Gunnar Aron Ólason boðaði forföll. Þórunn Dís Þórunnardóttir tekur við sem formaður á fundinum.
1.Heiðvangur. Leiðrétting á lóðarmörkum
2410011
Skipulagsembættið hefur unnið að leiðréttingum á lóðamörkum við götuna Heiðvang. Nú liggur fyrir að búið er að staðfesta afmörkun allra lóða með mun nákvæmari mæliaðferðum löggiltra mælingamanna og liggur fyrir undirritað samkomulag allra lóðarhafa um innbyrðis lóðamörk. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur dags. 3.3.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagðar leiðréttingar á lóðamörkum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
2.Efri-Strönd - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2602057
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Val Arnarssyni, fyrir hönd Jóhanns Sigurðssonar og Margrétar Árnadóttur, um byggingarheimild til að reisa 277,2 m² geymslu með hesthúsi á jörðinni Efri-Strönd. Umsóknin er í samræmi við meðfylgjandi aðaluppdrætti frá Cedrus ehf., dagsetta 1.12.2026. Þar sem umsókn samræmist ekki gildandi deiliskipulagi var afgreiðslu málsins frestað og málinu vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að áform umsækjanda séu í samræmi við stefnu aðalskipulagsins varðandi landnotkun en þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag skuli byggingaráformin grenndarkynnt. Grenndarkynningu skal senda til ábúenda að Kirkjubæ, nærliggjandi lóðarhafa auk rekstraraðila golfvallarins.
3.Meiri-Tunga 1 201366 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2602058
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Árna Friðrikssyni, fyrir hönd Bjarna Valtýssonar, um byggingarheimild til að reisa 200 m² geymslu og verkstæði á lóðinni Meiri-Tungu lóð 1. Umsóknin er í samræmi við meðfylgjandi aðaluppdrætti frá ASK arkitektum, dagsetta 12.2.2026. Þar sem umsókn samræmist ekki gildandi deiliskipulagi var afgreiðslu málsins frestað og málinu vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að áform umsækjanda séu í samræmi við stefnu aðalskipulagsins varðandi landnotkun en þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag skuli byggingaráformin grenndarkynnt. Grenndarkynningu skal senda til lóðareigenda allra lóða í kring. Umsækjanda er jafnframt bent á að svo virðist sem unnið hafi verið að gerð deiliskipulags fyrir svæðið á árinu 2006 en það hafi aldrei tekið gildi með formlegum hætti og því ekkert deiliskipulag í gildi.
4.Obbugarður - Ægisíða 4 Umsókn um stöðuleyfi
2602025
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Hellunum við Hellu ehf. um stöðuleyfi fyrir tveimur 20 feta gámum á lóðinni Obbugarði, í samræmi við meðfylgjandi afstöðumynd. Þar sem umsókn samræmist ekki gildandi deiliskipulagi var afgreiðslu málsins frestað og málinu vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að áform umsækjanda þurfi að vera í fullu samræmi við gildandi deiliskipulag svæðisins. Unnið er að breytingum á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið og mælist nefndin til að staðsetning og skilgreining á umræddum geymslum verði færð inn í þá vinnu. Nefndin getur ekki fallist á að um stöðuleyfi verði að ræða og hafnar því erindinu.
5.Stekkatún, áform um stækkun ferðaþjónustusvæðis
2601020
Fyrir liggur beiðni frá rekstraraðilum kúluhúsanna um frekari stækkun svæðis undir rekstur ferðaþjónustu. Áform eru uppi um að fjölga kúluhúsum um allt að 35 auk annarra viðbóta eins og hestagerði. Áform umsækjanda voru grenndarkynnt og var frestur til að skila inn umsögnum til og með 26. febrúar. Umsagnir bárust frá 4 aðilum. Lögð er fram samantekt á umsögnum og drögum að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd ítrekar að þau skipulagsáform sem kynnt hafa verið voru í formi forkynningar og voru eingöngu gerð þannig til að koma í veg fyrir óþarfan og íþyngjandi kostnað fyrir umsækjendur. Nefndin frestar afgreiðslu erindisins í ljósi fjölda innsendra athugasemda og felur skipulagsfulltrúa að kynna umsækjendum fram komnar athugasemdir áður en lengra er haldið.
