1.Kaldbakur. Landskipti Urriðabakki.
Málsnúmer 2603057Vakta málsnúmer
2.Austvaðsholt 1c og Austvaðsholt 2. Staðfesting á merkjalínu.
Málsnúmer 2603058Vakta málsnúmer
3.Meiri-Tunga 3. Landskipti vegsvæði. Viðbót við MT 3 vegsvæði
Málsnúmer 2603085Vakta málsnúmer
Ný lóð fengi L241322.
4.Skógarhólar 2, Landskipti Einarsholt 2, Skógarhólar 3 og 4.
Málsnúmer 2603071Vakta málsnúmer
5.Faxaflatir. Landskipti, stækkun Faxaflata 4.
Málsnúmer 2603086Vakta málsnúmer
6.Minna-Hof lóð 4 - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
Málsnúmer 2603048Vakta málsnúmer
7.Myrkvaborgir. Fyrirspurn vegna viðbyggingar
Málsnúmer 2603072Vakta málsnúmer
8.Búðafossvegur. Framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2510037Vakta málsnúmer
Fyrirhuguð framkvæmd felst í lagningu um 7,4 km nýs vegar á milli Þjórsárdalsvegar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Landvegar í Rangárþingi ytra. Vegurinn mun heita Búðafossvegur og kemur til með að liggja frá nýju hringtorgi á Þjórsárdalsvegi um land Réttarholts og Minna-hofs, um nýja brú yfir Þjórsá og þaðan um land Vindáss og Minni-Valla að Landvegi. Búðafossvegur verður útfærður samkvæmt viðmiðum vegflokks C8 með tveimur 3,5 m breiðum akreinum og 0,5 m breiðum öxlum beggja megin. Heildarbreidd vegar er því 8,0 m og verður hámarkshraði vegarins 90 km/klst með áætlaðri umferð um 500 bifreiða daglega. Vegsvæði vegarins verður 40 m breitt, 20 m frá miðlínu í hvora átt. Um er að ræða nokkuð umfangsmikinn veg og brú yfir Þjórsá sem liggur um svæði sem er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi sveitarfélaganna beggja vegna árinnar. Rúmir 2 km munu liggja í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og um 5 km í Rangárþing ytra. Fyrirhugað hringtorg verður malbikað en annað yfirborð vegarins klætt. Yfir Þjórsá verður byggð 204 m löng tvíbreið stálbitabrú með steyptu gólfi í 5 m hæð yfir vatnsyfirborði árinnar og í fimm höfum; tveimur 36 m löngum og þremur 44 m löngum. Heildarbreidd brúar verður 11 m og frá nyrðri bakka Þjósár að sjálfri brúnni verður Búðafossvegur á um 140 m langri grjótvarðri fyllingu út í ána. Áætluð efnisþörf í framkvæmdina er tæplega 350.000 m3 sem verður fengið frá fjórum efnistökusvæðum og úr skeringum. Eina nýja náman sem opnuð verður vegna framkvæmdanna er Búðanáma sem verður staðsett rétt vestan fyrirhugaðs Búðafossvegar á norðurbakka Þjórsár.
Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Vegagerðarinnar og öðrum fylgigögnum umsóknar.
Eftirtalin gögn eru lögð fram hjá nefndinni:
Greinargerð umsóknar framkvæmdaraðila, framkvæmdalýsing, ásamt viðbótarskjalaskrá
Teikningasett ásamt teikningaskrá
Teikning, yfirlitsmynd Búðafossvegar
Teikning, kennisnið Búðafossvegar C8
Teikning, kennisnið heimreiða og tenginga C7
Teikning, Búðafossvegur norðan Þjórsár
Teikning, Búðafossvegur sunnan Þjórsár
Teikning, Búðafossvegur girðingar reiðleið - 1611-170-32-A000-V05
Teikning, Búðafossbrú yfirlitsmynd og þversnið
Efla, minnisblað - Fyllingar í árfarveginum, dags. 6. júní 2023
Skipulagsstofnun, ákvörðun um mat á umhverfisáhrifum, dags. 28. ágúst 2009
Efla f.h. Vegagerðarinnar, vegna breytinga á námum, 15. júní 2022
Matsskyldufyrirspurn og greinargerð framkvæmdaraðila, dags. 17. nóvember 2025
Matsskylduákvörðun Skipulagsstofnunar, dags. 2. febrúar 2026
Leyfi Fiskistofu, dags. 29. febrúar 2024
Uppfærð skilagrein um áhrif framkvæmda á lífríki í vatni/umsögn Hafrannsóknarstofnunar, dags. 5. maí 2022
Umsögn Veiðifélags Þjórsár, dags. 21. júlí 2022
Verkís, straumfræðigreining, dags. 6. febrúar 2024
Umsögn Hafrannsóknarstofnunar um áhrif á vatnshlot, dags. 24. apríl 2024
Hafrannsóknarstofnun, stuðningsskjal áhrifamat vatnshlots
Fornleifar - FS895-22291, Búðafossvegur 2022
Fornleifar - FS933-22451, Vegna lagningar Búðafossvegar 2023
Fornleifar - FS983-23231, Tóftin við Markamýri og uppgröftur á tóft í Vindási 2024
Minjastofnun, staðfesting, dags. 7. október 2025
Framkvæmdaáætlun verkkaupa
Matsskyldufyrirspurn og greinargerð framkvæmdaraðila vegna stækkunar Búðanámu, dags. 27. janúar 2025
Skipulagsstofnun, ákvörðun um mat á umhverfisáhrifum vegna stækkunar Búðanámu, dags. 3. apríl 2025
Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu og greinargerð framkvæmdaraðila vegna efnistöku, dags. í júlí 2009, ásamt bréfi dags. 15. júlí 2009
Umsögn Náttúruverndarstofnunar til Rangárþings ytra, dags. 27. febrúar 2026
Svör Vegagerðarinnar vegna umsagnar Náttúruverndarstofnunar, dags. 10. mars 2026, auk yfirlitskorts vegna kortlagningar á náttúrufari í veglínu Búðafossvegar, sunnan Þjórsár
Umsögn Umhverfis- og Orkustofnunar, dags. 31. mars 2026
Drög að greinargerð leyfisveitanda, dags. 8. apríl 2026.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi drög að greinargerð leyfisveitanda vegna framkvæmdarinnar frá 8. apríl 2026 verði samþykkt í endanlegri útgáfu sinni sem umsögn sveitarstjórnar um framkvæmdaleyfisumsóknina og að fallist verði á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda lagningar Búðafossvegar og nýrrar brúar yfir Þjórsá, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Vegagerðarinnar og önnur fyrirliggjandi gögn.
