Þórunn Dís Þórunnardóttir boðaði forföll.
1.Gunnarsholt Frægarður 164497 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2603034
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Sigurðar Unnars Sigurðssonar, fh. Lands og skógar ehf., um byggingarheimild til byggingar um 15,5 m hás fóðurturns á steyptum undirstöðum við suðausturenda Frægarðs, samkvæmt innlögðum aðaluppdráttum, dags. 9.2.2026. Þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið er erindi umsækjanda vísað til Skipulags- og umferðarnefndar.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að engin þörf sé á grenndarkynningu vegna þessa máls sökum mikillar fjarlægðar frá næstu íveruhúsum, en næsta íbúðrhús er í rúmlega hálfs kílómetra fjarlægð. Nefndin gerir því engar athugasemdir við að veitt verði byggingarleyfi fyrir vðkomandi fóðurturni enda framkvæmdin í samræmi við þá starfsemi sem stunduð er á svæðinu.
2.Veiðivötn - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2603029
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Bents Larsen Fróðasonar, fh. Veiðifélags Landmannaafréttar, um byggingarheimild til byggingar 37,3 m² veiðihúss (mhl. 25) á Landmannaafrétti, samkvæmt innlögðum aðaluppdráttum umsækjanda, dags. 8.1.2026. Þar sem áform umsækjanda eru ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir svæðið er erindi umsækjanda vísað til Skipulags- og umferðarnefndar.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að þar sem búið er að samþykkja að gera smávægilegar breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir Veiðivötn skuli ekki gerð athugasemd við staðsetningu eða byggingu þessa húss að fengnu samþykki Forsætisráðuneytisins.
3.Þrúðvangur 20 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
2603027
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðjóns Magnússonar, fh. Jónínu Ragnheiðar Grímsdóttur, um byggingarleyfi vegna breytinga á innra fyrirkomulagi á 1. hæð að Þúðvangi 20, þar sem atvinnurými er breytt í bílgeymslu, samkvæmt innlögðum aðaluppdráttum, dags. 4.3.2026. Þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið er erindi umsækjanda vísað til Skipulags- og umferðarnefndar.
Skipulags- og umferðarnefnd telur ekki þörf á grenndarkynningu vegna þessara breytinga en leggur til að breyting verði gerð á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem lóðin verði færð aftur til íbúðanotkunar. Nefndin telur réttast að bíða með breytinguna þar til ákvörðun um endurskoðun aðalskipulagsins liggur fyrir.
4.Efri-Strönd - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
2602057
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn frá Val Arnarssyni, fyrir hönd Jóhanns Sigurðssonar og Margrétar Árnadóttur, um byggingarheimild til að reisa 277,2 m² geymslu með hesthúsi á jörðinni Efri-Strönd. Umsóknin er í samræmi við meðfylgjandi aðaluppdrætti frá Cedrus ehf., dagsetta 1.12.2026. Þar sem umsókn samræmist ekki gildandi deiliskipulagi voru áformin grenndarkynnt. Umsagnir liggja fyrir frá öllum aðilum þar sem ekki voru gerðar neinar athugasemdir.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að þar sem engar athugasemdir voru gerðar af hálfu hagsmunaaðila í grenndarkynningu skuli veita byggingarleyfi / heimild fyrir áformuðum framkvæmdum.
Gunnar Aron Ólason víkur af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa erindis.
5.Sigöldustöð. Mat á umhverfisáhrifum.
2206026
Landsvirkjun hefur lagt fram til kynningar og samráðs viðbót við fyrri umhverfismatsskýrslu vegna stækkunar Sigölduvirkjunar. Í skýrslunni er fjallað um áhrif framkvæmdarinnar á vatnshlot. Skipulagsfulltrúi leggur fram drög að umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða umsögn og felur skipulagsfulltrúa að afgreiða erindið. Nefndin gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við fyrirliggjandi viðbót við fyrri umhverfismatsskýrslu vegna stækkunar Sigölduvirkjunar skv. lögum nr. 111/2021.
Gunnar Aron kom aftur á fund.
