65. fundur 22. apríl 2026 kl. 08:30 - 10:45 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Gunnar Aron Ólason formaður
  • Þórunn Dís Þórunnardóttir aðalmaður
  • Eydís Þ. Indriðadóttir varamaður
  • Sævar Jónsson varamaður
  • Brynhildur Sighvatsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Haraldur Birgir Haraldsson embættismaður
  • Jón Ragnar Örlygsson
Fundargerð ritaði: Haraldur Birgir Haraldsson Skipulagsfulltrúi

1.Skinnhúfa. Samruni Norðurness.

2604030

Eigendur Skinnhúfu og Norðurness óska eftir að sameina jarðir sínar í eina. Jörðin héldi heitinu Skinnhúfa og yrði 129,5 ha að stærð. Merkjalýsing frá Hugrúnu Hörpu Björnsdóttur dags. 1.4.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformaða sameiningu og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

2.Norður-Nýibær L165410 Landskipti, Nýibær 1-17.

2604039

Eigandi Norður-Nýjabæjar L165410 óskar eftir að fá að skipta úr jörð sinni alls 17 lóðum, þ.e. 16 undir íbúðarhús og 1 undir þjónustustarfsemi. Uppskipting lóða er í samræmi við deiliskipulag. Merkjalýsing frá Hugrúnu Hörpu Björnsdóttur dags. 25.3.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

3.Hrafntóftir 1 L165392. Landskipti Hrafntóftir efri.

2604040

Eigendur Hrafntófta 1, L165392, óska eftir að skipta úr jörð sinni tveimur skikum á sama landeignanúmeri. Skiki 1 verði 20,4 ha og skiki 2 verði 15,4 ha. Skikarnir fengju heitð Hrafntóftir efri og Lxxxxxx. Á Hrafntóftum efri er 20,4 ha af ræktuðu landi sem verður að nýjum matshluta. Matshlutinn 02 Lax/silungsveiði skiptist á milli Hrafntófta 1 og Hrafntófta efri. Landeigandi Hrafntófta efri fær 33,3% af matshlutanum en landeigandi Hrafntófta 1 heldur eftir 66,6%. Kvöð er á Hrafntóftum 1 vegna aðkomu að Hrafntóftum efri.

Forkaupsréttur fellur niður á Hrafntóftum 1. Merkjalýsing frá Hugrúnu Hörpu BJörnsdóttur dags. 17.3.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

4.Heiðvangur. Skilgreining lóðamarka.

2604041

Allar lóðir við Heiðvang á Hellu voru stofnaðar í fasteignaskrá á grundvelli mælinga frá Verkfræðistofunni Hnit með tilvísun í uppdrátt frá árinu 1975. Ekki var um hnitsetta mælingu að ræða á þeim tíma eins og þekkist í dag og þess vegna hefur komið upp ágreiningur hin síðari ár milli lóðarhafa um nákvæmna staðsetningu lóðamarka en með þessari merkjalýsingu hefur náðst samkomulag milli allra lóðarhafa um merki sín á milli. Þar sem um minniháttar og innbyrðis stærðarbreytingar er að ræða hefur það engin áhrif á stærð upprunalandsins Gaddstaðir L164482. Merkjalýsing frá Hörpu Birgisdóttur dags. 16.4.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við framkomin samkomulög milli lóðareigenda og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

5.Fet L165077 og Syðri-Rauðalækur L192857. Landskipti Fet 2.

2604032

Eigandi Fet og Syðri-Rauðalækjar lands 2 óskar eftir að fá að skipta úr jörðum sínum, tveimur skikum. Skikarnir eru stofnaðir úr tveim landeignum. Skikarnir fengju heitið Fet 2 og er stofnaðir úr jörðunum Fet, L165077 og Syðri-Rauðalæk land 2, L192857. Skikinn sem stofnaður er út Fet er 12,0 ha og skikinn sem stofnaður er úr Syðri-Rauðalæk land 2 er 21,7 ha. Samtals er stærðin 33,7 ha. Merkjalýsing er frá Jóhönnu Sigurjónsdóttur dags. 15.12.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

6.Lambhagi. Landskipti. Landsvæði undir vegsvæði.

2604045

Vegagerðin, fyrir hönd landeigenda að Lambhaga, L164528, óskar eftir að fá að skipta út 16.990 m² spildu undir vegsvæði vegna girðingarmála meðfram Suðurlandsvegi skv. uppdrætti frá Vegagerðinni dags. 17.2.2026. Ný spilda fengi landeignanúmerið LXXXXXX og heitið Lambhagi vegsvæði. Merkjalýsing frá Eygló Kristjánsdóttir, dags. 25.3.2026
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.

