasteignaskrá HMS en minnkar um 22,6 ha og verður 27,8 ha.
Lýtingsstaðir land 2 (L220547) er skráð 50,4 ha í fasteignaskrá HMS en minnkar um 22,6 ha og verður 27,8 ha.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
5.Lýtingsstaðir land 4. Landskipti. Lýtingsstaðir land 4 millispilda og Grásteinsholt.
2602047
Eigendur Lýtingsstaða lands 4 L223210 óska eftir að skipta úr jörð sinni, spildunni Lýtingsstaðir land 4 millispilda sem verður 8,4 ha. Enginn matshluti er á lóðinni. Engin kvöð er á lóðinni. Lóðin mun síðar sameinast Hellisholti L223209. Lýtingsstaðir land 4 er skráð 43,3 ha að stærð en verður 34,9 ha eftir skiptin. Samhliða óska eigendur eftir að staðfesta afmörkun Grásteinsholts L218400. Lóðin er skráð 70006,0 m² að stærð en mælist 69499,4 m² og minnkar því um 506,6 m². Hér er því um leiðréttingu á stærð að ræða. Merkjalýsing frá Hugrúnu Hörpu Björnsdóttur dags. 16.1.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
6.Lýtingsstaðir land 5. Landskipti. Millispilda A og Millispilda B.
2602046
Eigendur að Lýtingsstöðum landi 5 óska eftir að skipta úr landi sínu tveimur spildum. Annars vegar Lýtingsstaðir land 5 millispilda A sem verður 16,6 ha. Enginn matshluti er á lóðinni. Engin kvöð er á lóðinni. Lóðin mun síðar sameinast Lýtingsstöðum landi 4 (L223210). Hins vegar Lýtingsstaðir land 5 millispilda B sem verður 23,5 ha. Enginn matshluti er á lóðinni. Engin kvöð er á lóðinni. Lóðin mun síðar sameinast Lýtingsstöðum landi 2 (L220547). Lýtingsstaðir land 5 er skráð 49,6 ha í fasteignaskrá HMS en minnkar um 40,1 ha og verður 9,5 ha. Merkjalýsing frá Hugrúnu Hörpu Björnsdóttur dags. 16.1.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
7.Rangárbakki 8B - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2602033
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Ragnars Kristins Lárussonar, fh. Húsvakurs ehf., um byggingarleyfi fyrir 28 gistihúsum (alls 30 gistiherbergjum) og tveimur salernishúsum á lóðinni Rangárbakka 8B, samkvæmt meðfylgjandi aðaluppdráttum, dags. 28.1.2025. Þar sem fjöldi gistihúsa er ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag frestaði byggingarfulltrúi afgreiðslu sinni. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu
Skipulags- og umferðarnefnd hefur móttekið tilkynningu byggingarfulltrúa og ítrekar að gera þurfi nauðsynlegar breytingar á gildandi deiliskipulagi til að áform umsækjanda fái brautargengi.
8.Akurbrekka (L177460) Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2602032
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Eiríki Vigni Pálssyni hjá Pró-Ark, fyrir hönd Ingva Jónssonar, um byggingarheimild til að byggja við núverandi íbúðarhús á mhl. 01 á jörðinni Akurbrekku. Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu á tveimur hæðum ásamt tengigangi, alls 170,6 m², samkvæmt aðaluppdráttum hönnuðar, dagsettum 9.2.2026. Heildarstærð hússins eftir stækkun verður 287,1 m². Þar sem ekki er í gildi deiliskipulag frestaði byggingarfulltrúi afgreiðslu sinni. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að tillaga umsækjanda skuli grenndarkynnt hagsmunaaðilum á svæðinu með áherslu á íbúðasvæðið að Litla-Hofi.