6.Ægissíða 4 land. Ósk um breytingu á landnotkun
2511007
Eigandi Ægissíðu 4 lands, L165443, hefur fengið heimild til að unnið verði að gerð tillögu að breytingu á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi þar sem henni verði breytt úr iðnaðarsvæði í verslunar- og þjónustulóð. Lögð er fram lýsing skipulagsáforma frá Eflu dags. 16.3.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning standi í a.m.k. 2 vikur.
7.Kaldbakur. Breyting á landnotkun
2603023
Eigendur jarðarinnar Kaldbakur hafa fengið heimild til að breyta landnotkun á fyrirhugaðri nýrri lóð sem stofnuð verður út úr jörðinni. Lóðin er á bæjarhlaðinu og verður nýtt sem verslunar- og þjónustulóð, þar sem núverandi gistihús sem þar er fellur úr skilgreiningu bújarðar, þar sem um eigendaskipti verður að ræða. Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi frá Eflu dags. 4.3.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að farið verði um málsmeðferð eins og um óverulega breytingu sé að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem tillagan hefur engin áhrif á aðra en málsaðila og sveitarfélagið. Nefndin telur að um sé að ræða skilgreiningu á landnotkun í samræmi við raunverulega notkun fyrir starfsemi sem hefur verið rekin um árabil, innan núverandi húsnæðis, án áforma um verulega aukningu umsvifa eða breytta ásýnd svæðis, og telur því nefndin að næg rök séu til staðar fyrir því að breytingin geti fallið undir málsmeðferð óverulegrar breytingar.
Gunnar Aron Ólason víkur af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa erindis.
8.Hvammsvirkjun. Framkvæmdaleyfi vegna breytinga á Búrfellslínum 1 og 3.
2601357
Lögð er fram umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdum við færslu á Búrfellslínu 1 og tímabundins masturs í Búrfellslínu 3, dags. 28. janúar 2026, ásamt fylgiskjölum, til umsagnar, sbr. 3. mgr. 61. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.
Um er að ræða framkvæmd tengda Hvammsvirkjun Landsvirkjunar, nánar tiltekið tilfærslu á Búrfellslínu 1, tímabundna hækkun á Búrfellslínu 3 vegna tengingar flutningskerfisins við Hvammsvirkjun og færslu Búrfellslínu 1 frá stíflumannvirkjum ásamt nýju tengivirki.
Sótt er um framkvæmdaleyfi vegna eftirfarandi:
?
Niðurrif núverandi mastra: Fjarlægja þarf 6 möstur í núverandi línu, þ.e. möstur 38-43, bæði möstur meðtalin. Við niðurrif verða möstrin felld í heilu lagi, bútuð niður, flutt í burtu og málmurinn sendur í endurvinnslu. Til verksins verða notaðar sömu vinnuvélar og þarf við reisingu nýrra mastra sem sett verða upp í kjölfarið. Á framkvæmdatíma verða reist 6 timburmöstur sem standa tímabundið og flytja raforku fram hjá framkvæmdasvæðinu og tryggja virkni flutningskerfisins á meðan á framkvæmdum stendur. Timburmöstrin verða fjarlægð að framkvæmdum loknum.
?
Uppsetning á nýjum möstrum: Reist verða 7 ný möstur auk tveggja ramma sem taka á móti línunni og tengja við tengivirkið. Fjögur mastranna verða M- burðarmöstur úr stálgrind, 23,6?25,8 m á hæð, og þrjú þeirra fjórfótungsmöstur, 16 ? 44 m á hæð. Þverslá eða brú í burðarmöstrum er 20 m löng.
?
Slóðagerð: Línuvegir fylgja núverandi línum og munu aðkomu- og vinnuvegir vegna Hvammsvirkjunar nýtast við framkvæmdirnar. Út frá þessum vegum þarf að gera nýja aðkomuslóða að nokkrum nýjum möstrum. Alls eru nýir slóðar að möstrum um 450 m innan Rangárþings Ytra.