7.Helluvaðsvegur, Bogatún. Umferðaröryggismál

2604007

Helga Þóra Steinsdóttir sem búsett er í Bogatúni 2 lýsir yfir miklum áhyggjum af skorti á umferðaröryggi á Helluvaðsvegi og kallar eftir lausnum áður en illa fer. Bréf sent 7. apríl sl.
Skipulags- og umferðarnefnd tekur undir megininntak erindis Helgu Þóru Steinsdóttur og telur að þar komi fram mikilvægar ábendingar um umferðaröryggi sem rétt sé að bregðast við. Nefndin telur brýnt að áfram verði unnið að því að bæta öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda á svæðinu, ekki síst barna. Nefndin vísar jafnframt til fyrri umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar frá maí 2025 um sambærileg atriði á þessum stað og ítrekar mikilvægi þess að málið verði unnið áfram á grundvelli þeirrar stefnu sem þar hefur þegar verið mörkuð.

Skipulags- og umferðarnefnd hvetur framkvæmdasvið sveitarfélagsins til að vinna málið áfram, meta mögulegar úrbætur á svæðinu og leggja fram tillögur um næstu skref með hliðsjón af umferðaröryggi og aðstæðum á vettvangi. Nefndin leggur til staðsetningu þar sem sett verði upp hraðahindrun til bráðabirgða þar til varanleg lausn liggur fyrir með uppbyggingu á svæðinu. Nefndin telur mikilvægt að nánari útfærsla á staðsetningu fari fram með aðkomu erindishafa.

8.Hraðahindrun í Þykkvabæ

2508003

Íbúi við Háfsveg í Þykkvabæ ítrekar beiðni sína um hraðahindrun framan við hús sitt, Hábæ, sökum verulegs hraðaksturs eftir Háfsvegi.
Skipulags- og umferðarnefnd tekur undir megininntak erindis Aldísar Hörpu Pálmarsdóttur og telur að þar komi fram mikilvægar ábendingar um umferðaröryggi sem rétt sé að bregðast við. Nefndin telur brýnt að áfram verði unnið að því að bæta öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda á svæðinu, ekki síst barna. Nefndin vísar jafnframt til fyrri umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar um sambærileg atriði á þessum stað og ítrekar mikilvægi þess að málið verði unnið áfram á grundvelli þeirrar stefnu sem þar hefur þegar verið mörkuð.

Skipulags- og umferðarnefnd hvetur framkvæmdasvið sveitarfélagsins til að vinna málið áfram, meta mögulegar úrbætur á svæðinu og leggja fram tillögur um næstu skref með hliðsjón af umferðaröryggi og aðstæðum á vettvangi. Nefndin leggur til staðsetningu þar sem sett verði upp hraðahindrun til bráðabirgða þar til varanleg lausn liggur fyrir með uppbyggingu á svæðinu. Nefndin telur mikilvægt að nánari útfærsla á staðsetningu fari fram með aðkomu erindishafa.

Varðandi aðrar merkingar í Þykkvabæ leggur nefndin til að farið verði í skoðun á uppsetningu biðskyldumerkinga og annarra merkinga.

9.Lundur. Þjónustuíbúðir

2409008

Farið yfir áherslur um uppbyggingu öryggis- og þjónustuíbúða við Lund. G.G.Tré ehf óskar eftir óstofnuðum lóðum nr. 2, 4 og 6 við Guðrúnartún til að byggja á þeim íbúðir sem tengjast myndu hjúkrunarheimilinu Lundi með yfirbyggðum gangi. Fjöldi íbúða yrðu 18-22 og áformað að framkvæmdir hefjist vorið 2027.
Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í erindið og leggur til við sveitarstjórn að veitt verði vilyrði til úthlutunar á lóðunum af Guðrúnartúni til G.G.Trés ehf á grundvelli erindisins.

10.Hvammur L165091. Deiliskipulag.

2603096

Eigendur óska eftir heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir jörð sína, Hvamm L165091. Afmarkaðir verða tveir byggingareitir þar sem heimilt verði að byggja fjóra 40 m² gistiskála til útleigu auk, aðstöðuhúss og 100 m² starfsmannahúss og allt að 2400 m² geymsluhúsnæði. Einnig verða afmarkaðar og stofnaðar tvær nýjar lóðir innan jarðarinnar, önnur undir íbúðarhús allt að 300 m²og hin fyrir núverandi geymsluhúsnæði með möguleika á stækkun upp í allt að 8209,5 m², Skipulagsgögn frá Larsen dags. 19.3.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Gunnar Aron vék af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins

11.Ferjufit. Tilkynning um ákvörðun um matsskyldu.

2603090

Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn sveitarfélagsins við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt:

Ferjufit - Aukin efnistaka, nr. 0378/2026: Tilkynning um framkvæmd (Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu).

Óskað er umsagnar Rangárþings ytra.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að greinilega sé brugðist við þeim áhrifum sem umrædd framkvæmd kunni að hafa á umhverfi sitt með þeim hætti að ekki verði um veruleg neikvæð áhrif að ræða. Skipulagsnefnd telur að fullnægjandi grein sé gerð fyrir framkvæmdinni í framlagðri greinargerð með tilkynningunni. Umhverfisáhrif hafa verið lágmörkuð með fullnægjandi mótvægisaðgerðum og vöktun. Skipulagsnefnd telur því að umrædd framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Gunnar Aron kemur aftur inn á fundinn.
Gunnar Aron vék af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins.