9.Heiðvangur 3 og 5. Staðfesting á lóðamörkum
2510011
Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr.3 og 5 við Heiðvang. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 27.06.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðanna og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
10.Heiðvangur 1 og Rangárþing ytra. Staðfesting á lóðamörkum
2601355
Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr. 1 við Heiðvang og sveitarfélagsins úr landi Gaddstaða L164482. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 29.01.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðanna og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
11.Heiðvangur 1 og 3. Staðfesting á lóðamörkum
2510010
Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr.1 og 3 við Heiðvang. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 29.01.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðarinnar og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
12.Heiðvangur 5 og 7. Staðfesting á lóðamörkum
2511218
Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr.5 og 7 við Heiðvang. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 17.10.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðanna og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
13.Heiðvangur 7 og 9. Staðfesting á lóðamörkum
2511219
Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr. 7 og 9 við Heiðvang. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 17.10.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðanna og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
14.Heiðvangur 20 og 22. Staðfesting á lóðamörkum
2511008
Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr. 20 og 22 við Heiðvang. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 25.6.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðanna og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
15.Heiðvangur 23 og 25. Staðfesting á lóðamörkum
2511096
Embætti Skipulags- og byggingarfulltrúa hefur skoðað afmörkun lóða við Heiðvang að teknu tilliti til þess að lóðamörk voru ekki í samræmi við skráningu þeirra við stofnun. Náðst hefur samkomulag milli lóðarhafa og sveitarfélagsins um lóðarmörk. Lögð er fram staðfesting á lóðamörkum lóða nr.23 og 25 við Heiðvang. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur, dags. 29.01.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun lóðanna og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
16.Lerkiholt. Ósk um heimild til deiliskipulags
2602028
Eigandi Lerkiholts, L195063, óskar eftir heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir hluta lands síns. Um er að ræða horn næst hringtorgi til uppbyggingar á verslunar- og þjónustustarfsemi í tengslum við umferð um Suðurlandsveginn. Áform eru uppi um rekstur veitingastaðar og verslunar auk eldsneytisafgreiðslu.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að gera þurfi breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Núverandi lóð er á skilgreindu Landbúnaðarsvæði skv. aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 og þarf að breytast í Verslunar- og þjónustu ef áform umsækjanda eiga fram að ganga.
Umsækjanda er veitt heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Jafnframt er skipulagsfulltrúa falið að vinna að breytingu á gildandi aðalskipulagi til samræmis við áform umsækjanda.

17.Lautir, Álfaborgir 5, Deiliskipulag.
2507053
Landeigandi hefur fengið heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir spildu sína, hluta úr Álfaborgum 5 eða svæði sem mun fá heitið Lautir. Lautir eru hluti af Álfaborgum en staðsett sunnan Húsagarðsvegar. Áform eru að skilgreina Lautir sem lögbýli. Á jörðinni er fyrirhugað að stunda grænmetisræktun og sjálfbæra vöruþróun. Gert er ráð fyrir íbúðarhúsi og að hluti núverandi útihúsa verði nýttur sem vinnustofur fyrir myndlist og vöruhönnun. Útleiga og gisting verður tengd þeirri skapandi og sjálfbæru starfsemi sem fram fer á staðnum. Lýsing hefur verið kynnt. Lögð er fram tillaga frá M11 arkitektum dags. 16.2.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
18.Beiðni um undanþágu frá kröfu um sameiginleg landnúmer á spildum - Skinnhúfa og Norðurnes
2601009
Landeigendur sækja um undanþágu frá kröfu um sameiginleg landnúmer á spildum Skinnhúfu F-2318648 og Norðurness F-2282249. Lagt er fram álit lögmanns að beiðni nefndarinnar.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur móttekið álit lögmanns. Tilgangur landnúmera er að tryggja skýra og ótvíræða auðkenningu landeigna, sem er nauðsynlegt fyrir réttaröryggi í fasteignaviðskiptum, landamerkjum og framkvæmd réttinda og skyldna sem tengjast landi.
Skráning landnúmera snýst þannig um vernd eignarréttinda, rétt landamerki og nýtingarréttindi. Þjóðskrá Íslands notar landnúmer í fasteignaskrá sinni til að halda utan um upplýsingar um fasteignir og eigendur þeirra.
Sveitarfélögum er því ekki unnt að samþykkja aðra skráningu eða landnotkun en þá sem skráð er í fasteignaská, á hverjum tíma.
Að framangreindu virtu leggur Skipulags- og umferðarnefnd það til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað.