Fætur burðarmastra munu standa á forsteyptum undirstöðum og stög halda möstrunum í skorðum. Við jörð tengjast stög við stagfestur, ýmist steyptar staghellur eða bergbolta. Til að koma undirstöðum og stagfestum fyrir þarf að grafa, fleyga, sprengja eða bora. Fyrir undirstöður mastra er gert ráð fyrir að grafnar verði 2 m djúpar holur að stærð 2,5 x 3,0 m. Þar sem klöpp er við yfirborð er fleygað 1,0 ? 1,5 m niður í klöppina og forsteyptri undirstöðu komið fyrir eða bergboltar festir ofan í klöppina og undirstaða steypt utan um þá. Þegar undirstöðum mastra og stagfestum hefur verið komið fyrir þarf að fylla að þeim með burðarhæfu efni. Uppgrafið efni verður nýtt að eins miklu leyti og mögulegt er.
Áætluð efnisþörf framkvæmdanna er um 6.500 m3 og er það einkum efni í línuslóða að möstrum, mastraplön og undirstöður mastra. Ekki verða opnaðar nýjar námur fyrir þessa framkvæmd heldur verður efnið fengið úr námum í nágrenninu sem hafa tilskilin leyfi.
Leyfið er eingöngu bundið við þær framkvæmdir sem tilgreindar eru í framkvæmdaleyfisumsókn og á teikningum sem fylgdu umsókninni og fjallað er um í umhverfismatinu. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir nýju tengivirki í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Landsnets og öðrum fylgigögnum umsóknar.
Eftirtalin gögn eru lögð fram hjá nefndinni:
Greinargerð umsóknar framkvæmdaraðila, framkvæmdalýsing og teikningar
Kort með línubreytingum ? teikningar og yfirlitsmynd af framkvæmd
Deiliskipulag Hvammsvirkjunar - stærri uppdráttur
Deiliskipulag Hvammsvirkjunar - lega lína
Deiliskipulag Hvammsvirkjunar ? greinargerð og umhverfisskýrsla
Umhverfismatsskýrsla frá 2003
Úrskurður Skipulagsstofnunar frá 2003
Úrskurður ráðherra frá 2004
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um endurskoðun frá 2015
Endurskoðað umhverfismat frá 2017
Álit Skipulagsstofnunar frá 2018
Leyfi Umhverfis- og orkustofnunar 2025 ? Bráðabirgðaheimild, dags. 11. ágúst 2025
Virkjunarleyfi ásamt heimild til breytingar á vatnshlotum frá Umhverfis- og orkustofnun, dags. 12. desember 2025
Umsögn Náttúruverndarstofnunar vegna umsóknarinnar frá 23. febrúar 2026
Greinargerð í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 13. mars 2026.

Skipulags- og umferðarnefnd hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsnets með framkvæmdaleyfisumsókninni. Þá liggur fyrir greinargerð í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 13. mars 2026, þar sem fram koma skilyrði og mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi greinargerð skv. 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar verði samþykkt sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdaleyfisumsóknina og að fallist verði á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda vegna tilfærslu á Búrfellslínu 1, tímabundna hækkun á Búrfellslínu 3 vegna tengingar flutningskerfisins við Hvammsvirkjun og færslu Búrfellslínu 1 frá stíflumannvirkjum ásamt nýju tengivirki, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsnets og önnur fyrirliggjandi gögn.
Nefndin telur sýnt fram á að brýna nauðsyn beri til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna með vísan til fyrirsjáanlegs orkuskorts í landinu, sbr. orkuspá Umhverfis- og orkustofnunar og raforkuspá Landsnets, til þess að tryggja raforkuöryggi í landinu og framboð af orku til orkuskipta. Framkvæmdir á Búrfellslínu 1, sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir, eru nauðsynlegar til að Hvammsvirkjun geti orðið að veruleika og virkjunin geti skilað raforku inn á flutningskerfi Landsnets, en framkvæmdir við virkjunina eru hafnar. Nefndin telur tilgang virkjunarinnar þýðingarmikinn vegna almannaheilla og telur það sama eiga við um þær framkvæmdir sem fyrirliggjandi umsókn varðar og tengjast þeirri virkjun með beinum hætti. Einnig telur nefndin að í fyrirliggjandi gögnum sé næg grein gerð fyrir framkvæmdinni eins og hún liggur fyrir umfram aðra valkosti og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum og telur tilgang framkvæmdarinnar vega þyngra en þau umhverfisáhrif sem framkvæmdin hefur.