6.Kaldbakur. Breyting á landnotkun
2603023
Eigendur jarðarinnar Kaldbakur óska eftir að sveitarfélagið samþykki að breyta landnotkun á fyrirhugaðri nýrri lóð sem stofnuð verður út úr jörðinni. Lóðin er á bæjarhlaðinu og verður nýtt sem verslunar- og þjónustulóð, þar sem núverandi gistihús sem þar er fellur úr skilgreiningu bújarðar, þar sem um eigendaskipti á rekstrinum verður að ræða.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að unnið verði að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 þar sem ný lóð verði gerð að verslunar- og þjónustulóð í stað núverandi landbúnaðarnota. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem útleiga gistingar hefur verið rekin um árabil á Kaldbak og breyting á landnotkun hafi engin áhrif á aðra en eigendur og sveitarfélagið. Farið skuli því um málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
7.Faxaflatir. Breyting í aðalskipulagi.
2512122
Sveitarfélagið Rangárþing ytra hefur samþykkt að gerðar verði breytingar í aðalskipulagi sveitarfélagsins á byggingarmagni á Faxaflötum þar sem nýtingarhlutfall verður 0,15-0,7 og heimild sett inn til byggingar kjallara. Lögð er fram lýsing skipulagsáforma frá Eflu dags. 4.3.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning skal standa í a.m.k. 2 vikur.
8.Sigöldustöð. Mat á umhverfisáhrifum.
2206026
Landsvirkjun hefur lagt fram til kynningar og samráðs viðbót við fyrri umhverfismatsskýrslu vegna stækkunar Sigölduvirkjunar. Í skýrslunni er fjallað um áhrif framkvæmdarinnar á vatnshlot.
Fyrirtækið er með áform um að stækka Sigöldustöð, sem er efst þeirra vatnsaflsstöðva sem nýta vatn af vatnasviði Tugnaár og Þjórsár. Í dag er virkjað rennsli 240 m3/s og uppsett afl Sigöldustöðvar með þremur aflvélum 150 MW. Fyrirhuguð áform ganga út á að bæta við fjórðu aflvélinni og auka með því afls stöðvarinnar í allt að 215 MW.
Fyrirhuguð stækkun á Sigöldustöð undirgekkst umhverfismat sem lauk með áliti Skipulagsstofnunar 18. desember 2023. Ásahreppur veitti framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni 19. febrúar 2025 sem síðar var fellt úr gildi með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 57/2025. Samkvæmt úrskurðinum var annmarki á umhverfismati framkvæmdarinnar hvað varðar mat og kynningu á áhrifum á vatnshlot. Viðbótarskýrslunni og samráði um hana er ætlað að bæta úr framangreindum annmarka.
Fyrirtækið er með áform um að stækka Sigöldustöð, sem er efst þeirra vatnsaflsstöðva sem nýta vatn af vatnasviði Tugnaár og Þjórsár. Í dag er virkjað rennsli 240 m3/s og uppsett afl Sigöldustöðvar með þremur aflvélum 150 MW. Fyrirhuguð áform ganga út á að bæta við fjórðu aflvélinni og auka með því afls stöðvarinnar í allt að 215 MW.
Fyrirhuguð stækkun á Sigöldustöð undirgekkst umhverfismat sem lauk með áliti Skipulagsstofnunar 18. desember 2023. Ásahreppur veitti framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni 19. febrúar 2025 sem síðar var fellt úr gildi með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 57/2025. Samkvæmt úrskurðinum var annmarki á umhverfismati framkvæmdarinnar hvað varðar mat og kynningu á áhrifum á vatnshlot. Viðbótarskýrslunni og samráði um hana er ætlað að bæta úr framangreindum annmarka.
Lagt fram til kynningar. Skipulagsfulltrúa verði falið að undirbúa umsögn sem lögð yrði fram á næsta fundi.
9.Norður Nýibær Breyting á landnotkun í aðalskipulagi.