12.Tungnaáreyrar. Tilkynning um ákvörðun m matskyldu.

2603091

Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn sveitarfélagsins við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt:

Tungnaáreyrar - Aukin efnistaka, nr. 0380/2026: Tilkynning um framkvæmd (Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu). Óskað er umsagnar Rangárþings ytra.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að greinilega sé brugðist við þeim áhrifum sem umrædd framkvæmd kunni að hafa á umhverfi sitt með þeim hætti að ekki verði um veruleg neikvæð áhrif að ræða. Skipulagsnefnd telur að fullnægjandi grein sé gerð fyrir framkvæmdinni í framlagðri greinargerð með tilkynningunni. Umhverfisáhrif hafa verið lágmörkuð með fullnægjandi mótvægisaðgerðum og vöktun. Skipulagsnefnd telur því að umrædd framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Gunnar Aron kemur aftur á fundinn.

13.Galtalækjarnáma E57. Merkurnáma. Ósk um aukna heimild til efnistöku.

2506015

Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir athugasemdir og umsagnir. Ekki þykir ástæða til að taka undir athugasemdir um verulega aukið álag á veg eða að þörf sé á samgöngumati vegna stækkunar námu, enda er náma í notkun og stækkun námunnar er til að tryggja svipaða nýtingu og verið hefur undanfarna áratugi. Vegna mistaka við síðustu auglýsingu hefur tillagan verið auglýst að nýju. Tillagan var auglýst frá og með 6.1.2026 til og með 17.2.2026. Lögð er fram samantekt á umsögnum og drögum að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.

14.Ægissíða 4 land. Ósk um breytingu á landnotkun

2511007

Eigandi Ægissíðu 4 lands, L165443, hefur fengið heimild til að gerð verði breyting á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi þar sem henni verði breytt úr iðnaðarsvæði í verslunar- og þjónustulóð. Lýsing skipulagsáforma var kynnt til og með 16. apríl. Umsagnir bárust frá alls 5 aðilum. Athugasemdir voru gerðar af hálfu Vegagerðarinnar þar sem Vegagerðin getur ekki fallist á skipulagslýsinguna og breytta landnotkun þar sem umrætt svæði er að stórum hluta innan veghelgunarsvæðis Hringvegarins (1 -c4). Lögð er fram tillaga frá Eflu dags. 17.4.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir umsagnir við lýsinguna. Nefndi telur að breyting á landnotkun umræddrar lóðar hafi engin áhrif á hvort hún sé að hluta til innan veghelgunar- eða öryggissvæðis Vegagerðarinnar og að fyrirætlanir á uppbyggingu innan hennar verði gerð skil í tillögu að deiliskipulagi þegar hún verður lögð fram. Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar í samræmi við 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 en áður verði hún kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. sömu laga.

15.Öldur III. Breyting á deiliskipulagi

2602002

Farið yfir áherslur gildandi deiliskipulags og rætt hvort eigi að breyta áherslum um byggingartegundir og heimila tveggja hæða fjölbýlishús, breikka vegi milli húsa um a.m.k. 1 metra og skilgreina tengingar gatna við Helluvang Ofanbyggðaveginn. Lögð fram tillaga frá Eflu dags. 16.4.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Haukur Óskarsson og Hjörleifur fóru yfir áform um uppbyggingu á svæðinu.

16.Rangárbakki 8, Breyting á deiliskipulagi

2503034

Lóðarhafi Rangárbakka 8a, 8b og 8c óskar eftir að fá að leggja fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið, dags. 11.10.2012. Bætt verði við allt að sjö gistiskálum á svæði A, svæðið B og C verða óbreytt, fallið verði frá fyrirhugaðri breytingu á svæði D og núverandi gistiskálar látnir halda sér. Á svæði E verði gert ráð fyrir hótelbyggingu á tveimur hæðum með grunnfleti allt að 2000 m². Allt að 75 herbergi, fundaraðstaða og matsalur. Að auki verði bætt við aðstöðu fyrir starfsfólk í allt að 390 m² húsi á einni hæð. Eigandi kemur og fer yfir áherslur sínar.
Lóðarhafi fór yfir hugmyndir sínar og áform um uppbyggingu á svæðinu auk þess að sýna áhuga sinn á uppbyggingu á lóð nr. 4. Lagt fram til kynningar.
Þeim félögum þökkuð góð yfirferð.

17.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 167

2601003F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 167 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

18.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 168

2601013F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 168 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

19.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 169

2602003F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 169 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

20.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 170

2602007F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 170 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

21.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 171

2602014F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 171 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

22.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 172

2603002F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 172 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

23.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 173

2603008F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 173 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

24.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 174

2603011F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 174 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

25.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 175

2603016F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 175 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

26.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 176

2604001F

Umsóknir um byggingarleyfi og beiðnir um umsagnir vegna leyfismála sem teknar hafa verið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa lagðar fram til kynningar. Um fund nr. 176 er að ræða.
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:45.