Nefndin telur brýna nauðsyn bera til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna með vísan til þess að afar áríðandi sé að tryggðar séu greiðar og öruggar samgöngur á þessu svæði og á milli sveitarfélaganna, sem er grundvallarmarkmið framkvæmdarinnar. Nefndin telur tilgang framkvæmdarinnar þýðingarmikinn vegna almannaheilla. Einnig telur nefndin að í fyrirliggjandi gögnum sé næg grein gerð fyrir framkvæmdinni eins og hún liggur fyrir umfram aðra valkosti og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum og telur tilgang framkvæmdarinnar vega þyngra en þau umhverfisáhrif sem framkvæmdin hefur.
9.Kaldárholt. Framkvæmdaleyfi til borunar eftir heitu vatni.
Málsnúmer 2603097Vakta málsnúmer
Útbúa þarf um 3.200 m2 borplan fyrir borinn á framkvæmdatíma. Vegur liggur nú þegar að dælustöðinni, en þaðan þarf að leggja um 70 m langan veg frá norðurhlið dæluhússins að borplani. Aðflutt efni í borplan og veg verður um 3.000 m3 og verður efnið fengið úr nærliggjandi námum með tilskilin leyfi.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að erindinu verði frestað þar til álit skipulagsstofnunar liggur fyrir, leyfi Fiskistofu liggur fyrir og greining framkvæmdaaðila skv. 1. mgr. 26. gr. laga nr. 111/2021 liggi einnig fyrir.
10.Landeyjavegur. Framkvæmdaleyfi vegna enduruppbyggingar vegar.
Málsnúmer 2603075Vakta málsnúmer
11.Vaðfitjanáma. Umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2603051Vakta málsnúmer
12.Hagi 2C. Beiðni um deiliskipulag.
Málsnúmer 2603020Vakta málsnúmer
13.Oddspartur. Breyting í aðalskipulagi óv.
Málsnúmer 2604002Vakta málsnúmer
aðalskipulags sem unnin var og samþykkt 10 júní 2025.
Heildar byggingarmagn er aukið úr 1000 m2 í 1700 m2 auk þess sem skilmálum um dreifbýlisyfirbragð eru felldir út. Gerð er breyting á deiliskipulagi samhliða aðalskipulagsbreytingu.
14.Oddspartur, breyting á deiliskipulagi.
Málsnúmer 2603094Vakta málsnúmer
15.Galtalækjarskógur breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2603079Vakta málsnúmer
Breytingin varðar eingöngu frístundasvæði F43 og F82 og eru þær eftirfarandi;
1. Hluti götunnar Krakalundur fær breytta lögun.
2. Einstaka lóðarnúmer breytast að sama skapi og lóðarstærðir um fáeina m².
3. Settur er viðsnúningshaus á götuenda.
4. Í greinargerð breytist Tafla 1.1 í samræmi við breyttan uppdrátt.
Mörk deiliskipulags, fjöldi lóða, nýtingarhlutfall og byggingarmagn helst óbreytt.
Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en tillagan skuli jafnframt grenndarkynnt öðrum hagsmunaaðilum á svæðum F43 og F82.
16.Selás. Breyting á byggingarmagni Selás E6
Málsnúmer 2603092Vakta málsnúmer
17.Mörk sveitarfélagsins gagnvart Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Málsnúmer 2603054Vakta málsnúmer
18.Ferjufit. Stækkun efnistökusvæðis. Breyting á aðalskipulagi.
Málsnúmer 2510325Vakta málsnúmer
19.Tungnaáreyrar. Stækkun efnistökusvæðis. Breyting á aðalskipulagi.
Málsnúmer 2510324Vakta málsnúmer
20.Faxaflatir. Breyting í aðalskipulagi.
Málsnúmer 2512122Vakta málsnúmer
21.Svínhagi L7 og L8A. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi.
Málsnúmer 2601359Vakta málsnúmer
22.Hagi v Selfjall 2. Breyting á landnotkun í landbúnað
Málsnúmer 2506043Vakta málsnúmer
23.Reiðleiðir á og kringum Hellu. Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 2603095Vakta málsnúmer
24.Aldamótaskógur - Melaskógur. Deiliskipulag
Málsnúmer 2509041Vakta málsnúmer
25.Íþrótta- og útivistasvæði á Hellu. Hönnun
Málsnúmer 2508043Vakta málsnúmer
26.Sigöldugljúfur
Málsnúmer 2410024Vakta málsnúmer
27.Steinkusel. Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2502070Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 11:05.