2505009
Sveitarstjórn hefur samþykkt að auglýsa tillögu að breytingum á núverandi landnotkun á hluta landareignar Norður-Nýibær L165410. Heildarstærð svæðis er um 25 ha og hluti þess verður skilgreindur sem íbúðabyggð. Fyrirhugað er að stærð íbúðarlóða verði 1,1 ha að jafnaði og að heimilt verði að reisa íbúðarhús og bílskúr auk gestahúsa til útleigu allt árið um kring fyrir ferðamenn. Heimild yrði til lítilsháttar reksturs innan svæðis á sérlóð. Gert er ráð fyrir aðkomu að norðanverðu inn á spilduna af Þykkvabæjarvegi. Tillagan var auglýst frá og með 14.1.2026 til og með 26.2.2026 og var auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi. Umsagnir bárust frá 5 aðilum en engar athugasemdir voru gerðar. Lögð er fram sameiginleg samantekt á umsögnum og drög að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir umsagnaraðila. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.
10.Norður Nýibær. Deiliskipulag íbúðabyggðar
2510326
Landeigandi leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir hluta úr jörð sinni, Norður Nýjabæ. Heildarstærð svæðis er um 25 ha og hluti þess verður skilgreindur sem íbúðabyggð. Fyrirhugað er að hluti íbúðarlóða verði 1,1 ha að jafnaði og að heimilt verði að reisa íbúðarhús og bílskúr auk gestahúsa til útleigu allt árið um kring fyrir ferðamenn. Heimild yrði til lítilsháttar reksturs innan svæðis að auki á sérlóð næst aðkomu inná svæðið. Gert er ráð fyrir aðkomu að norðanverðu inn á spilduna af Þykkvabæjarvegi. Tillagan var auglýst frá og með 14.1.2026 til og með 26.2.2026 og var auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi. Umsagnir bárust frá 5 aðilum en engar athugasemdir voru gerðar. Lögð er fram samantekt um umsagnir og drög að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um fram komnar umsagnir. Nefndin telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11.Strönd 164556 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
2601013
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Íslandsturna um byggingarheimild fyrir 25 m háu fjarskiptamastri úr stáli, í samræmi við umboð landeiganda. Umsókninni fylgja aðaluppdrættir frá VEB Verkfræðistofu, dagsettir 8.1.2026.
Skipulagsembættið grenndarkynnti tillöguna í skipulagsgáttinni auk þess að senda bréf á nærliggjandi landeigendur. Umsagnarfrestur kynningarinnar rann út 24.febrúar. Umsagnir bárust frá tveimur aðilum. Frá Vegagerðinni sem gerir ekki athugasemdir við skipulagið með þeim fyrirvara um þær breytingar sem kunnu að verða þegar Hringvegi verður breytt í 2 1 og frá Lambhagabúinu sem gerðu athugasemdir við staðsetninguna þar sem hæð masturs er til þess fallið að hafa mikil sjónræn áhrif frá Lambhaga. Lögð er fram samantekt á umsögnum og drögum að viðbrögðum við þeim.
Skipulagsembættið grenndarkynnti tillöguna í skipulagsgáttinni auk þess að senda bréf á nærliggjandi landeigendur. Umsagnarfrestur kynningarinnar rann út 24.febrúar. Umsagnir bárust frá tveimur aðilum. Frá Vegagerðinni sem gerir ekki athugasemdir við skipulagið með þeim fyrirvara um þær breytingar sem kunnu að verða þegar Hringvegi verður breytt í 2 1 og frá Lambhagabúinu sem gerðu athugasemdir við staðsetninguna þar sem hæð masturs er til þess fallið að hafa mikil sjónræn áhrif frá Lambhaga. Lögð er fram samantekt á umsögnum og drögum að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á fyrirhugaðri staðsetningu mastursins. Nefndin leggur til að staðsetning verði samþykkt og skilmálum fyrir mastrið verði gerð skil í fyrirhuguðu deiliskipulagi fyrir svæðið.