19.Kaldárholt Borhola. Fyrirspurn um matsskyldu.
2602037
Skipulagsstofnun leitar umsagnar Rangárþings ytra vegna tilkynningar til ákvörðunar um matsskyldu á grundvelli 20. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Í samræmi við 8. gr. laga nr. 111/2021 hefur Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra farið yfir tilkynningu framkvæmdaraðila. Nefndin telur að nægjanlega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum, mótvægisaðgerðum og vöktun eftir því sem við á. Niðurstaða nefndarinnar er að borun vinnsluholu í landi Kaldárholts sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 111/2021. Því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Framkvæmdin er háð framkvæmdaleyfi Rangárþings ytra samkvæmt 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna matsskyldra framkvæmda.
20.Efra-Sel 3C. Deiliskipulag
2210001
Eigendur Efra-Sels 3C L220359 hafa lagt fram tillögu að deiliskipulagi af svæðinu. Breyting á aðalskipulagi þar sem gerð var breyting á landnotkun hefur tekið gildi með auglýsingu í B-deild. Deiliskipulagið mun gera ráð fyrir byggingu íbúðarhúss ásamt tilheyrandi uppbyggingu. Tillaga var fyrst auglýst frá og með 4. janúar 2023 til og með 15. febrúar 2023. Vegna tímamarka í skipulagsreglugerð var tillagan endurauglýst frá og með 28.11.2025 til og með 14.1.2026. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Gunnar Aron vék af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa liðar.
21.Hvammsvirkjun. Framkvæmdaleyfi vegna virkjunar
2602014
Lögð er fram umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdum við 95 MW Hvammsvirkjun, dags. 22. janúar 2026, ásamt fylgiskjölum.
Hvammsvirkjun er fyrirhuguð vatnsaflsvirkjun í neðanverðri Þjórsá norður að Skarðsfjalli, skilgreind á aðalskipulagi innan svæðis I15 ? Hvammsvirkjun. Fyrirhugað inntakslón virkjunarinnar, Hagalón, er áætlað í farvegi Þjórsár norður af Skarðsfjalli.
Framkvæmdaleyfisumsókn Landsvirkjunar tekur til heildarframkvæmda við virkjunina, sbr. virkjunarleyfi og leyfi til breytinga á vatnshloti, dags. 12. desember 2025.
Með Hvammsvirkjun verður nýtt allt að 352 m3/s rennsli og 32 m fall Þjórsár á um 9 km kafla frá Yrjaskeri að neðri enda Ölmóðseyjar. Virkjunin nýtir miðlað rennsli Þjórsár frá lónunum ofar á vatnasviðinu. Virkjunarsvæðið er innan sveitarfélaganna Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Flest mannvirki verða í því fyrrnefnda. Hagalón verður myndað með stíflu í Þjórsá á mörkum jarða Minna-Núps í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Hvamms 1 í Rangárþingi ytra, stíflugarði í landi Skarðs í Rangárþingi ytra og Þjórsárdalsvegi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Steinsteypt flóðvirki, fiskvegir, inntaksskurður, inntaksvirki, aðrennslispípur, stöðvarhús, sveifluþró, frárennslisgöng og frárennslisskurður verða í landi Hvamms 1. Innan framkvæmdasvæðisins eru byggingarleyfisskyld mannvirki skv. nánari útlistun þar á í fyrirliggjandi greinargerð með umsókn um framkvæmdaleyfið. Sótt verður um byggingarleyfi fyrir þeim mannvirkjum í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012 eftir því sem mannvirkjagerð kallar á. Umsóknin tekur ekki til endurbyggingar og færslu Þjórsárdalsvegar, færslu Gnúpverjavegar og styrkingu núverandi Hvammsvegar, né framkvæmda vegna nýs tengivirkis í landi Skarðs og breytinga á Búrfellslínu 1, en þær framkvæmdir eru á forræði Vegagerðarinnar og Landsnets.
Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Landsvirkjunar og öðrum fylgigögnum umsóknar.
Eftirtalin gögn eru lögð fram hjá nefndinni:
Umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi, dags. 22. janúar 2026.