Gunnar Aron kom aftur inn á fund
Gunnar Aron Ólason víkur af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa erindis.
9.Búðafossvegur. Framkvæmdaleyfi
2510037
Lögð er fram umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Búðafossvegar (23) ásamt nýrri brú yfir Þjórsá.
Fyrirhuguð framkvæmd felst í lagningu um 7,4 km nýs vegar á milli Þjórsárdalsvegar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Landvegar í Rangárþingi ytra. Vegurinn mun heita Búðafossvegur og kemur til með að liggja frá nýju hringtorgi á Þjórsárdalsvegi um land Réttarholts og Minna-hofs, um nýja brú yfir Þjórsá og þaðan um land Vindáss og Minni-Valla að Landvegi. Búðafossvegur verður útfærður samkvæmt viðmiðum vegflokks C8 með tveimur 3,5 m breiðum akreinum og 0,5 m breiðum öxlum beggja megin. Heildarbreidd vegar er því 8,0 m og verður hámarkshraði vegarins 90 km/klst með áætlaðri umferð um 500 bifreiða daglega. Vegsvæði vegarins verður 40 m breitt, 20 m frá miðlínu í hvora átt. Um er að ræða nokkuð umfangsmikinn veg og brú yfir Þjórsá sem liggur um svæði sem er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi sveitarfélaganna beggja vegna árinnar. Rúmir 2 km munu liggja í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og um 5 km í Rangárþing ytra. Fyrirhugað hringtorg verður malbikað en annað yfirborð vegarins klætt. Yfir Þjórsá verður byggð 204 m löng tvíbreið stálbitabrú með steyptu gólfi í 5 m hæð yfir vatnsyfirborði árinnar og í fimm höfum; tveimur 36 m löngum og þremur 44 m löngum. Heildarbreidd brúar verður 11 m og frá nyrðri bakka Þjósár að sjálfri brúnni verður Búðafossvegur á um 140 m langri grjótvarðri fyllingu út í ána. Áætluð efnisþörf í framkvæmdina er tæplega 350.000 m3 sem verður fengið frá fjórum efnistökusvæðum og úr skeringum. Eina nýja náman sem opnuð verður vegna framkvæmdanna er Búðanáma sem verður staðsett rétt vestan fyrirhugaðs Búðafossvegar á norðurbakka Þjórsár.
Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Vegagerðarinnar og öðrum fylgigögnum umsóknar.
Eftirtalin gögn eru lögð fram hjá nefndinni:
Greinargerð umsóknar framkvæmdaraðila, framkvæmdalýsing, ásamt viðbótarskjalaskrá
Teikningasett ásamt teikningaskrá
Teikning, yfirlitsmynd Búðafossvegar
Teikning, kennisnið Búðafossvegar C8
Teikning, kennisnið heimreiða og tenginga C7
Teikning, Búðafossvegur norðan Þjórsár
Teikning, Búðafossvegur sunnan Þjórsár
Teikning, Búðafossvegur girðingar reiðleið - 1611-170-32-A000-V05
Teikning, Búðafossbrú yfirlitsmynd og þversnið
Efla, minnisblað - Fyllingar í árfarveginum, dags. 6. júní 2023
Skipulagsstofnun, ákvörðun um mat á umhverfisáhrifum, dags. 28. ágúst 2009
Efla f.h. Vegagerðarinnar, vegna breytinga á námum, 15. júní 2022
Matsskyldufyrirspurn og greinargerð framkvæmdaraðila, dags. 17. nóvember 2025
Matsskylduákvörðun Skipulagsstofnunar, dags. 2. febrúar 2026
Leyfi Fiskistofu, dags. 29. febrúar 2024
Uppfærð skilagrein um áhrif framkvæmda á lífríki í vatni/umsögn Hafrannsóknarstofnunar, dags. 5. maí 2022
Umsögn Veiðifélags Þjórsár, dags. 21. júlí 2022
Verkís, straumfræðigreining, dags. 6. febrúar 2024
Umsögn Hafrannsóknarstofnunar um áhrif á vatnshlot, dags. 24. apríl 2024
Hafrannsóknarstofnun, stuðningsskjal áhrifamat vatnshlots
Fornleifar - FS895-22291, Búðafossvegur 2022
Fornleifar - FS933-22451, Vegna lagningar Búðafossvegar 2023
Fornleifar - FS983-23231, Tóftin við Markamýri og uppgröftur á tóft í Vindási 2024
Minjastofnun, staðfesting, dags. 7. október 2025
Framkvæmdaáætlun verkkaupa
Matsskyldufyrirspurn og greinargerð framkvæmdaraðila vegna stækkunar Búðanámu, dags. 27. janúar 2025
Skipulagsstofnun, ákvörðun um mat á umhverfisáhrifum vegna stækkunar Búðanámu, dags. 3. apríl 2025
Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu og greinargerð framkvæmdaraðila vegna efnistöku, dags. í júlí 2009, ásamt bréfi dags. 15. júlí 2009
Umsögn Náttúruverndarstofnunar til Rangárþings ytra, dags. 27. febrúar 2026
Svör Vegagerðarinnar vegna umsagnar Náttúruverndarstofnunar, dags. 10. mars 2026, auk yfirlitskorts vegna kortlagningar á náttúrufari í veglínu Búðafossvegar, sunnan Þjórsár
Greinargerð leyfisveitanda, dags. 13. mars 2026.

Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu erindisins vegna frekari gagnaöflunar.
Gunnar Aron kom aftur inná fundinn.
10.Lækjarbotnar 2, L239301. Deiliskipulag
2601007
Eigandi óskar eftir heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir Lækjarbotna 2, um 42 ha land. Ætlunin er að byggja íbúðarhús ásamt, gestahúsi, hesthúsi og skemmu, samtals um 910m2. Tillaga var auglýst frá og með 29.1.2026 til og með 18.3.2026. Alls bárust umsagnir frá 6 aðilum en ekki var um neinar athugasemdir að ræða.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11.Leynir 2. Deiliskipulag.
2508002
Í gildi er deiliskipulag fyrir Leyni, dags. B-deildar auglýsingar 28. jan. 2021. Í því skipulagi var heimild fyrir nokkuð umfangsmikilli gistingu og þjónustu við ferðamenn. Með nýju deiliskipulagi er dregið verulega úr umfangi starfsemi. Eldra deiliskipulag verður fellt úr gildi við gildistöku nýs deiliskipulags. Nýtt deiliskipulag nær yfir um 4 ha af landi Leynis 2. Leynir 2 er skráð 25 ha að stærð skv. fasteignaskrá HMS. Gert er ráð fyrir aðstöðu starfsmanna í þjónustuhúsi og gistingu í minni gestahúsum (kúluhúsum) fyrir allt að 50 gesti, skv. flokki II. Þá verður áfram heimilt að reka tjaldsvæði. Lýsing skipulagsáforma var kynnt til og með 1.10.2025. Eftir kynningu lýsingarinnar fór tillagan í auglýsingu frá og með 4.11.2025 til og með 19.12.2025. Umsagnir bárust og athugasemdir sem bárust urðu til þess að tillögunni hefur verið breytt í meginatriðum. Uppfærð tillaga var auglýst frá og með 29.1.2026 til og með 18.3.2026. Umsagnir bárust frá alls 8 aðilum en ekki var um neinar athugasemdir að ræða nema frá nágrönnum sem lýstu áhyggjum sínum yfir nálægð milli íbúðarhúsa.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
12.Brimnes. Deiliskipulag
2601042
Eigendur Brimness óska eftir heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir land sitt. Ráðgert er að byggt verði íbúðarhús, gestahús og skemma / geymsla. Tillagan var auglýst frá og með 29.1.2026 til og með 18.3.2026. Alls bárust umsagnir frá 7 aðilum en ekki var um neinar athugasemdir að ræða.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
13.Sigöldugljúfur
2410024
Unnið er að vinnu við deiliskipulag fyrir Sigöldugljúfur. Lagðar fram fyrstu hugmyndir og greining á umhverfi.
Skipulags- og umferðarnefnd líst vel á framkomnar hugmyndir að skipulagi við og meðfram Sigöldugljúfri og leggur til að gengið verði frá gerð deiliskipulagstillögu á þeim forsendum sem nú liggja fyrir.
Fundi slitið - kl. 10:00.