12.Hjartaland. Breyting á deiliskipulagi
2510291
Eigendur hafa lagt fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð sína. Gerð er breyting á deiliskipulagi svæðisins sem tekur til Sólstaðar (L227520) og Stóru-Skóga 2A (L234474). Byggingarreit B1 á Sólstöðum er breytt ásamt skilmálum innan hans þar sem heimilt er að stækka íbúðarhúsið í 250m² og reisa annað íbúðarhús allt að 250m² með innbyggðum bílskúr og allt að 250 m² gróðurhús. Heildarbyggingarmagn B1 verður 750 m². Tveimur nýjum byggingarreitum, G1 og Ú1 er bætt við ásamt skilmálum. Á G1 er heimilt að reisa allt að 5 gestahús, húsin verða mis stór og á stærðarbilinu 40-80 m², þar sem leyfilegt er að hafa gistingu í flokki II, fyrir allt að 10 gesti. Heildarbyggingarmagn byggingareits G1 verður 300 m². Á byggingarreit Ú1 er heimilt að reysa fjárhús, hesthús og áhaldageymslu, samtals allt að 500 m². Heimilt er að reisa 3 gróðurhús, samtals allt að 1000 m². Heildarbyggingarmagn Ú1 verður 1500 m². Tillagan var auglýst frá og með 12.11.2025 til og með 31.12.2025. Athugasemdir bárust frá landeigendum vegna mögulegrar ljósmengunar frá gróðurhúsunum. Skipulags- og umferðarnefnd frestaði afgreiðslu á síðasta fundi og óskaði eftir að gerð yrði betri grein fyrir mótvægisaðgerðum í greinargerð. Lögð er fram uppfærð greinargerð frá Eflu dags. br. 9.2.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
13.Öldur III. Breyting á deiliskipulagi
2602002
Farið yfir áherslur gildandi deiliskipulags og rætt hvort eigi að breyta áherslum um byggingartegundir og heimila tveggja hæða fjölbýlishús, breikka vegi milli húsa um a.m.k. 1 metra og skilgreina tengingar gatna við Helluvang Ofanbyggðaveginn.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að gerð verði breyting á gildandi deiliskipulagi fyrir Öldur III, dags. 7.11.2018 m.s.br. Nefndin telur að gera þurfi ráð fyrir allt að 10 íbúða fjölbýshúsum á einni til tveimur hæðum í stað einbýlishúsa norðan við Móöldu og einnig við enda Móöldu að sunnanverðu og við enda Melöldu, að breikka þurfi Melöldu og Móöldu um a.m.k. einn metra, að Kjarralda, Lyngalda og Melalda verði gerðar að botngötum og að gert verði ráð fyrir parhúsum í stað einbýlishúsa við enda Kjarröldu og Melöldu. Jafnframt verði Móaldan gerð í sama stíl og Langaldan m.t.t. breiddar og mögulegra gangstétta beggja megin. Skipulagsfulltrúa verði falið að hefja vinnu við þessar breytingar sem fyrst.
14.Rangárbakki 8, Breyting á deiliskipulagi
2503034
Lóðarhafi Rangárbakka 8a, 8b og 8c óskar eftir að fá að leggja fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið, dags. 11.10.2012. Bætt verði við allt að sjö gistiskálum á svæði A, svæðið B og C verða óbreytt, fallið verði frá fyrirhugaðri breytingu á svæði D og núverandi gistiskálar látnir halda sér. Á svæði E verði gert ráð fyrir hótelbyggingu á tveimur hæðum með grunnfleti allt að 2000 m². Allt að 75 herbergi, fundaraðstaða og matsalur. Að auki verði bætt við aðstöðu fyrir starfsfólk í allt að 390 m² húsi á einni hæð. Tillaga að breytingu frá Ragnari Magnússyni, i62 ehf, dags. 7.3.2025. Forkynning á áformum umsækjanda var send til þriggja aðila, Hestamannafélagsins, Veiðifélagsins og til eigenda lóðanna við Suðurlandsveginn norðan við sláturhúsið. Umsögn barst frá Veiðifélaginu þar sem umræddum áformum var harðlega mótmælt.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir og athugasemdir. Nefndin telur að gera verði frekari grein fyrir þeim þáttum sem snúa að mótvægisaðgerðum vegna mengunarhættu frá baðlóni auk þess að skilgreina þurfi betur hæðir húsa að teknu tilliti til mögulegrar flóðahættu úr Ytri-Rangá. Nefndin óskar eftir fundi með umsækjendum og verði hann á næsta reglulega fundi.
15.Stóru-Vellir L165011. Umsókn um framkvæmdaleyfi til vegagerðar.
2504028
Eigendur Stóru-Valla, L165011, hafa sótt um framkvæmdaleyfi fyrir vegi í landi Minni-Valla, L164995, skv. dómssátt sem gerð var 23. apríl 2024, þinglýsingarnúmer 447-B-001933/2024. Að beiðni sveitarfélagsins var einnig óskað eftir aðalskipulagsbreytingu á grundvelli dómssáttar. Afgreiðslu málsins var frestað á síðasta fundi og óskað álits lögmanns sveitarfélagsins. Álit lögmanns lagt fram.