Greinargerð Landsvirkjunar með umsókn um framkvæmdaleyfi, dags. 22. janúar 2026.
Viðauki með greinargerð Landsvirkjunar ? Ytri skilyrði og kröfur, mótvægisaðgerðir og vöktun
Teikningar og yfirlitsmynd af framkvæmd.
Deiliskipulag Hvammsvirkjunar.
Skipulagsgreinargerð og umhverfisskýrsla.
Skipulagsuppdráttur 1:12.500.
Skipulagsuppdráttur 1:2.500.
Umhverfismatsskýrsla, dags. apríl 2003.
Úrskurður Skipulagsstofnunar, dags. 19. ágúst 2003.
Úrskurður umhverfisráðherra, dags. 27. apríl 2004.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um endurskoðun matsskýrslu, dags. 16. desember 2015.
Endurskoðað umhverfismat, frá því í október 2017.
Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Hvammsvirkjunar, dags. 12. mars 2018.
Leyfi Minjastofnunar Íslands, dags. 26. nóvember 2021.
Leyfi Fiskistofu, dags. 14. júlí 2022.
Virkjunarleyfi til bráðabirgða frá Umhverfis- og orkustofnun, dags. 12. desember 2025.
Umsögn Náttúruverndarstofnunar, dags. 28. janúar 2026.
Athugasemdir Landsvirkjunar, dags. 4. febrúar 2026 vegna umsagnar Náttúruverndarstofnunar.
Samkomulag landeigenda og framkvæmdaraðila um mótvægisaðgerðir vegna áhrifa Hvammsvirkjunar á friðun Viðeyjar/Minnanúpshólma, dags. 22. desember 2023.
Greinargerð í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 16. febrúar 2026.

Skipulags- og umferðarnefnd hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsvirkjunar með framkvæmdaleyfisumsókninni. Þá liggur fyrir greinargerð í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 16. febrúar 2026, þar sem fram koma skilyrði og mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar auk þess að eftirlitsnefnd verði skipuð. Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi greinargerð skv. 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar verði samþykkt sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdaleyfisumsóknina og að fallist verði á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda vegna Hvammsvirkjunar í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsvirkjunar og önnur fyrirliggjandi gögn. Nefndin telur að framkvæmdaaðili hafi sýnt fram á að brýna nauðsyn beri til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna með vísan til fyrirsjáanlegs orkuskorts í landinu, sbr. orkuspá Umhverfis- og orkustofnunar og raforkuspá Landsnets, til þess að tryggja raforkuöryggi í landinu og framboð af orku til orkuskipta. Einnig að í fyrirliggjandi gögnum sé næg grein gerð fyrir framkvæmdum við Hvammsvirkjun umfram aðra valkosti og tekur nefndin undir það mat Umhverfis- og orkustofnunar í fyrirliggjandi virkjunarleyfi ásamt heimild til breytinga á vatnshlotum, dags. 12. desember 2025, að ekki sé með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum.
Gunnar Aron kom aftur inn á fund.
22.Rangárbakki 8. Breyting á deiliskipulagi.
2602052
Eigendur óska eftir heimild til að breyta gildandi deiliskipulagi þar sem litlum gistiskálum er fjölgað innan þeirra reita sem þeim er ætlað í gildandi deiliskipulagi.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
Nefndin leggur áherslu á að skilgreind aðkoma að hreinsivirki sveitarfélagsins verði gerð góð skil og að aðkoma til viðhalds og eftirlits lagna verði skilgreind í skilmálum deiliskipulagsins. Við uppbyggingu við Rangárbakka 8 skal tryggja að gönguleiðir meðfram Ytri Rangá haldist samfelldar, öruggar og aðgengilegar, og að þær verði ekki verri en núverandi gönguleiðir né skerði almennan aðgang að ánni. Jafnframt verði áfram gert ráð fyrir göngustíg að ánni við enda D-reitar.
Nefndin telur ekki þörf á grenndarkynningu vegna þessara breytinga þar sem hún hefur engin áhrif á aðra en umsækjanda og sveitarfélagið.

Fundi slitið - kl. 10:00.