Skipulags- og umferðarnefnd áréttar að útgáfa framkvæmdaleyfis byggir á því að framkvæmd sé í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir og að málsmeðferð, gagnaöflun og ákvörðunartaka fari að lögum og reglum um skipulagsmál og leyfisveitingar. Nefndin staðfestir að fyrirhugaður vegur er ekki sýndur á gildandi aðalskipulagi og að ekkert deiliskipulag liggur fyrir um áformin. Af þeim sökum telur nefndin ekki unnt að ljúka efnislegri afgreiðslu umsóknar um framkvæmdaleyfi á þessu stigi.
Umsókn um framkvæmdaleyfi er tekin til umfjöllunar en afgreiðslu hennar er frestað þar til skýrt liggur fyrir nauðsynleg breyting á aðalskipulagi og eftir atvikum nánari skipulagsheimildir. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að undirbúa meðferð um breytingu á aðalskipulagi vegna vegstæðis og leggja fram tillögu um næstu skref í málinu í samræmi við lögbundið ferli. Nefndin leggur ríka áherslu á að ítrasta samráðs verði gætt áður en tekin verður efnisleg afstaða til skipulagsbreytingar og/eða leyfisveitinga, bæði gagnvart landeigendum og öðrum hagsmunaaðilum, og að leitað verði umsagna viðeigandi stjórnvalda og stofnana eftir eðli máls.
Áður en málið kemur aftur til efnislegrar afgreiðslu skal liggja fyrir fullnægjandi lýsing á framkvæmdinni, þ.m.t. lega og útfærsla vegstæðis, tenging við vegakerfi, áhrif á landnotkun og umhverfi, ásamt öðrum atriðum sem nauðsynleg eru til að unnt sé að leggja mat á samræmi við skipulag, öryggi og hagsmuni. Að undangenginni lögbundinni málsmeðferð, samráði og nauðsynlegum kynningum mun nefndin taka málið upp að nýju og meta hvort og með hvaða skilyrðum sé unnt að veita framkvæmdaleyfi.
Umsókn um framkvæmdaleyfi er tekin til umfjöllunar en afgreiðslu hennar er frestað þar til skýrt liggur fyrir nauðsynleg breyting á aðalskipulagi og eftir atvikum nánari skipulagsheimildir. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að undirbúa meðferð um breytingu á aðalskipulagi vegna vegstæðis og leggja fram tillögu um næstu skref í málinu í samræmi við lögbundið ferli. Nefndin leggur ríka áherslu á að ítrasta samráðs verði gætt áður en tekin verður efnisleg afstaða til skipulagsbreytingar og/eða leyfisveitinga, bæði gagnvart landeigendum og öðrum hagsmunaaðilum, og að leitað verði umsagna viðeigandi stjórnvalda og stofnana eftir eðli máls.
Áður en málið kemur aftur til efnislegrar afgreiðslu skal liggja fyrir fullnægjandi lýsing á framkvæmdinni, þ.m.t. lega og útfærsla vegstæðis, tenging við vegakerfi, áhrif á landnotkun og umhverfi, ásamt öðrum atriðum sem nauðsynleg eru til að unnt sé að leggja mat á samræmi við skipulag, öryggi og hagsmuni. Að undangenginni lögbundinni málsmeðferð, samráði og nauðsynlegum kynningum mun nefndin taka málið upp að nýju og meta hvort og með hvaða skilyrðum sé unnt að veita framkvæmdaleyfi.
16.Melalda 6. Umsókn um lóð
2603002
G.G.Tré ehf óskar eftir að fá að byggja 8-10 íbúða raðhús á tveimur hæðum undir 50-70 m² íbúðir. Litið er til sameiningar á lóðum við enda Melöldu til að byrja með. Framkvæmdir gætu hafist ágúst 2026 og standa í eitt ár.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsókn aðila og leggur til við sveitarstjórn að vilyrði verði veitt fyrir lóðinni að því gefnu að breyting á deiliskipulagi gangi eftir. Jafnframt er litið svo á að umsækjerndur falli frá umsókn sinni að lóðunum við Kjarröldu og Lyngöldu varðandi sambærilega framkvæmd þar sem breytt deiliskipulag gerir ekki ráð fyrir tveggja hæða byggingum þar.
Fundi slitið - kl. 10:00.